Lanztíðindi - 01.11.1850, Síða 4
128
legrar kúgunar og er þa5 sem þannig gengur
upp og niður af manni líkt á litinn og þunn
hafrasúpa. Sjúklíngurinn finnur til brennandi
þorsta og hita innvortis, én bæði er loptið,
sem liann andar frá, sjer, iskalt, og eins túng-
an, sem optast nær er hrein og húðin sem
skorpnar saman; mestur er kuldinn á höndum
og fótum; útum kroppinn slær opt köldum
svita, andlitið verður kinnfiskasogið og náfölt,
augun dragast inní liöfuðið og kríngum þau
koma bláir baugar; sjúklíngurinn fiur þvag-
tregðu og verður hás, svo valla heyrist til
hans; slagæðin slær lint eða alls ekki; sárir
sinadrættir koma í magann, hendur og fætur
og einkum í kálfana; sjúklíngurinn missir
ekkirænuna, en hefur ekki sinnu á neinu og
hefur þó opt krapta til að vera á fótum fram-
undir andlátið.
Bezt af öllu er að sjúklíngurinn geti sem
fyrst svitnað og mesti uppgángurinn og nið-
urgángurinn verði sem fyrst stöðvaður og
þess vegna á sjúklíngurinn strax að hátta,
þekja sig vel í heitum rekkjuvoöum og reyna
til að svitna annaðhvort ineð því að drekka
sárkalt eða\elheitt. Vilji hann drekka heitt,
má það vera reglulegt tevatn með Cor/nac eða
madera víni saman við, eða samansett af
Pebermynthe, Chameel og Hyldc blómstrum
og á að drekka einn bolla af því hvern klukku-
tima, svo heitu sem verður og má láta í það
eina matskeiðaf Minderer -Avo^um, sem líka
eiga bezt viðbörn; drekki sjúklíngurinn kalt,
áþað að veraiskalt uppsprettuvatn og skal hann
afþví drekka að minnstakosti hvern hálfan tíma
svo sem svarar stóru ölglasi og taka jafn-
framt hvern klukkutima 20— 30 kamphóru
dropa, sem líka má taka inn þó heitt sje
drukkið til skiptis við minderer dropana.' Opt
eru köldu drykkirnir betri til að stöðva ó-
gleðina, þorstann, uppgánginn og niðurgáng-
inn. Núa skal undirlífið annanhvern tíma ineð
þykkri kamphóru olíu oa láta í hana hjer-
umbil \ part af hipum venjulegu (simple)
opíumsdropum; af þeim á líka að taka inn
í vatni 5—10 dropa annaðlivort einum saman
eða saman við hin meðölin, hafi þau ekki lnifið
eins og til var ætlast. Sje húðin ísköld,
skal á íleiri stöðum í senn, bæði á undirlíf-
inu, upp ineð lærunum og siðunum leggja
brúsa með heitu vatni í, eða posa með heit-
um sandi, ösku eða höfrum, og viö liand-
leggi, kálfa ogí hjartastað sennepskökur, hnoð-
aðar úr sennepsdupti, sem hrært er út í volgu
vatni og siðan lagt innaní fínt ljerept eða
dregið í það. Jar sem nóg mannhjálp er,
þá er það ágætt til að verma húöina, að fleiri
en einn núi hana nokkra stund með burst-
um eða ullarleppum, sem drepið er of-
aní brennivín og má láta í það salt eða pip-
ar, fulla matskeið í hvern pela, eða terpentín-
olíu. (Frauihaldið síðar).
Lausn frá embœtti.
Dr. philos. H. Scheving hefur feingið lausn frá
yfirkennara einhætti sínn við hinn lærða skóla fró I.
októbermánaðar þ. á.
Brauöaveitinyar oy frami.
Cand. philos. Gísli Magnásson, sem í nokkur ár
hefur lesið málfræði við háskólann, er frá J. okt. þ. á.
settur kennari við Reykjavíkur lærða skóla. Mælt er,
að Th. Jónasson dómari í landsyfirrjettinuin sje af
konángi kjörinn til að mæta ó þjóðfundinum að sumri.
Veöuráttufar i Reykjavík í septemberm.
Fyrstu 12. dagana af þessum mánuði var góð
veðurátta með hægri austanlandnyrðíngskælu, og jafn-
an þurt veöur, og nýttist því heyskapur manna vel.
Frá þeim 12. til 20. var austan og sunnanátt með rign-
íngum, en þornaði aptur eptir þann 20. með ýiriist
logni og góðviðri, eða landnyrðíngskælu og liægri vest-
anátt, en rigndi skjaldan að mun, svo góð nýtíng
hefurorðiðá heyjum allstaðar hjer nálægt.
T ,r , , i í hæstur þann 7. 28 þuml. 5 1. 8
Loptpmydarmæl. ’ lægsturF _ 2a 27 - , - ,
Meðaltal allt lagt til jafnaðar .... 27 — 1O-33
Hitamxelir
hæstur........13. + 13° Ream. hiti.
lægstur nótt þess 23. . 0,6 —
Meðaltal allt lagt til jafnaðar . . . -f- 7°,7 —
'Yratn, erfjelt á jörðina, varð . , 2,4 þuml. djúpt.
J. Thorstensen. Dr.
------------------------
Ritstjóri P. P'etursson.