Norðanfari


Norðanfari - 08.09.1877, Blaðsíða 3

Norðanfari - 08.09.1877, Blaðsíða 3
127 — nra. og jafnframt útvegað sjer fleiri verka- nierm, þá hefði allt farið betur. Síðan fara hreppstjórarnir að bera á móti því, að ofdrykkja haii farið í vóxt á seinustu árum í nærsveitum við |>istilfjörð, en það stendur stöðugt, sem jeg hefi sagt um það; engum dugar, að Ijúga neinu i því tilliti; það er öllum ljóst, að aðflutningur á ölföngum hefir stórum aukizt hjer á sein- nstu árum. Árið 1873 fluttist t. d. til J>órs- hafnar 1,333 pottar brennivíns, en árið, 1874 2,758 pott., eða rúmum helmingi meira, og 1875 2,200 pottar. Síðan mun þó hafa auk- izt aðflutningur á þessum vörum. Að endingu tala þeir um söngfjelagið á Langanesi og heimskingjana. J*að atriði getur þeim ekki verið kunnugt um, því hvor- ugur þeirra hefir gengið í söngfjelagið, þó báðir sjeu góðir söngmenn, hver á sinn hátt. Jeg verð annars að játa það, að það var »fleldur djarft“ af mjer, að teljanokkra þá heimska, sem stóðu í móti söngfjelaginu; jeg mátti þó muna eptir því, að sumir þeirra voru náskyldir þeim stóru herrum, Jóni í Dal og Jóhanni á Svalbarði, og þeir, sem eru í ætt við slíka spekinga, hljóta að vera- vitrari en fólk er flest, enda sagði jeg al- drei, að allir mótstöðumenn fjelagsins væru heimskingjar. Svo virðist, sem þeir hrepp- stjörarnir hafi ýmigust á söngfjelaginu, og sýnir það eitt með öðru, live rniklir fram- faramenn þeir eru. J>að er ekki gott að vita hvernig á því stendur, að þeir Jóhann á Svalbarði og Jón í Dal sknli gjörast slettirekur út af því, sem stendur í brjefi mínu, og þeim er báðum alveg óviðkomandi. En þó þeir í annað skipti hlaupi í Norðling með einhverja klausu í sömu stefnu, þá munjegekki hirða um að lienda á lopti hvert axarskapt, sem koma kann úr þeirra hringlandi orðabelg. En þegar jeg er kominn í ráðaneyti hlaða- maima, með þeim .Tóni í Dal og Jóhannni á Svalbarði, mun jeg ekki ráða til að jafn- ástæðulausar greinir komi fyrir almennings augu, sem þessi þeirra grein. Ritað í júlímánuði 1877. Höfundur liins umrædda brjefs. T!1 „Norðlings“. Ekki er „Norðlingur11 frændi enn þá hættur að gjöra „Norðanfara“ skapraun og sjálfum sjer svívirðu. Hefir hann nú í tveimur síðustu hlöðum sínum tvær greinar eptir einhverja „smekldega11 (!) höfunda. Onnur greinin stendur í 11.—12. bl. með yfirskript: „Margt er skrítið í Harmoníu“, og höfundurinn læzt heita Grettir. Hin stendur í 13.— 14. bl. „Norðl.“, og hefir fyrir „mottó“ gamla niðbögu. Undir hana skrifar T(uddi?) Eyfirðingur. Vjer ætlum að höfundur beggja greinanna sje sami maður, og viljum óska, að svo sje, því slik- ir menn ættu að vera sem fæstir. — Hin fyrnefnda grein er eintómur hringlandi og liöfuðsóttarflog, og beinist höfundurinn að mestuleyti að Eiríki bónda á Stóra-Eyrar- landi, og ætlum vjer ekki að svara því. Höfundurinn gjörir gys að fráganginum á i,Norðanfara“, en vjersegjum nú, að „Norð- lingur“ sje ekki svo vel af hendi leystur, uð eklci megi á líkan hátt finna að honum. Vjer gætum komið með ótal dæmi um rit- villur og prentvillur í „Norðlingi“ ef vjer vildum, en oss þykir slfkt ódrengskapur. og viljum vjer sem góðfús lesari lesa í málið, en ekki lesa á sama hátt og sögurnar segja, að djöfullinn lesi biflíuna, þótt Grettir vilji fylgja bans dæmi. IJvað orðið „unna“ snertir, þá getum vjer sagt Gretti það, að beyging á því hefir verið tvenns konar, og svo er um fleiri orð. J>etta orð finnst í ) gömlum fornkvæðum „unni“ í 1. persónu nútíðar í framsöguhætti, en þar fyrir scgj- um vjer ekki, að það sje rjettara. — Hin síðar nofnda grein hljóðar mest um alþmg- ismanns kosninguna í Norður-Múlasýslu. það málefni snertir oss lítið, og skulum vjer leiða það hjá oss. En þar sem höf- undurinn segir, að „Norðanfari11 sje dýr- ' asta blað á íslandi, þá segjum vjer það ó- satt; en Tuddi garmurinn hefir víst aldrei sjeð austfirzka blaðið „Skuld“, sem lcostar 4 kr. það er og víst, að þegar skoðað er eptir rjettri tiltölu og leturmergð blaðanna, þá er „Norðanfari“ ódýrasta blaðíð. Að endingu viljum vjer óska „Norðlingi“ „til lukku“ með þær sífelldu skanunagreinir, sem hann flytur nálega í hverju blaði sínu, og allar eru sprottnar af persónulegu hatri til einstakra manna. En hvað ritstjóra „Norðanfara“ snertir, þá verður „Norðlingi“ engin sæmd að því, þótt hann vilji níðast á gamalmenni, sem komið er fram á grafar- bakkann. „En hatrið lífs er hefndar-gjöf, og hefndin aptur snýr við gröf“. N orðlingur. Ekkl stamar hann. Frá því saga vor liefst og íslenzkrar kynslöðar er getið, er ekki það jeg til veit annars en Grettis Ásmundar sonar hæru- langs, getið með því nafni. Enn þótt hann væri atgjörvismaður í mörgu, að því er sag- an segir, átti hann hvorki nafna eður niðja, svo nafnið hefir af einni eður annari orsök úrelzt á mönnum á voru kæra Islandi. — En margt breytist og svo er um þetta; nú er hjer um bil algengt að nefna hunda þessu nafni; þvi liggur beinast við að hugsa sem svo: að ritstjóra Norðlings hafi orðið orðfall við athugasemd mína í 55.—56. bl. Norðanfara, þó undarlegt sje, því ekki sta—sta—sta—mar hann, sannast þar hið fornkveðna: „ekki þurfa stór högg til alls“, og hafi því í óyndis-úrræðum sigað að mjer hundi með Grettis nafni, í 11.—12. blaði Norðlings, en vitaskuld kennt honum áður latínu. — Menn vita nú, að það er algengt að siga hundum á kýr, liross og kindur, þegar þarf að bægja því eður reka til eður frá; og það er reyndar ekki dæmalaust að hundum sje sigað á menn, þó slíkt athæfi þyki fremur bregða til siðleysis og fúl- mennsku, en kurteisi og menntunar. Jega.r nú þess er gætt, að enginn mað- ur á voru landi, íslandi, finnst með Grettis nafni, sem nú er algengt hundsnafn, þá virðist liggja í augum uppi, að enginn kæmi fram undir því og dyldi skirnarnafn sitt, nema hann annaðhvort bligðaðist fyrír orð sín, eður hann finndi -til liinnar andlegu og sáru fátæktar, er greinarkornið „Margt er skrítið í Harmoníu“ lýsir, þrátt fyrir hina „smekklegu“ latínuglósu aptan í lienni, eð- ur þá í þriðja lagi, að hann vildi “absolut“ vera reglulegur hundur. — J>að er gefið, að hundi getur maður sigað og það gjörir rit- stjóri Norðl. að mjer. ]?að er enn frem- ur gefið, að enginn lifandi maður svarar hundi, livort hann geltir á íslenzku eður latínu. Og það er seinast gefið, að hundi þeim er geltir að manni, sveijar maður og það gjöri jeg. — O, svei þjer Grettir! Stóra-Eyrarlandi 29/8—77. Eiríkur Halldórsson. Eptir „Bu<lstikken“. Ferð kringum jörðina. Maður einn frá Yínarborg hefir nýlega tekizt ferð á liendur kringum jörðina; var hann 14 mán- uði á leiðinni. |>egar hann fórástað, setti hann sjer fyrir að vcra kominn heim 11. 1 | maí 1877. Samkvæmt þessu var honum | boðið tll miðdegisverðar 11. mai ld. 5, áð- ur en hann lagði á stað. Fyrstu og sein- ustu frjettir af honum komu frá Hong- Kong í Kína í desember 1876. Að öðru leyti frjettu menn ekkert af honum fyr en hann kom til heimboðsins í Yínarborg 11. ! maí eins og hann gjörði ráð fyrir 14 mán. uðum áður. líallauúð í Kína. í suðurhluta Kína hafa vatnavextir gjört mikið tjón, og hafa þar geysað stórkostlegar rigningar. 1 norð- urhluta landsins, hafa gengið ofþurkar og leiddi af því hallæri næstliðinn vetur. Suð- ur-Kínverjar færðu guðunum fórnir til þess að veðrið þornaði, Norður-Kinverjar sömu- leiðis til þess að rigningar kæmu. Yatns- flóðin eyðilögðu heila bæi með fólki og fjen- aði, og allt varð í uppnámi; öll landstjórn og lög fór að forgörðum; þjófar og ræn- ingjar óðu sem logi yfir altur, unz stjórnin tók í taumana og dæmdi nokkra þeirra til að sveltast í hel. Um síðir heppnaðist stjórn- inni með aðflutningum að bæta nokkuð úr. Verr gekk allt til í norðurhluta landsins, J>ar höfðu þurkar gengið í 9 mánuði, og leiddi af því óvanalegt hallæri. Sumar- uppskeran misheppnaðist alveg, og haust- regnið kom aðeins í fám stöðum. í Pek- ing var heitið á guðina, livað eptir annað, með miklum virktum og bænahaldi, en þeg- ar það varð árangurslaust, sneri fólkið sjer að töframönnum og særingamönnum. J>eir reyndu allar listir sínar, og kom fyrir ekki. Klerkarnir lögðu á sig þunga hlekki til merkis um, að þeir væru þrælar goðanna. Að síðustu komu rigningar, svo nokkur upp- skera fjekkst, en eigi að síður hjelzt hall- ærið og hungursneyðin enn við, á mörgum stöðum. Með aðflutningum frá Japan, Ame- ríku og Ástralíu, hefir nokkuð vefið bætt úr bágindunum, og hefði það tckizt full- komlega, ef samgöngnr væru nokkru greið- ari en þær eru, en ldnverskri alþýðu er illa við að járnbrautir sje lagðar- um land- ið, þó einstakir heldri menn þeirra vilji koma því til leiðar. Óttaleg't nejrðarúiTœÖi. Næstliðinn vet- ur vildi það til á Rússlandi, að bóndi einn fór með konu sinni og fjórum börnum sleða- ferð meðfram Prútfljótinu; vissi hann ekki fyrri til en úlfahópur þeystist fram og fór að elta hann. Tók hann þá að leggja dug- lega í klárana, en það varð árangurslítið, því úlfarnir náðu honum brátt, og umkringdu liann á allar hliðar. J>á tók maðurinn eitt barnið og kastaði þvi fyrir úlfana, og með- an þeir voru að rífa í sundur bráð sína hjelt hann áfram svo hratt sem hann gat. Ulfarnir náðu honum síðan þrívegis, en hann fleygði fyrir þá sínu barninu í hvert skiptið, svo að þau fóru öll fjögur sömu leiðina. Möðirin varð frá sjer numin af hryggð og gremju, og tilkynnti þetta yfir- völdunum, en dómararnir dæmdu manninn sýknan saka, og tóku það fram, að hefði hann ekki tekið til þessara óyndisúrræða, mundu eigi að eins börnin, heldur og hjón- in bæði mátt sæta sama dauðdaga. Skattalögin nýju. I. Lög um skatt af ábúð og afnotum jarða og lausafje. (Eins og þau voru samþykkt af alþingi). 1. grein. Öll manntalsbókargjöld þau, sem nú eru, skulu af numin; en þau eru: skattur, gjaftollur, konungstíund, lögmannstollur og manntalsfiskur.

x

Norðanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðanfari
https://timarit.is/publication/88

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.