Ný tíðindi - 10.03.1852, Síða 4

Ný tíðindi - 10.03.1852, Síða 4
28 fyrirfarandi). 'Sumir af þessum hákallaveiðendum hafa aflað all vel, en fleiri þó fremur illa. — Engra skip- skaða er getið að vestan. — J>að er sagt, að kaupstað- irnir vestra sjeu nú komnir á þrot með flest. 7. dag þ. m. lagði póstskipið á stað frá Reykjavík. Meðal farþegjanna á því var assessor Christjánsson, kammerráð, og kona hans, og fylgdu þeim hjeðan hræsnislausar velförnunaróskir ýmsra af löndum hans, bæði skyldmenna hans og vandamanna, og þeirra mörgu, sem notið hafa veglyndis hans í velgjörðum, og þeirra, sem nú taka hjartanlegan þátt í högum hans. Prestaköll. Veitt: Kálfafell á Síðu stud. theol., amt- skrifara Jóni Sigurðssyni; G arður í Kelduhverfi sjera Birni Arnórssyni presti í Hvammi í Skagafjarðarsýslu; og Hellnaþing í Snæfellsnessýslu kandíd. theol. Jóni J>orvarðarsyni. 0 v e i 11: 1. K i r k j u b æ r í Tungu í Norðurmúla- sýslu met. 61 rbdd. 64 skk., augl. 20/febr. (sbr. 22. bls. hjer að framan). — 2. Staðurí Grunnavík í Norður- ísafjarðars., met. 20 rbdd., augl. 4. þ. m. — 3. H v a m m- u r í Skagafjarðars., met. 17 rbdd. 4 mörk 3 skk., augl. s. d. —4. N e s í þingeyjars. met. 16 rbdd. 2 mörk 4 skk., augl. s. d. — 5. Reynistaðárklaustur í Skaga- fjarðars., met. 32 rbdd. 2 mörk 8 skk., augl. s. d. Eme- rítprestur er í brauðinu 73. ára g., sem nýtur ár hvert, á meðan hann lifir | af öllum föstum tekjum prestakalls- ins. — 6. Sauðlauksdalur í Barðastrandars. met. 38 rbdd. 5 mörk, augl. s d. Emerítprestur er í brauðinu 75 ára g., sem nýtur árlega á meðan hann lifir £ af öll- um föstum tekjum þess, þar að auki veitist honum ept- irgjaldálaust hjáleigan Dalshús til ábýlis, meðan hann þarf þess við, samt £ silungsveiðar í svo nefndu Dals- vatni öldungis á eigin kostnað. Mannalút og slisfarir. Hannes Arnórsson, prestur á Stað í Grunna- vík, drukknaði á kaupstaðarferð á ísafirði, 18. dag des- emberm. í vetur. Andres Jónsson, bóndi á Hvítuhlíð í Strandas., dó 24. dag desemberm. í vetur. G í s 1 i M a g n ú s s o n, bóndi á þambárvöllum í sömu sýslu, dó 13. dag januarmán. í vetur. Maður varð úti á Hrófá í Steingrímsfirði í hríðinni 23. sunnud. e. þrenningarhátíð, og í septembermánuði drukknuðu 2 menn í Hrútafjarðará. það voru kaupa- menn úr Miðfirði á heimleið vestur í Olafsvík. J ó n bóndi Sigurðsson á þverfelli í Lundarreykjadal varð úti í byl, og hefur ekki fundizt. Auglýsingar. Með auglýsingu þessari, sem kunngjörð verður bæði á hjeraðsþingi og í hinum konungl. ísl. landsyfirrjetti, eru allir þeir, sem til nokkurra skuldaskipta eiga að telja við dánarbú prestsins í Breiðuvíkur - þingum, sjera Jósefs heitins 31agnússonar, er andaðist 9. nóvemberm. árið sem leið, kvaddir til að mæta, áður næstu fardag- ar líði, fyrir skiptaráðanda í Snæfellsnessýslu: þeir til að bera fram skuldakröfur sínar og færa sönnur á, sem skuldir eiga að heimta, en hinir til að greiða skuldir, sem þær eiga að gjalda; svo og erfingjar hins látna, til þess að sanna erfðarjett sinn og taka móti arfi, ef nokkur verður afgangs skuldum. Búðum 5. dag janúarm. 1852. P. Melsted. Nú er byrjað að prenta hjer hinar „Nýju Hugvekj- ur“, sem jeg auglýsti í febrúarörk þjóðólfs, því stipt- amtmaður hefur gefið mjer kost á að láta prenta þær með þeim kjörum, sem jeg gat ekki vænt betri, að minnsta kosti hjer. Bókin inniheldur hjer um bil 100 hugvekjur, og verður allt að 20 örkum, í sama broti og á sama pappír, eins og hið nýprentaða Nýja Testamenti. Jeg vænti þess að hún fáist til kaups hjá mjer í alskinni úr því líður á næsta sumar; og lofa jeg því að selja hana með sanngjörnu verði, sem jeg enn eigi þori að ákveða, þar jeg éigi veit upp á víst, hvað bókin verður stór. Jeg áleit rjett, að láta þetta berast sem fyrst út um landið, svo ef einhverjir í fjarlægð vildu eignast bókina fyrir veturinn, þá gæti þeir búið sig undir það, með því að sjá um að jeg fái borgun henn- ar út í hönd; því öðruvísi sendi jeg hana ekki fyrst um sinn í fjarlægar sveitir, þar hún er ekki framar eign mín en prentsmiðjunnar, eptir skilmálum við stiptið. Jeg tek með fegins hendi á móti hverju nafni, sem fal- ar af mjer bókina, og með þakldæti þegar verð hennar fylgir með. tSvb. Hallyrímsson. Eptir skýrslum prófastanna voru, við árslokin 1850, rúmar 59000 manns á öllu Islandi. þar af voru þá í Reykjavíkurbæ 1252, en í Seltjarnarneshrepp 356. Við árslok 1851 voru í Reykjavíkurbæ 1323, en í Seltjarn- arneshrepp 338. Arið 1851 fæddust í Reykjavíkursókii 51, en 46 dóu; þar af 21 yngri en 10 ára. Leiðrjetting: 1 5. og 6. bl., bls. 22, 2. dálki, sten<j- ur Katrín fyrir Kristín. Ritstjóri: M. Grímsson.

x

Ný tíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný tíðindi
https://timarit.is/publication/77

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.