Þjóðólfur - 10.07.1918, Page 1
ÞJÓÐÓLFUR
65. árgangur.
ÞJÓÐÓLFUR kemur út einu sinni í
viku. Kostar til ársloka kr. 4,00. Gjakl-
dagi fyrir lok júlímánaðar. Afgreiðslu
annast Björn Björnsson bókbindari,
Laugaveg 18, simi 286.
Prestastefnan 1918.
Prestastefna var haldin hér í
bænum dagana 26.—28. júní.
Hófst hún með guðsþjónustu í
dómkirkjunni miðvikudag 26., kl.
12 á hádegi. Prófastur Jón Sveins-
son, Akranesi, prédikaði.
Kl. IV2 hófust fundahöldin í
sal K, P. U. M. Voru þar saman
komnir þessir andlegrar stéttar
menn auk biskups: prófastarnir
Árni Björnsson, Görðum, Eggert
Pálsson, Breiðabólsstað, Jón A.
Sveinsson, Akranesi, Kjartan Helga-
son, Hruna, og Magnús Bjarnason,
Prestsbakka; prestarnir: Erlendur
Þórðarson, Odda, Ólafur Finnsson,
Kálfholti, Þorsteinn Benediktsson,
Krossi, Ólafur V. Briem, Stóra-
núpi, Gísli Skúlason, Stóra-Hrauni,
Ólafur Magnússon, Arnarbæli, Prið-
rik Jónasson, Útskálum, Árni Þor-
steinsson, Kálfatjörn, Brynjólfur
Magnússon, Grindavík, Magnús
Þorsteinsson, Mosfelli, Bjarni Jóns-
son, Rvík, Einar Thorlacius, Saur-
bæ, Eiríkur Albertsson, Hesti, Sig-
urgeir Sigurðsson, ísaflrði, Sigurð-
urður Stefánsson, Vigur, Friðrik
Friðriksson, Rvík; háskólakennar-
arnir: S. P. Sivertsen og Magnús
Jónsson; þeir pastores emeriti:
Sigurður próf. Gunnarsson, Skúli
próf. Skúlason, Þorvaldur próf.
Jónsson og Jóhannes L. L. Jó-
hannesson og kandídatarnir: Sig-
urbj. Á. Gíslason, Halldór Gunn-
laugsson, Sig. Ó. Láiusson, svo
og nokkrir guðfræðinemar. Seinna
bættist í hópinn séra Einar Frið-
geirsson á Borg.
Eftir að sálmur hafði verið
sunginn, flutti biskup bæn, setti
síðan fundinn með ávarpi til fund-
armanna og bauð þá alla vel-
komna. Skýrði þvínæst frá því
hver mál lægi fyrir prestastefn-
unni að þessu sinni og hvernig
fundarhöldum yrði hagað. Tilnefndi
hann fundarskrifara þá prófessor
S. P. Sivertssen og séra Friðrik
Jónasson, Útskálum. Var þá gert
fundarhlé til kl. 4J/2.
Kl. 4V2 var fundur settur að
nýju. Gaf biskup ítarlegt yfirlit
yfir heiztu viðburði umliðins árs,
mintist látinna presta hérlendra
(séra Kr. E. Þórarinssonar á Tjörn
og séra Gísla Jónssonar á Mosfelli)og
erlendis (séra Friðriks J. Bergmanns
í Wínnipeg) svo og 5 prests-
ekkna. Gerði þvínæst grein breyt-
inga, sem orðið hefðu innan presta-
stéttarinnar (7 prestar hefðu tek-
ið lausn, 5 nýir bæst við, 2 að-
Reybjavík, 10. júlí 1918.
16. tölublað.
stoðarprestar orðið sjálfstæðir
sóknarprestar, 1 embættislaus ver-
ið settur í prestsembætti, 2 nýir
prófastar skipaðir), gat nýmæla í
lögum snertandi prestastéttina,
skýrði frá yfirreið sinni á næst-.
liðnu sumri, útsendingu hirðis-
bréfs, feraldarminning siðbótar
Lúters og frjálsri kirkjulegri starf-
semi.
Þá voru samþyktar tillögur bisk-
ups um úthlutun styrktarfjár til
uppgjafa presta og prestsekkna
(samtals kr. 6290.00), skýrt. frá
hag prestsekknasjóðs (í árslok 1917|:
kr. 34476.28) og gjöfum til hans
á árinu (kr. 307.83) og samþykt
að úthluta 1300 kr. af vöxtum
hans næsta ár.
Út af áskorun frá safnaðarfundi
á ísafirði var samþykt svolátandi
yfirlýsing: „Synodus telur fylstu
þörf á að núverandi ísafjarðar-
prestakalli verði skift í 2 sérstök
prestaköll (þ. e. Bolungarvíkur-
sókn gerð að sérstöku prestakalli).
Kl. 8^/2 um kvöldið flutti docent
Magnús Jónsson fjölsóttan fyrir-
lestur í dömkirkjunni urn Jóhann-
esar guðspjall, en sálmur var sung-
inn fyrir og eftir.
Fimtudaginn 27. júni kl. 9 árd.
hófst fundur að nýju. Var sálmur
sunginn og biskup flutti bæn. Þá
flutti séra Friðrik Friðriksson er-
indi: Prestarnir og œskulýðurinn,
og urðu út af því langar umræð-
ur, er sér í lagi snerust um ferm-
ingarundirbúninginn.
Þá gaf biskup yfirlit yfir messu-
gerðir og altarisgöngur árið 1917:
Flestar messugerðir í hlutfalli
við tölu prestakalla höfðu verið
fluttar í Kjalarnesprófastsdæmi:
alls 371 í 7 prestaköllum, en
fæstar í Strandaprófastsdæmi: alls
67 í 4 prestaköllum. í 21 presta-
kalli höfðu verið undir 20 messur
(fæstar i Stöðvar- (8) og Setbergs-
(10) prestaköllum), en yfir 40 í
alls 37 prestaköllum (flestar 1
Stokkseyrarprestalli 63, í Reykja-
víkur (tveir prestar) 118, Nesþinga
[Ólafsvíkurj 59, Akureyrar 59,
Grundarþinga 58). Messur samtals
á öllu landinu 3910 (árið 1916:
3835). Tala altarisgesta á öllu
landinu var 4224 (árið 1916: 4444)
af ca. 54500 fermdra. Flestir alt-
arisgestir, í hlutfalli við fólksíjölda
í prófastsdæmi 602 af 4169 fermd-
urn í Árnesprófastsdæmi, fæstir
12 af 1304 fermdum í Stranda-
prófastsdæmi. Flestir í hlutfalli við
fólksfjölda í prestakalli, 83 af 224
í Hrunaprestakalli, flestir að tölu
til í Reykjavíkurprestakalli: 725.
í 15 prestaköllum höfðu altaris-
göngur fallið niður, sumpart vegna
messuvínsleysis sökum aðflutnings-
banns og erfiðra samgangna.
Kl. 41/? siðd. flutti séra Gísli
Skúlason, Stóra-Hrauni, erindi um
altarissahramentið og notJcun }ess.
Síðan fóru fram umræður um það
l“\IITuri3 (höfuðbækur)
af ýmsum litum
nýkomið í verzlun
yínðrésar jónssonar,
*
Eyrarbakka.
mál og var þeim ekki lokið er
fundi var slitið kl. 71/*.
Kl. 81/2 flutti biskup fyrirlestur
í dómkirkjunni: Maðurinn Jesús
Kristur.
Þá var aftur gengið til fundar-
staðar og haldið áfram umræðum
um altarissakramentið og leiðirn-
ar til að stemma stigu fyrir frek-
ari afrækslu þess í söfnuðunum.
Var fundi slitið V* stundu fyrir
miðnælti.
Föstudag 28., kl. 9 árd., var
fundur settur með sama hætti og
áður.
Skýrði biskup frá málaleitun frá
„Komité for Samvirke mellem
Nordens Folkekirker", sem sett
hefði verið á fót næstliðinn vetur
fyrir forgöngu dr. N. Söderbloms,
erkibiskups Svía — um hluttöku
íslenzku þjóðkirkjunnar (sem hinn-
ar 4. af þjóðkirkjum Norðurlanda)
í norrænu bandalagi til samvinnu
á komandi tíð og um tilnefningu
sérstakra fulltrúa fyrir ísland í
miðstjórn þessa samvinnubanda-
lags, ef menn óskuðu þess. Kvaðst
biskup þegar hafa svarað þeirri
málaleitun til bráðabirgða á þá
leið, að íslenzka kirkjan svo sem
sjálfstæð þjóðkirkja væri með í
þeim fólagsskap og ætti sína sér-
stöku fulltrúa í miðstjórninni.
Hefði hann tilnefnt þrjá (S. P.
Sivertsen próf., séra Gísla Skúla-
son og sjálfan sig) fulltrúa, en
áskilið sér að auka þá tölu ef
synodus fyndi ástæðu til. Var
þessu máli vel tekið af presta-
stefnunni, og hvað fulltrúatöluna
snertir, látið sitja við það, sem
biskup hafði gert í því.
Enn gerði biskup grein tilrauna,
sem í undirbúningf væru, til að
koma á fót nánara sambandi milli
dönsku og íslenzku kirkjunnar og
starfsmanna þeirra, fyrir forgöngu
prestanna, Þórðar Tómassonar og
Arne Möllers, til eflingar safnað-
arlífinu og til samúðarauka með
þjóðum beggja landanna. Var því
máli tekið ágæta vel og samþykt
nefndarkosning til þess af vorri
hálfu, að styðja að framgangi þessa
máls. í nefndina voru bosnir auk
biskups þeir, Eggert próf. Pálsson,
Bjarni Jónsson, Gísli Skúlason og
Friðrik Friðriksson.
Loks var rætt um stofnun ís-
lenzks prestafélags fyrir land alt,
til þess að gæta hagsmuna ís-
lenzku prestastétþarinnar. Reifðu
málið þeir séra Gísli Skúlason og
docent Magnús Jónsson, og urðu
um það hinar fjörugustu umræð-
ur, er allar hnigu að því, að halda
fram mikilli nauðsyn slíks alls-
herjarfélagsskapar presta landsins,
en fundurinn entist ekki til að
lúka máli, og var því umræðum
frestað til fundar síðdegis.
Kl. 4Vs flutti prófessor S. P.
Sívertsen fyrirlestur: 1 hvaða
merkingu og hversvegna nefndi
Jesús sig „mannsso7iinn“?
Að fyrirlestrinum loknum var
haldið áfram umræðum um stofn-
un prestafélagsins, og lauk þeim
svo, að samþykt var nú þegar að
setja slíkt félag á stofn, kjósa
framkvæmdarnefnd til bráðabirgða,
til þess að greiða fyrir málinu,
semja lög 0. s. frv. I þessa fram-
kvæmdarstjórn voru kosnir með
biskupi þeir, séra Eggert Pálsson,
séra Magnús Jónsson, próf. S. P.
Sívertsen og præp. hon. Skúli Skúla-
son. Gengu allir viðstaddir fund-
armenn þegar í félagið.
Enn hreyfði biskup nauðsyn
þess að stemma stigu fyrír sölu
prestsetursjarða í landinu í presta-
köllum, sem lögð væri niður eða
stæði til að leggja niður með sam-
einingu, vegna hugsanlegrar end-
urreisnar slíkra prestakalla á kom-
andi tíð. Var samþykt tillaga um
að óska þess, að hætt væri allri
slíkri sölu prestsetursjarða.
Þá skýrði biskup frá samskot-
unum til Hallgrímskirkjunnar á
liðnu ári, er fengið hefðu beztu
undirtektir hér sunnanlands. Skor-
aði fundurinn á presta landsins
að halda áfram þeirri fjársöfnun.
Ennfremur var minst á 200 ára
dánarminning Jóns biskups Vída-
líns á næsta ári, og hve vel hefði
farið á, að honum hefði þá verið
reistur minnisvarði (í líkingu við
Hallgrímsvarðann við dómkirkj-
una) í því tilefni. Biskup hefði í
sínum vörzlum ca. 120 kr., sem
gefnar hefðu verið í því skyni, en
hrykkju skamt nema viðbót feng-
ist.
Að síðustu þakkaði biskup fund-
armönnum góða fundarsókn og —
setu, og árnaði fundarmönnum
heilla og blessunar drottins.
Var þá lesinn kafli úr ritning-
unni, flutt bæn (séra Fr. Fr.) og
sálmur sunginn — og með því
fundi slitið,
Bróðerinsar
í miklu úrvali nýkomnar í
verzlun Andrésar Jónssonar,
Eyrarbakka.