Íslendingur - 22.05.1865, Síða 6
94
þannigvona jeg, að hvermaðnr sjái, að allar gjörðir
mínar í íjárkláðamáljnu hafi haft það mark ög mið, að
hrinda stefnu stjórnarinnar í þessu velferðarmáli lands-
ins í það horf, sem samrýmzt gæti landsháttum vorum
og þar á byggðri skoðun og vilja allra hinna beztu og
vitrustu Islendinga, og skýt jeg því nú óhræddur til dóms
allra slíkra manna á landi voru, hvort þeir álíti mínar
gjörðir í þessu máli síður lagaðar til að fá lieppileg
úrslit málsins, og þá um leið, samkvæm vilja stjórnar-
innar, heldur en hið fjarskalega einstrengingslega og
óalþýðlega lækningakapp II. Kr. skólakennara Friðriks-
sonar, sem ekkert hefir við að styðjast nema rangskildan
vilja ráðgjafastjórnarinnar. Ilinum persónulegu meiðyrð-
um, sem finnast í klöguninni, og sem að eins eru rógur
um mig og ekki konp málinu við, ætla jeg mjer að
svara á aðra leið, og draga hann fyrir lög og rjett hvað
þau snertir. B. Sveinsson.
4-
t
fORSTEINN ÓLAFSSON,
frá Stóra-ási í Borgarfirði, dáinn 23. maí 18G3.
Fyrr gekk jeg völdum með vini
á vörmum dags morgni;
hvorki kveið hita nje kulda,
hreti nje stormi;
en vonaði flestra ósk fylltist
að forsjónarráði;
mig langaði að liði að kveldi
ljósfagur dagur.
2.
Skjótt byrgðu himin heiðan
um hádegi á sumri
þokuský þykk úr veslri
undan þjetturo regnskúrum;
en þó að svipleg sýnist
svoddan umbreyting,
gullleiptur sólar síðar
sorta þeim eyðir.
3.
Allt er hverfult í heimi,
nema hugsjón til vinar,
finn jeg hann siðar alsælan,
á sælunnar landi;
með nýjum skilningi skoðum
skaparans vegu
um alskíra eilífðar daga
í alfjjðurs húsi.
Svo minnist sárt saknandi síns elskaða ektamaka
Þorgerður Hannesdóttir.
— Með póstskipinu, sem hingað kom 24. f. m.,
frjettist^ að stiptamtmannsembættið hjer á landi og amt-
mannsé'mbættið í Suðunimdæminu væri veitt justitsráði
Hilmar Finsen; hann hafði áður verið bæjar- og hjeraðs-
fógeti á Als, og er sonur Jóns Ilannessonar biskups
Finnssonar; en í Yesturnmdæminu er nú settur fyrir
amtmann Bergur Thorberg, fullmektugur í íslenzkn
stjófnardeildinni; hann er sonur Ólafs prests Thorbergs
á Breiðabólstað í Vesturhópi.
Yfirdómsforsetinn Th. Jonasson er sæmdur danne-
brogs-commandeurkrossi fyrsta flokks, og kvaddur til að
vera konungsfulltrúi á alþíngi nú ísumar; konungkjörnir
þingmenn veraldlegu stjettarinnar eru þeir Jón justitsráð
Hjaltalín, Jón yfirdómari Pjetursson, Ilergur Thorberg
og Ilalldór skólakennari Friðriksson, en andlegu stjettar-
innar, biskup Helgi Thordersen og prófessor Pjetur Pjet-
ursson; en varaþingmenn konungkjörnir: Árni landfógeli
Thorsteinsen og prófastur Ólafur Pálsson.
I Austurskaptafellssýslu er sagður kosinn fyrir al-
þingismann Stefán Eiríksson í Árnanesi, en fyrir vara-
þingmann Bergur prófastur Jónsson í Bjarnanesi, og í
Hegranesþingi er kosinn alþingismaður Ólafur Sigurðs-
son í Ási í Hegranesi, og varaþingmaður Egill Gott-
skálksson á Steiná.
STAKA.
^Erling skakka öll við þing
ætlum næsta traustan ;
sigling hans á sexæring
sjást mun glæst að austan.
Auglýsing.
Frá prentsmiðjunni í Reykjavík er nú kominn úí
ritlingur í 12 blaða broti, llObls., um jarðamötin, fjár-
kláðann og ýmislega tilhögun, eptirFriðrik prest Eggerz;
fæst ritlingur þessi til kaups bæði hjá höfundinum og í
Reykjavík hjá Einari prentara þórðarsyni, og kostar inn-
heftur 36 sk.
Enn fremur í Reykjavík komið út á kostnað bók-
menntafjelagsins 1865:
Tölvísi eptir Björn Gunnlaugsson, 400 bls. á 2rd. » sk.
Blöð úr Hauksbók m.m. (Jón |>orkelsson) á » — 36 —
Skýring málfræð. hugmynda (H. Kr.Friðrikss.) »— 12 —
í Iíaupmannahöfn:
Skfrnir 39. árg. 32 sk.; Tíðindi um stjórnarmál. á ísl.
I. B. xr. og II. i. Skýrslur um Landshagi III. 4.; ís-
lenzkar jþjóðsögur og æfint. II. 2.
1) Sjá Fornmannasögur VIII. b., Swris sógn.
Útgefendur og ábyrgðarmenn: Benidikt Sveinsson, Jón Pjetursson, Jón Þórðarson Thoroddsen.
Frentaímr í prentsmÆju íslands, 1865. Einar þörbaraon.