Íslendingur - 12.03.1863, Qupperneq 6

Íslendingur - 12.03.1863, Qupperneq 6
166 Rd. Jt /3 Fluttir 7575 » 7 4. Eign í pressum, letri og ýmsnm öðrum áhöldnm, farfa, tjöru og 45 rd. í múrsteini og kalki, og 40 rd. í handriti ....................................................... 3138 2 1 5. Bækur, með þeirru söíuverði, fyrir......................................... 4659 4 12 6. í pnppír 16 ballar, 8 rís, 10 bækur, 12 arkir, fyrir.................................. 657 3 7 7. Ógoldin skuld til leturgjörðarmanns Fr. Brede í Kaupmannahöfn..................... 8. Innistandandi hjá Drewsen & Sönner í Kaupmannahöfn................................ 9. í peningum hjá forstöðumanninum . . . )................................. 34 15 711 Samtals var þetta arkatal: Rd. 6947 » 16791 0 23738 » 1 11 1K7Q1 n g 8 2 arkir endir á arkir af 2. árg. Hirðis byrjun; 13arkir Passíu- En þar ekki var búið að fullprenta Sálmabók- Athugagr. Af bókum þeim, sem prentaðar voru fvrir prentsmiðjuna á þessu ári, Hallgrírnskveri II. útgáfu; 8 arkir af Hirðir 1. árg. endir; 3 sálmenna, 29. útg.; 21 ark af Sálmabókinni 12. útg. byrjun. ina og 2. árg. Hirðis, þá var upplagið ekki af þessum bókum reiknað til peninga í eptirstöðvunum í þessum reikningi. Á reikninginum sjest, að til hins nvja viðbætis og pakkhússins og smáviðgjörða á hinu eldra húsi, hafa gengið 1009 rd. 2 mörk 12 sk., þar af er óbrúkað efni, mest í múrsteini fyrir 45 rd., selt fyrir 13 rd. 2 mörk 10 sk., og tjara til hinna eldri húsa 8 rd. 1 mark 8 sk., það sem því hefur gengið til viðgjörðar- innar að dalatali er 942 rd. 4 mörk 10 sk. Skrifstofu prentsmiðjunnar í Reykjavík, 31. desember 1858. Einar J>órðarson. Fá orð nm forng-ripasafnlð. Vjer viljum leyfa oss, að vekja sjerlegt athygli landa vorra fjær og nær á ritgjörð hr. kandidats Flelga Sigurðs- sonar um ísienzkar fornmenjar og forngripasafn, er lesa má í næst undangengnu No. íslendings. Hann hefur þar hafizt máls á því efni, sem öllum íslendingum ætti að vera annt um, og sem þeir ættu að styðja í orðiogverki; hann hefur sýnt, að honum er alvara með þetta mál, þar sem hann hefur gefið þá fornmenjagripi er hann átti, til þess að grundvaila þesskonar safn. Vjer höfum heyrt, að liann hafl þegarsnúið sjer til stiptsyfirvaldanna þessu máli viðvíkjandi, og að þau hafl brugðizt vel viö og vottað honum þakkir fyrir þá föðurlandsást, er hann þannig hafi látið í Ijósi. En hjer við má ekki lenda. Oss virðjst nauðsynlegt að stiptsyfirvöldin beitist nú fyrir málið, úr því Helgi hefur beint því að þeim, og að þau gefi út ein- hverja auglýsingu um eitthvert fyrirkomulag á því, ellegar þá, ef þau þykjast ekki hafa köllun til þess, að þá taki sig saman fáeinir menn i nefnd hjer í Reykjavík til að stýra málinu og láta eitthvað úr því verða annað en ein- tómt orðasafn og blaðamál. Slíkt mundu aðrar þjóðir gjöra, og við því munu menn búast f öðrum löndum, að einhver verði framkvæmdin, þegar þeir frjetta að byrjað sje af einum manni svo drengilega, sem hann er þegar búinn að sýna. J>að væri annars mjög merkilegt, ef' ís- lendingar gæfi ekki gaum, og hann fullan og fastari, að þessu þarfa og fagra fyrirtæki, að safna saman og geyma á einum stað sem flestar fornmenjar sínar, og það í land- inu sjálfu. I>ví að reynslan sýnir þó, að íslendingum hefur ekki verið, og er enn þá ekki, svo fast í hendi með fje og forngripi, þegar mælzt er til þess hvorstveggja frá út- löndum. það hefur stundum lilið svo út eins og Islend- ingar ættu ekkert föðurland, eða að minnsta kosti ætti allstaðar annarstaðar heima, en á íslandi. Nú er mál tii komið, að koma heim aptur, lina lítið' eitt á aiheimsást- inni, en herða hjá sjer föðuriandsástina og ’láta hana sjást í bróðurlegum samtökum til þarfiegra fyrirtækja ís- landi til gagns og þjóðinni til sóma. — X. — (Aðsenf). J>egar jeg fór að lesa »J>jóðólf» 26. dag febrúar m. þ. á. og sá hina fögru fyrirsögn. »J>rjár hugvekjur um betriverkun og notkun sjáfarafla og sjófangs», sem vekur svo miklar vonir hjá lesandanum, bjóst jeg sízt við af öllu, að hitta þar aðrar cins klausur eins og klausuna um fiskiverzlun herra C. F. Siemsens á Spáni, sem alls eigi snertir þetta mál, en sem herra Svb. Ólafsen hefur svo meistaralega tekist að skreyta svo fögrum litum, að hugur lesandans ósjálfrátt leiðist til þess, að fara að hugsa um aldingarðinu Eden. J>að má rita, segja, prenta og lesa margt, en það verður lesandanum ógeðfellt, þegar það sem ritað er, er borið lofi og smjaðri sem ails eng- inn fótur er fyrir, því að það er öllum einsætt, að hver sá kaupmaður, sem sendir íisk til Spánar og tekur til þess að eins þann fiskinn, sem talinn verður góð verzlunar- vara, gjörir það bæði sjer og kaupandanum í hag, svo að varan verði útgengilegri á Spáni; en þetta er engin ný- ung sern herra Siemsen hafi byrjað á; því að stórkaup- maður P. C. Iínudtzon sendi mörgum árum áður en herra Siemsen hóf verzlun á íslandi, valinn fisk til Spánar, með því það er það land, þar sem fiskur er mest hafður til matar, og þar sem hægast er að selja hann í stórkaupum; eins og hann líka hefur í mörg ár keypt og flutt til út- landa hrogn og sundmaga, en sú verzlun var áður ókunn hjer á landi, og get jeg því eigi skilið í, að herra C. F. Siemsen, sem fylgt hefur straumnum ei.ns og aðrir, og eins og eðlilegt er, selur fisk sinn þar sem bezt gengur, eigi, öðrum kaupmönnum fremtir, hinn órnetanlega heiður og þakkir skildar af íbúum Suðurlands, fyrir þetta, því að herra Svb. Olafsen nnin þó ekki ætla sjer að segja það ! neinum, að það sje herra Siemsen að þakka, að fiskurinn er um þessi árin í svo háu verði; þar það einungis er undir því komið, hvernig fiskiaflinn heppnast í Norvegi og Newfoundlandi, og þartil hefuröll matvara með ári hvcrju hækkað í verði yfir alla norðurálfu, svo eptir þessu er ekki meira en sjálfsagt að fiskurinn bæði geti hækkað og lækkað í verði án þess að einveldi sjerstaks manns ráði við slíkt; jeg get til dæmis hjer upp á sagt og sannað, að frá ári 1825 til 1830 kostaði í Ilanmörku 1 pund af smjöri 12—16 sk. en nú kostar það 40—48 sk.; þá kost- j aði 1 pund af kjöti 3—5 sk. en nú 12—16 sk.; 1 pund af fleski 5—6 sk. en nú 20—22 sk. og þetta leiöir allt á næstum óskiljanlegan hátt af ástæðunum eins og gæð- um varanna, en enganveginn, herra Olafsen! af herra C. F. Siemsen. I mirz máu. 1863. Vottur sannleiham.

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/86

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.