Þjóðólfur - 20.04.1918, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 20.04.1918, Blaðsíða 4
20 ÞJÓÐÓLFUR FERÐAMENN! Pe g'ar þið komið til Reykjavíkur og ykkur yanliagar um iatnad og vefnaðarvörur þá skuiuð þið athuga verð og gæði á þessum vörum í Alisturstr. 1 Asg. G.Gunn/augss.áCo. Austurstrœti 1. 3, gr. segir, að Maf upphæð þeirri, er sveitarfélög og bæjar- félög hafa varið til dýrtíðar- ráðstafana samkv. 1. gr., skal end- urgreiða hlutaðeigandi sveitar- og bæjarfélagi úr landssjóði V3 hluta, er stjórnarráðið hefxr úrskurðað reikning hreppsnefndar yfir mat- væli þau, eldsneyti o. s. frv., er keypt hafa verið fyrir hreppinn eða varið heflr verið til niðurfærslu á vöruverði samkv. 1. gr.“ Þá hefir stjórnin lagt fram frv. til laga um hækkun á launum yfirdómenda og skrifstofustjóra stjórnarráðsins og hagstofustjóra, er í frv.. er gerður konunglegur embættismaður. Á dómstjóri að hafa að byrjunarlaunum 4800 kr., er hækki á hverjum þriggja ára fresti upp í 7000 kr. Yfirdómar- ar byrji með 5 þús. kr. launum, en hækki á hverjum þriggja ára fresti upp í 6 þús. kr. Skrifstofustjórar stjórnarráðsins og hagstofustjóri byrji með sömu launum sem yfir- dómendur og hækki á sama fresti um sömu fjárhæð, 200 kr., upp í 6 þús. kr. Enn ieggur stjórnin íyrir þingið írv., sem ráða á bót á launakjör- um barnakennara. Þá er eitt stjórnarfrv. úm „heim- ild handa landstjórninni til að fyr- irskipa íráfærur „ásauðar“ (hér vantar ekki skýrleikann í orðalagi!). Svar enn til Lárusar Helgasonar í • „Þjóðólfi“ útkomnum i dag, birtist svargrein til mín frá L. H. I Jafnvel þótt ég taki mér penna í hönd til andsvara, finn ég það vera létt verk og löðurmannlegt, að eiga orðastað við mann þenna. í ræðu og riti hefi ég jafnan heyrt og séð L. H. sem einn aí „oflátungum þjóðfélagsins". Hann hrúgar niður stóryrðum og sleggju- dómum um menn og málefni, en órökstutt og útþanið af gorgeir þeim, sem fylgir fávitringum og fáfræðingum, er þeir viija gera sig að leiðtogum lýðsins. Jj. H. þykir hlýða að byrja grein sína á því að gefa í skyn, að hann sé mjög bundinn nauðsyn- legum störfum, bæði í höfuðstað landsins og heima fyrir, og gefur þá um leið að skilja, hversu mað- ur þessi hyggur sjálfan sig vera „mikla stærð“. Eg er nú sannfærður um, að höfuðstaður landsins, með öllum sínum stoínunum, misti einkis, þótt L. H. léti aldrei sjá sig þar. Og að hann sé nauðsynlegur sem einn eftirlitsmaður við miðstöð Sláturfélags Suðurlands í Reykja- < vík, virðist mór mjög hlægilegt. Ijandið og þjóðin mundi og held- ur einkis missa, þótt L. H. sæti ávalt heima að búi sínu; það mundi honum fyrir beztu sjálfum. Og ef hann svo bætti ráð sitt frek- ar og léti aldrei hér eftir sjást neitt eftir sig á prenti, bættist hag- ur hans að því leyti, að hann gerði sig þá ekki lengur hlægilegan og ómerkilegan fyrir fávizku sína og hleypidóma. Hér skal vikið nán- ar að þessu. Þar sem L. H. í þessu svari sínu fárast yfir, að eg skuli í grein minni til hans hafa líkt rithætti hans við rithátt hinna fávitru, bætir hann við þessari klausu: „Þessi ummæli hans læt eg mér í léttu rúmi liggja, og það því fremur, sem eg hefi ekki orðið var við þessa „alla skynbæru menn“, nema ef þetta á að skiij- ast svo, að J. H. Þ. telji sig vera fyrir þessa „alla“. Eg spyr les- endur Þjóðólfs: er ekki þetta hlægi- leg endileysa? Þá kemur L. H. að því, að með vottorðum „fleiri manna“ megi staðfesta þá umsögn sína, að lengra hefði verið íarið við ullarmatið í Vík 1916, heldur en gildandi reglu- gerð benti til. Sér er nú hver fávizkan! L. H. álítur þá, að það hefði eitthvert gildi, ef hann basl- aði saman einhverri vottorðs-endi- leysu, sem hann klóraði nafn sitt undir og gæti ef til vill „veitt“ nokkur nöfn þar með, og þá lík- lega þeirra manna, sem, eins og hann, skildu ekki, hvað með væri verið að faya. Mér er sem eg sjái L. H. sitjandi og láta brýmar síga við samning þessa vottorðs(H). Jj. H. setur þessu næst fram all-langa klausu um það, hvernig átt hefði að haga ullarmatinu, er byrjað var á því. Má þar gerla sjá og skilja, til hvers hann hefir þá ætlast af okkur ullarmatsmönn- um. Hann hefir ætlast til þess, að við höguðum okkur við ullar- matið „eins og þá stóð á með verzlun“ — eins og hann sjálfur kemst að orði —, en ekki eftir lögum og reglum, sem við vorum og erum eiðsvarnir að fylgja. En þegar L. H. kom ekki sinni uli að í Vík 1916, í trássi við lög- in, fullyrðir hann, að við höfum brotið lögin um úllarmat og virt að vettugi reglur um hið sama. Þetta er hvorttveggja í einu: grunnhygnislegt og ódrengilegt. Þá fjölyrðir L. H. um það, hversu lítið af Víkur-ullinni hafi náð 1. flokki 1916. En 1. flokks ullin þar var mikil þá, saman bor- ið við það, sem varð á öðrum stöðum, eins og greint er frá í fyrra svari mínu til L. H. Eg hefi aldrei hælt mér af því, að það hafi verið mér að þakka, hversu lítill verðmunur varð á 1. og 2. flokki ullarinnar, jafnvel þótt sendimaður brezku stjórnarinnar — sem hafði það mál með hönd- um —„leitaði álits míns um verð- mun þenna. Að eg hafi hagað mér öðruvísi við ullarmatið 1917 heldur en 1916, er, eins og annað, tilhæfulaust og órökstutt mas hjá L. H. L. H. telur mig ósannindamann að því, að hann hafi sagt mér, að ullarmatsmennirnir í Vík hafi talið, að megnið af þessari þrætu- ull þeirra hafi átt heima í 2. flokki. t. H. minnist þess sennilega, að hann skýrði mér frá þessu í sima, þótt hann nú beri fram hið gagn- stæða. En eg hefi aldrei fullyrt, að ull þessi hafi verið skoðuð öll fyrr en í Reykjavík af ullarmats- mönnunum þar. En þá sýndi hún sig eins og hún var: að mestu leyti slæm 2. flokks ull. L. H. skorar á mig — með miklum mannalátum —, að koma með „gild rök“ fyrir þeirri aðdrótt- un, að gremja hans út af ullar- matinu hafi stafað af því, að hann fékk ekki eins mikið fyrir sína slæmu ull og þeir, sem höfðu góða ull. Jafnvel þótt L. H. beri sjáan- lega lítið skyn á, hvað „gild rök“ eru í raun og veru og hvar þau á að hafa í ritmáii, skal eg benda bonum á, að hann hefir hér tekið af mér ómak, þar sem hann í grein sinni skýrir frá, að hann hafi metið ull sína heima 1916, og það sem hann tók til í 1. flokk vildu ullarmatsmennirnir ekki við- urkenna sem slíka og varð því að láta mikið af þeirri ull í 2. flokk. Nú er það lýðum Ijóst, að 2. fiokks ull er í lægra verði, og það veit eg, að lesendum Þjóðólfs er orðið kunnugt, að gremja L. H. út af ullarmatinu stafar hór frá. L. H. víkur að því, að eg hafi í svari mínu til hans tilgreint hann með ferkantað höfuð. Eg hefi engu við það að bæta öðru en því, að mér finst honum farast það einna bezt, að rita um fer- kantað höfuð á sjálfum sér. Annað í þessari svargrein I,. H. er enn fátæklegra en það, sem vik- ið hefir verið hér að. Og flestu því mun eg áður hafa svarað hér í blaðinu og get vísað til þess. Að endingu skal þess getið, áð nú læt eg lokið ritdeilum við L. H. um þetta efni. En láti hann ekki af því að bera út um mig óhróð- ur og staðlausa stafi, skal eg næst tala við hann í gegnum lögin. Staddur í Reykjavík. 13. apríl 1918. Jón H. Þorbergsson. Aths. Deilum þeirra J. H. Þ. og L. H. um þetta efni er nú lokið í Þjóðólfi. Bitstj. Ritstjóri: Sigurðnr Gudinundsson. Sími 709. Prentsmiðjan Gutenberg. Innlendar fréttir og tíningur. Prófastar eru nýorðnir þeir síra Kjartan Helgason í Hruna í Árnesþingi og síra Eggert Pálsson, alþm. á Breiðabólsstað, í Rangár- þingi. Svani, Breiðafjarðarbátnum, tókst björgunarskipinu Geir að ná út og kömast með hingað til við- gerðar. Póstferðir í loftinu eru nú komnar á í Noregi. Hafa Norð- menn til þeirra 30 flugvélar. Hve- nær byrjum við íslendingar að nota þær til slíkra flutninga? Eftir hverju er hér beðið? Clullfoss (skipstj. Sigurður Pét- ursson) kom frá Vesturheimi á mánudagskvöldið. Meðal farþega var Matthías Ólafsson alþingis- maðnr. Björn prófessor Ólsen biðst undan endurkosningu í forseta- stöðu Bókmentafélagsins á næsta vori sökum vanheilsu. Lurfa fé- lagsmenn því að fá sér nýjan forseta í stað hans. Þyrfti betur að vanda til þeirra kosninga en títt hefir verið um ýmsar kosn- ingar og val í vandastöður á landi hér. Fullyrt er, að dr. Björn Ól- sen muni og beiðast lausnar frá prófessorsembætti sínu innan skamms. Er það skaði íslenzk- um vísindum og fræðum, að þau njóta ekki lengur starfs- krafta hans og lærdóms. Dr. Sigurður Nordal er sjálf- kjörinn eftirmaður Ólsens við háskólann. Danskur verbfræðingur hefir nú verið fenginn til aðstoðar vega- málastjóra landsins, hr. Geir Zoéga. Er það merkilegt, er sækja þarf verkfræðing til Danmerkur. En vonandi fjölga íslenzkir verkfræð- ingar svo innan skamms, að þessi nýskipaði aðstoðarmaður vegamála- stjóra verði fyrsti og seinasti Dani í þeirri stöðu. Síra Magnús Helgason, skóla- stjóri, er dvelur í Birtingaholti í vetur, hefir flutt þar eystra alþýðu- fyrirlestra, og verið gerður góður rómur að.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.