Þjóðólfur - 06.04.1918, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 06.04.1918, Blaðsíða 4
12 ÞJÓÐÓLFUR og (hvor tegund fyrir sig) í Vöruhúsinu, Tjón bóndans í Dæli er metið á þriðja þúsund kr. Voru sam- skot byrjuð, er brunafregnin var símuð, og söfnuðust fyrsta dag- tnn um 500 kr. Víðar er gefið vel en i Rvik. „Fjalla-Eyvindur“ Jóhanns Sigurjónssonar er kominn út í danskri skrautútgáfu með mynd- um. Arent Clacssen, verziunar- maður, er orðinn sameigandi í firmanu Johnson & Iíaaber. Mjólkurfræði er nýútkomin eftir Gisla Guðmundsson, gerla- fræðing, deildarstjóra á rann- sóknarstofu landsins. Bókin er tileinkuð minningu Asgeirs heit- ins Torfasonar, efnafræðings. Mófélag hefir verið stofnað hér í bænum. Ætlar það að láta taka mó upp í Mosfellssveit. — Enn fremur ætlar bæjarstjórn að láta taka upp mó í Kringlu- mýri í sumar. Höínin. Ekki er alt búið enn í hafnarmálinu. Oddur Jónsson í Ráðagerði, er hafnarvarðar- stöðuna hlaut, hefir nú afsalað sér hafnsögumannsstarfmu. — Leggur bæjarstjórn nú til, að þetta embætti verði ekki veitt, fyrr en ný lög hafa verið samin um hafnsögu hér. í gær birtist grein eftir Krist- ján Bergsson, skipstjóra, í Morg- unblaðinu, þar sem hann fer hörðum orðum um stjórnleysið á höfninni. Finnur hann að þvi, að bæjarstjórn flýtti sér að því að veita leiðsögumanni hafnar- varðarstöðuna, áður en fullrann- sakað var, hver átti sök á strand- inu gufuskipsins »Köbenhavn«, og án þess að hann losaði sig við leiðsögumannsstarfið. Kveð- ur hann bænum íþyngt með fjölda starfsmanna, er væru al- gerlega óþarfir, ef hæfur maður hefði verið skipaður í hafnar- stjórastöðu. Höfninni geti og orðið dýrt, ef tjón hljótist á skipum eða förmurn af völdum starfsmanna hennar. »Og nú strax á þessum stutta tíma, sið- an núverandi hafnarstjóri tók við stjórninni, er að minsta kosti ein slík krafa komin, og hafa þó engin stórviðri komið síðan«. Annars er merkilegt, hve blöð og bæjarbúar láta mál þetta og jafnþungar sakargifíir á hend- ur stjórn bæjarins lítið til sín taka, og þó koma árásirnar frá mönnum, er hér mega gerzt um vita. Jörðin Stakkavík, ásamt eyðijörðinni JHlíO í Selvogs- lireppi, er laus til ábúðar í næstu fardög- um. — Semja ber við umráðamann jarðarinnar Pái Grimsson í Nesi. Hér með vil ég tilkynna, að ég hefi sett á stofn fataverzlun í Borg’arnesi, og mun hún reynast, eins og sérverzlanir yfirleitt, heppileg í vali með vörur sínar og hafa flest, sem lýtur að þeirri grein: utanyfir-, nær- og milli-fatnaði, erfiðisföt, kápur og til fata. Hálstau, frakka, reiðjakka, sérstakar buxur (moleskin), höfuðföt o. m. íl. Einnig vefnaðarvörur. Samhliða þessu hefi ég sælgætis- og :: tóbaksvörur, og ýmislegt smávegis. :: Yinsamlegast vil ég því vekja athygli manna á verzl- un þessari, því að ætlun mín er að selja betri og ódýrari vörur en þeir, sem kaupa þessar vörur í smáum stýl og vantar sambönd, en ég kaupi vörurnar í stórum stýl frá beztu verksmiðjum. Virðingarfyllst Jónas Kristj ánsson, Borg’arnesi. Vatnsaflið vinnur fyrir Sími 404. bændur landsins. Símnefni: Álafoss. Klædaverk^midjan r „Alafoss44 hefir þá ánægju að geta tilkynt sínum heiðruðu viðskiftavinum, að hún heldur áfram að vinna í fiiilum ganííi. og getur tekið á móti afskaplega miklu af ull til vinnu í lopa, plötn og t>ancl, fyrir 1 æ g r i vinnulaun en tiltölulega nokkur önnur vinna fæst unnin hér á landi. Bændur! hað borgar sig eigi að nota handaflið til að kemba. Látið Álafoss gera það — þér sparið stórfé með því. Allar upplýsingar viðvíkjandi flutningum o. fl. fást hjá umboðs- mönnum vorum. Sendið því ull yðar strax til Afjgrelöslu vcrksmiðjunnar á Laugaveg 34, Reykjavík. Klæðaverksmiðjan „Álafoss", Rvík. í haiiHí var mér dreginn móranðnr j haustgemlingur, 1 vetra, með I mínu skýra marki á hornum: ! tvírifað i sneitt fr., biti aí't. hægra, hamarskorið vinstra. Eyrnamark: biti fr. hægra, blaðstýft aft., biti fr. vinstra. Réttur eigandi semji við undirritaðan um markið og borgi áfallinn kostnað. Grjótá í Fljótshlíð 6.—12.—T7. Sveinn Teitsson. Útlendar fréttir verða sökum rúmleysis að bíða næsta blaðs. 2 kýr, góðar og fallegar, sem eiga að bera seint á þessum vetri, óskast keyptar á næstkomandi vori. Bjarnastöðum í Grímsnesi, 4.—1,—''18. Eyjólfur Sfmonarson, Ijvitt gelðfngslamb var mér dregið síðastliðið haust, sem ekki er með mínu marki. Mark: tvístýft aft. h., stýft og gagnfj. v. Réttur eigandi vitji andvirðis til mín, borgi áfallinn kostnað og semji við mig um markið. Ásgarði 28. des. 1917. Gnðbjörg S. Guðmundsdóttir. I Biskupstungnahreppi hefir verið seld sótrauð hryssa 3 vetra, mark: íjöður fr. hægra. Útlausnarfrestur til 21. júní næstkomandi. Brekku 26. des. 1917. Björn Bjarnarson (hreppstjórí). 3 Qrunainaimahreppi hefir verið seld rauð hryssa 1 vetra, óglögt mark: líkast blaðstýft fr. h., og líkast gagn- bitað v.; ait illa gert. Útlausnarréttur til 16. júní 1918. Sóleyjarbakka 20. des. 1917. Br. Einarsson. Söðlasmíðabúðin Laugavegi 18 B. Sími 646. Reiðtygi, aktygi (þrjár tegundir), allskonar ólar og annað tilheyr- andi. Rverbakstöskur, hnakk- töskur, baktöskur. Tjöld. Beisl- isstengur, munnjárn o. m. fl. Landsins stærsta og fullkomnasta vinnustofa í þessum greinum. Fljót og áreiðanleg afgreiðsla. Viðskifti víðsvegar um land alt. Söðlasmíðabúðin, Laugav. 18 B. Sími 646. E, Kristjánsson. Ritstjóri: Sigurður Guðmundsson. Sími 709. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.