Hirðir - 18.07.1859, Blaðsíða 6
134
regluni sem næst má komast, og bibjum vjer því herra stiptamt-
manninn, ab senda öllum sj?slumönnum eptirrit af þessu brjefi voru,
svo ab þeim af þessum ákvörbunum, sem alstabar má viS koma,
verbi fylgt, ab því leyti engin önnur rábstöfun verbur gjör á stábn-
um, annabhvort af oss eba hinum útsendu dyralæknum".
Skal jeg því bibja ybur herrar, sýslumenn, sýslu- og hreppa-
nefndarmenn, alla sameiginlega, og sjeihvem svo sem til hans nær,
ab fara eptir reglum þessum, er snerta undirbúninginn til babanna
og böbunina sjálfa, og af öllum mætti hvetja og styrkja almenning
til ab breyta eptir þeim sem grandgæfiiegast.
íslands stiptamthúsi þann 2. júlí 1859.
J. EÞ. Ts-amj»e.
I'ctta brjef stiptamtmannsins, sem hjer stendur á undan, er, eins
og sjá má, upphaílega til sýslumannsins í Gullbringusýslu, en er þó
sent til allra sýslumanna, sýslu- og hreppa-nefnda í suburumdœminu,
og reglur þær, sem þar eru settar, um böbun saubfjárins gilda og
fyrir allt suburumdœmib, nema ab því einu, ab í því er tekin frain
skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í babsveitir, og í því nefndir
til 3 menn, er stjórna skulu böbunum í þessari sýslu. I Arnessýslu
eru þeir, sem nú skal greina, skipabir til ab stjórna böbunum:
1. f Hraungerbishrepp, Villingaiioltshrepp og Gaulverjabœjarhrepp:
Guðmundur Ólafsson á Asgarbi.
2. í Stokkseyrarhrepp og Sandvíkurhrepp: Bjarni Ilannesson á Os-
eyrarnesi.
3. í Selvogshrepp, Ölfushrepp, Grafningi og þingvallasveit: Magnús
Sæmundsson á Aubsholti, og Ingimundur Gíslason á Króki í
Grafningi.
4. í Skeibahrepp, Ilrunamannahrepp og Gnúpverjahrepp: Þorhell
Jónsson á Ormstöbum í Grímsnesi.
5. í Grímsneshrepp og Biskupstungnahreppi: Magnús Gíslason á
Villingavatni í Grafningi, Þorsteinn Þorsteinsson á Uthlíb, Jón
Ilalldórsson á Búrfelli.
í Rangárvallasýslu og Borgarfjarbarsýslu eru eigi enn skipabir
neinir þeir, er stjórna skuli böbunum, meb því þar eru dýralæknar,
siun í hvorri.