Lanztíðindi - 07.01.1850, Qupperneq 2

Lanztíðindi - 07.01.1850, Qupperneq 2
34 það til að samþykkja gjörðir sínar, en fegar stjórninni er skipt eptir málefnum og sinn hefur hverja stjórnar- grein á hendi; af jtrí að allir í fjelagsstjórninni starfa að sama verki, f>á hlýtur j>eim öllum að vera jafn um- hugað um að fá alþingi til að leggja samþykt sína á samvinnu þeirra og leggjast því allir á eitt í þessu efni; kann þeím þá heldur að takast að skipta þing- mönnuin með sjer til að fá þá á sitt mál, en þegar hver einstakur eptir hinu stjórnarforminu á í höggi við allann þingheim, sem hann getur ekki látið sjer koma til hugar að leiða eða lokka. Jtað verður hjer ekki talið Qelagsstjórn tíl gyldis, að málin verði þá vandlegar skoðað og rædd en ella, því að bæði er það, að eng- inn á að takast lanzstjórn á hendur, sem er ófær til þess, og líka getur hann alltað einu ráðfært sig við hina stjórnendurna, þegar eitthvert vandamál kemur fyrir, þó hann einn bafi ábyrgð þess á hendi, einsog þó þeir hefðu hana sameginlega. er Cle* lagsstjórn þurfi ekki nema eina skrifstofu og að það verði kostnaðarminna fyrir landið, en að láta hvern stjórnenda hafa skrifara sjerilagi; en þó er það aðgætandi, að þessi eina skrifstofa þyrfti að vera þeim mun stærri, þegar öll stjórnarmálefni lanzins kæmu saman á einn stað, og þaraðauk þyrfti þá að setja mann yfir skrif- stofuna, sem hefði meiri laun en skrifararnir, svo þessi tilhögun yrði ekki kostnaðarminni, heldur, ef til vill, kostnaðarmeiri og þvi eins í þessu sem öðru tilliti verri fyrir landið. Jiað væri lika kynlegt fyrir okkur að taka það stjórnarform upp, sem nú er allagt íDanmörku einsog annarstaðar þar sein stjórnarhót er komin á og væri þá nokkru nær að una við þá stjórnarskipun sem nú ■er, en að hverfa aptur til hins forna og úrelta, þvíað það væri ekki framför, heldur apturför. ---------•«<----------- Siðan alþingi var slitið 1847, eru frá stjórninni út komin þessi lagahoð og reglugjörðir viðvíkjandi Islandi: 1. Tilskipan frá 27. mai 1848 uin nýan jarðadýrleika á Islandi. 2. Reglugjörð fyrir þá menn, sem meta eiga jarðir á Islandi, til þess að nýr dýrleiki verði á þær lagð- ur; 1. sept. 1848. 3. Reglugjörð fyrir þá menn, er ransaka eiga jarða- virðíngu þá, er gjöra skal til ad koma á þær ný- um dýrleika; 1. sept. 1848. 4. Regluhrjef handa sýslumönnunum á Islandi rið hið nýa mat fasteignanna þar í landi; 1. sept. 1848. 5. Opið hrjefö. júlí 1848, um kostnað þann erleiðiraf kjöri alþíngismanna framv. o. 11. 6. Opið brjef, s. d. nm breyting á þeim tiina, sein á íslandi þarf til að eignast sveit, eptir 6. grein. í reglug. 8. janúar 1834. 7. Opið brjef, 1S júli 1848, um það, bvernig endur- gjalda skuli hiniim konúngl. jarðahókarsjóð alþing- iskostnaðinn og önnur þar viðriðin útgjöld. 8. Erindishrjef dómsmála stjórnarherrans til hreppstjór- anna (viðvikjandi alþíngiskostnaðinum) 18. júli 1848. 9. Opið brjef um brevting á fyrirkomulagi spítalanna og læknaskipun á Islandi; 23. ágúst 1848. 10. Tilskipan 20. júní 1S49 um veiði á islandi. 11. Lög utn kosningar til þjóðfundar þess á Islandi, sem heitið er í konúngsbrjefi 23. sept. 1848; 28. sept. 1849. --------------------- Um verzlim og fiskiveiðar. (eptir C. F. Siemsen kaupmann) I. Áðuren vjer áræðum að láta í Ijósi álit vort um ▼erzlunina — sem mun vera frábrugðið hugsunnm og eptirvæntingum almennings hjerðlandif — ætluni vjer að koina ineð nokkrar skýrslur og athugaseindir um fiskiveiðar og fiskiverzlun. Fiskurinn er ekki einúngis merki Islanz í rikismerki Danmerkur, heldur er liann einnig merkilegasta varan, sein llutt er út úr landinu og „einkum er það hann, sem margir ætla, að muni hækka í verði, þegar hin svo kaliaða frjálsa verzlan kemst á“. Af þorska kyninu (gadus) eru ýmsar tegundir til og þykir misjafnt til þeirra koma i verzlaninni. Norð- urálfu þorskurinn *) (g. callarias) lieldur til all- staðar í norður höfunum, milli 50—70° n. hr. Hann er öðrum fiskitegundum fremri að gæðum þegar húið er að verka hann, en það er ekki önnur eins óvenjuleg mergð til af honuin og vestnrálfu þorskinum; hann er vanur að gánga hjer á hverju ári og kallast austan- gaungu fiskur. Af honum fæst árlega í norðurálfu höfunum hjerumhil 40—50 þúsundir þúsunda. Vest- urálfu þorskurinn (Cahliau. g. morrhua) lieldur til við vesturstrandir þessa megin lanz, einkum undir La- bradór, Nýafúndlandi og Grænlandi og er þar fjarsk- inn allur til af honum. Jess< öskur er stærri, fcitari og styttri en liinn fyrrtaldi, en bragðverri; og gengur liann lielzt inná víkur og voga þar sem kyrrt er fyrir og hafrót minnst; en því er verr ogmiður, að þetta er óvíða lijer við land þó það sje vogskorið; liann kall- ast hjcr vestangaungu fiskur eða neta fisknr af þvi að það er skjaldan á vorin, að liann verði veidd- ur á liandfæri; gengurhann hjer með höppum og glöpp- um og fer aptnr undireins og veður gjörir eða sjórok. Af neta fiski fást árlega 300 þúsundir þúsunda !). I f) j)ó ritgjörð þessi kunni, ef til vill, að hafa aðra skoðun á frjálsri verzlun en látin er í Ijósi hjerað framan bls. 14 — 16, höfum vjer þó aunganvegin viljað synja henni inntöku í blaðið, þviað bæði er hún svo fróðleg, að vjer kunnuin herra Siemsen þökk fyrir hana og lika er það sjerhverju málefni til útskýríngar, að það sje skoðað á alla vegu, munuin vjer og síðar gjöra einhverja athugasemd við ritgjörðina, þegar búið er að prenta liana alla, ef þess þykir viðþurfa. Ritst. ') I inörgum náttúrufræðum er blandað saman g. callarias og morrhua. >) Kormak segir, að 200 millíónir sjeu veiddar á capelina beitu; 100 milliónir á smokkfisks beitu; og 100 millíónir í netum á síldar og isu beitu; í allt 400 millíónir. Oken. VI. B. bls. 158.

x

Lanztíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lanztíðindi
https://timarit.is/publication/73

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.