Ný tíðindi - 29.07.1852, Blaðsíða 4

Ný tíðindi - 29.07.1852, Blaðsíða 4
64 ad henni gcti orðið stöðugt fram haldið, svo að safnið geti komið út smásaman, 1 eða 2 bindi á ári. En svo er gjört ráð fyrir, að safnið allt verði 6 bindi, hvert til hérumbrl 50 arka, og fá áskrifendur hverja örk prent- aða fyrir 6 skildínga, en fyrir aðra má hækka verðið. J)ó við ekki gctum lýst safni þessu til hlítar í stuttu máli, skulum við geta þess, að það nær frá 1096 til 1848; í því verður fyrst tíundarstatúta Gizurar biskups, hinar helztu réttarbætur til Jónsbókar, helztu alþíngis- dómar og samþyktir, tilskipanir, konúngsbréf og úr- skurðir, reglugjörðir og erindisbréf, stjórnarráðanna bréf hin lielztu, einnig gjafabréf til stiptana, og fleira það sem helzt þykir merkilegt. Til þess verður vísaá, hvaðan sérhvað er tekið, og einkanlega verður þess gætt við sérhvert lagaboð, að skýra frá hvort það er auglýst á Islandi eður ckki. Hvert bréf um sig verður prentað á því máli, sem það er frumritað á. I þeirri von, að margir, einkum vísindamenn og embættismenn, muni vera okkur samdóma um nauðsyn og not þau sem, að þessu safni mætti verða, bjóðum við hér með öllum þeim, sem vilja eignast það, til að rita nöfn sín á blað þetta, og getum við þess, að safnið kemur út hjá bóksala háskólans lierra A. F. Höst hér í bænum. Kaupmannahöfn 25. Júní 1852. Oddgeir Stephensen, Jón Sig-urðsson, jústizráð og forstöðumaður hinn- skjalavörður. ar íslenzku stjórnardeildar. (í5r t>eir sem vilja rita sig fyrir bók þessari þurfa ekki annað en snúa sjer að sýslumanni sínum eða bæjar- fógetanum í Reykjavík, því þcir hafa boðsbrjefin í hönd- um. Ritstj. í Helgi Helgason. Skiptist i heimi skin og dimma, frjófgun, visnun, frost og hiti, farsæld, örbirgð fæðing, dauði, gleði og sorg að guðs lögboði. Helgi son Helga hjer leggst örendur, öldungur Mýra aldar nitjándu, dannebrogsmaður, dáðrakkur bóndí, fulltrúi sýslu á fundi þjóðar. Sættasemjari, sveitarstjóri, ástríkur faðir og ektamaki, bezti einn smiður, hókamenntavinur, fjölvitur, stilltur og fús til hjálpar. Á æskutíð bar hann umfram marga hetjusál í húsi traustu, lánsamur, fylginn til Iands og sjáfar svo margir nutu hans manndómsverka. Aldurshnignun, eins og veiki, þolgóður bar sem þrautir allar; sál hans undan sjúkdómsfargi fjörug sjer lypti til föður Ijósa. Á hallarvegg Mýra til heiðurs og varnar skarð er nú fyrir skildi föllnum, en ætlbaðmar lifa, óskum þeim heppist, að feta nærri föðursporum. Hví ganga tár um gráthólgnar kinnar, þá óvinur lífs um allar leiðir geisar til vor, sem griuimlynd hetja, og vini hrífur úr voru skauti? Ilver sendi þig sem hrífur hurt alia: filki rikan sem förumanninn? það er alvaldur allra faðir, er hörnum veitir það hezt kann haga. Syrgjum því ei vorn sæla hróður, urinuin honum þess alfaðir veitti, óskuin heldur, sem eptir lifum að skarð hans fylli, sá skilnað rjeði. Eins sem hann reyndist ætt sinni' og fróni til hjálpar og prýði, hvar til spurðíst, svo mun hann líka í sælla heimi llokk útvaldra fylla og prýða. Nú er sem oss í eyrum hljómi sigurhróp hans og samstemma hinna útvöldu, sem hann endurlevstan heimta úr helju til himinsælu. Samrómum þeim, úr saur’gu dupti hefjuin vorn anda til himnajöfurs, og lofum hann fyrir lausn vors hróður, sem einn ræður hetur, en öll heiins vizka. Eins og þá sól í æginn gengur, gullroðna færir geisla skýjum, minning hans daga á móðurjörð ljómar, og geisla skínandi gefur til himins. En þjer, sem grátið ástvin liðinn, gætið þessa, að guð Iætur þjena elskutár yðar, yðar að fága skrúða eiginn í eiiifðinni. Farsæli bróðir, fullsæll orðinn, vona’ eg þig faðma vinarörmum, þá losast hjeðan frá líkainsböndum, og fagnandi bíð þess fundar sæla. Siyurður Helyason. Frjettir. Árferði hjer á landi segja menn hvervetna í betra, eða jafnvel bezta lagi, nema hvað menn kvarta víða um þerri- leysi á töður sínar. — Norðurlandspósturinn kom til Reykjavíkur 23. d. þ. m., og sagði hann þau helzt tíðindi, að Norðlendingar hafi fengið prentsmiðju sína inn á Akureyri. vantar enn menn til hennar, og er það skaði mikill; því hjerálandi hafa menn eigi marga

x

Ný tíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný tíðindi
https://timarit.is/publication/77

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.