Íslendingur - 25.04.1863, Blaðsíða 6

Íslendingur - 25.04.1863, Blaðsíða 6
190 són hafði orðið fvrri til að ná góðu vígi við Harpers Ferry, þar sem leið liggur yfir fljótið. Stóð þá taflið svo nokkurn tíma þangað til í oktober, að Mac Clellan náði þessu vígi og hjelt suður í Yirginíu; en 7.nóv. setti Lin- coln hann frá hervöldum og fekk þau í hendur Burnside hershöfðingja, átti nú að skríða til skara, og skyldi áhlaup gjöra á Sunnanmenn í ýmsum fylkjum í sama mund. þá var það, að meginherinn hittist hjá Friðriksborg við Rappa- hannock-fljót í Virginíu, og varð þar hin mesta orusta; Norðanmenn biðu ósigur og misstu 15000 dauðra manna og særðra, og Ijetu hefjast undan norður á bóginn. f>á fór skammdegið í hönd og kom þá nokkur kyrrð á ófrið- inn þangað til daginn fór aptur að lengja. J>aí> segja menn, að hvorki verði yfirforingjunum Mac Clellan eða Burnside um kennt þó Norðanmönnum hafi gengið svo erfitt, sem raun hefur á orðið, heldur sumum öðrum hershöfðingjum Norðanmanna, og svo sjeu sumir herflokkar þeirra óhlýðn- ir og kærulitlir og berjist með hangandi hendi. Síðan Friðriksborgar orustan varð hefur ekkert sjerlegt borið til tíðinda við herinn, en nú má með hverri ferð búast við tíðinðum þaðan. Hoolcer heitir sá, sem nú hefur tekið við yfirráðum Fótómaks-hersins eptir Burnside. Innlendar frjettir. Póstskipið, sem hingað kom 8. þ. m., lagði út hjeðan til Kaupmannahafnar 19. þ. m. snemma dags; á því fóru utan verzlunarmaður P. C. Knudtzon og kandid. med. Magnús Pjetursson Stephensen. Tvo hina næstu daga eptir að skipið fór var hjer bjartviðri og norðanátt, síðan gekk vindur til austurs, en veðurátt má heita allgóð, þó er talsverður snjór til sveita, og ailstaðar er talað um heyskort. Fiskiafli má heita afbragðsgóður hjer á inn- nesjum. Á sumardaginn fyrsta (23. þ. m.) var ágætt sjó- veður, og mátti þá heita landburður á Seltjarnarnesi, og fiskurinn vænn. Hjer eru komnir háir hlutir. Syðra er víst talsvert minni flskiafli, þó vitum vjer það eigi glöggt. Fyrir austan fjall er farið að fiskast þegar á sjóinn gefur, og sagt var að næstl. mánudag hefði fiskast vel í f>or- lákshöfn. í Vestmannaeyjum voru fyrir nokkru síðan sagðir 3 hundraða hlutir. Að vestan er sagt fiskilítið. — Austur með Söndum er sagður mikill trjáreki í vetur. Skipkoma. Fyrir nokkrum dógum kom skip frá Glasgow (áSkotlandi) til verzlunar Hendersons kaupmanns hjer í Reykjavík, hlaðið alls konar vöru. Skipið er þrí- mastrað, yfir 130 lestir á stærð. Bráðum er von & öðru skipi til sömu verzlunar með við í hús það hið mikla, er hann ætlar að byggja hjer í Reykjavík, þar sem bær Didriks sál. Iínudsens stendur. Sagt er að húsið eigi að verða 40 ál. langt og 30 á breidd, tvíloptað og með »kvisti«; þar á verzlunarbúð hans að vera, o. s. frv. 23. þ. m. komu hingað 2 skip, annað er frakknesk fiskiskúta, eitt- hvað biluð eða brákuð, liitt er frá Noregi með viðarfarm til E. Siemsens. Bráðum kvað vera von á frakkneska hergufuskipinu hingað og herskipinu danska. Sumir segja að þetta danska skip eigi að liggja í Ilafnarfirði. Aðfara- nóttina 25. þ. m. komu 2 skip, annað til Knudtzonsverzl- unar í Ilafnarfirði frá Kaupmannahöfn, hitt er ofurlítil skúta frá Ila'mborg með vöru til konsúls E. Siemsens, og segja menn að Ketill hreppstjóri Ketilsson í Höf'num suð- ur hafi keypt eða ætli að kaupa þá skútu. Jarðskjálfti býsna harður fannst hjer nóttina milli 20. 21. þ. m. bálfum tíma eptir miðnætti, veður var hægt með nokkurri snjókomu. Mannalát. þann 19. þ. m. andaðist Bjarni Sírnon- arson á Laugardælum í Flóa. Ilann var faðir þeirra Guðmundar prests á Melum í Borgarfirði og Símonar hreppstjóra í Gröf í Mosfellssveit og fleiri harna. Hann mun hafa verið allt að því hálfáttræður að aldri, tvíkvænt- ur, og er scinni kona lians enn á lífi. Hann var um mörg ár hreppstjóri í llraungerðishrepp, manna knástur og fjörmeslur og svo góðgjarn og gestrisinn, að honum varð ekki meiri mótgjörð sýnd, en sneiða hjá heimili hans, eða þyggja þar ekki greiða. Enda var löngum gest- kvæmt í Laugardælum, þar sem það er i hinni mestu þjóðbraut og einhver helzti ferjustaður við^Ölfusá. Brauðaveitingar. Ilerra kandid. philologiæ, settum skólakennara, Jóni þorkellssyni veitt skólakennaraembætti við Reykjavíktir lærða skóla 21. desemberf. á. Studiosus Jóni Jónssyni Reykjalín veitt þönglabakkabrauð í þing- eyjarsýslu 15. þ. m. llann á að vígjast 26. þ. m. Áskorun. Hjer með leyfi jeg mjer að snúa mjer til landa minna, með þeirri vinsamlegu hón, að þeir með skipum næst- komandi sumar eða haust, gjöri svo vel, að gefa mjer vís- bendingar um ailar þær fornleyfar á íslandi úr trje, málmi, eða steini með rúnaletri, sem þeir vita af, eða kunna að sjá, eða heyra umgetið um allt land, með ná- kvæmri lýsingu af þeim, eða uppdráttum. þá, sem vilja sýna mjer þá velvild, að verða við þessum tilmælum mín- um, bið jeg að senda skýrslur sínar, annaðhvort sjálfum mjer til Iíaupmannahafnar, eða prófessor P. Pjeturssyni í Reykjavík, sem hefur lofað að koma þeim til mín. En hina heiðruðu blaða útgefendur á íslandi bið jeg að veita þessum línum inntöku í blöð sín. Kaupmannahófn, 16 d. marzin. 1863. Skúli Thorlacius. Anglýsing. Vjer undirskrifaðir tökum á móti ull, æðardún og öðrum vörum, og seljum þær fyrir hið hæsta verð, sem auðið er að fá í Englandi, og scndum til baka borgunina í peningum með næstu gufuskipsferð til Revkjavíkur. Aliar vörur sendar til oss verða að vera með þessari utanáskript: Messrs. Peacock Brothers, Sunderland (England). Care of Messrs. John Charles Robertson, Grangemouth. Peacock Brothers Commission Agents, Sunderland (England). Samkvæmt tilmælum í ísl. n. 18. þ. á. hls. 144. leyfi jeg mjer enn fremur ltjer með, að biðja alla þá kaup- endur og útsölumenn bl. ísl, sem enn þá ekki liafa greitt andvirði blaðsins — hvort heldur er fyrir 1. 2. eða 3. árg. — að gjöra það nú, við fyrsta tækifæri; og vona jeg að hlutaðeigendur verði þannig við þessum tilmælum, að kaupendur hlaðsins hjer í næfsýslunum greiði borg- uniná í næsta mánuði, en þeir í fjærliggjandi sýslum, með ferðum sem verða hingað — bæði með alþingism. og fl. — í júnímán. næstk. Guðbrandur Guðbrandsson. úteölumaílur 3. árg. ísl. Ábyrgðarmaður: lirnidikt Sveinsson. Preutabur í preutsraiíjuuni í Eeykjavík 1863. Einar p 6 r í> a rsori.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/86

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.