Norðanfari - 10.09.1880, Page 4
— 118 —
liggur milli bæjanna Fií'c á suðurbökkum
fljótsins og Dundee á norðurbökkunum. |>ar
er áin 45 feta djúp pá dýpst cr og braði
straumsins nær stundum 5 «knútum» (Knobbe)
á kl. tímanum. Brúin skiptist í 85 bil eð-
ur kafla, sem eru frá 67 til 245 fetaðlengd,
en öll lengd brúarinnar er 2 mílur enskar.
Miðlilutinn eður 13 pessi bil er liæstur og
er liann 88 íeta hátt fyrir ofan vatnið pegar
pað er hæst, en frá miðjunni hallar lienni
ofurlítið jafnt til beggja hliða. Hinir fyrstu
12 stöplar að sunnanverðu eru hlaðnir af
múrgrjóti en állir hinir eru járasívalningar
fylltir með múrgrjót og kalk, svo allt er sam-
faSt sem einn steiirn. Tvö máttartije liggja
alstaðar á milli hvorra 'tveggja stöpla og eru
pau sameinuð með pverböndum. j»ar sem
•máttaítrjen eru settá Stöplana, er ætlað visst
‘Tril fyrir útpenslu við hita, en liún verður
hjerumbil 7 fet á allri’lengd brúarinnar. Svo
-er 'tálið tfl að 'hverfc fet áf lengd brúarinnar
sje I Va tori* á pyngd, og er pað meiri pungi
• en hægt væri að lá’ta ‘koma á eitt bil pó pað
væri fyllt með vöruvagna. — Enginn hluti
'brúarinnar — enda par sem mcstur pungi
leggst á — parf nokkurntíma að bera rneir
cn 4 ton á □ pumlungi, en svo er hún
Sterk að hún pyldi 21 ton á □ pumlung
■ef hægt væri að koma pví 'fyrir á henni.
(Eptir ensku blaði).
Alpingismaður Eirtar Ásmundsson, kaup-
Stjóri Tryggvi Gunnarsson, og timbursmiður
Jón Stefánsson, voru útnefndir af amtsráðinu
hjer, að skoða brúarstæði á Skjálfandafljóti; og
segja álit sitt um undirbúning brúargjörðarinn-
ar. J>eir fóru pangað 18. f. m. J>eim leizt vel á
hið svo kallaða rieðra brúarstæði, hið sama er
upphaflega var tilteldð, Jiegar pessu máli var
fyrst hreift fyrir 16 árum, en eigi hefir orðið
framkvæmt, vegna fjeleysis fvrri en nú, eptir
að síðasta alping kom peim lögum fram, að
lána mætti úr landssjóði allt að 20,000 kr. til
brúargjörðarinnar, sem aptur skyldi endurborga
á 28 árum, Breidd fljótsins par sem brúin á
að standa, er 29 álnir milli klappa, af bjargs-
brún niður að vatni vár 71/3 alin pó fljótið
væri í talsverðum vexti, samt töldu skoðunar-
menn tryggilegra að bæta við 4 álna háum
stólpum úr tilhöggnu ogsteinlímdu grjóti ofaná
bergið beggja megin, til pess að brúnni sje ó-
hætt í ruðningum og aftaka vöxtum á vorin.
Brúarstæðið er örstutt frá hinum nafnkennda
Goðafossi, og slcammt frá pjóðveginum. Kvísl
ein rennur i fljótið milli brúarstæðsins og pjóð-
vegaxins, sem opt er íllfær í vatnavöxtum á vorin
og krapaförum á haustin, álitu pví skoðunar-
menn nauðsynlegt að brúa kvíslina líka, en par
er svo heppilega ástatt að brúarstæði fannst við
kvíslina, í beinni leið, sem lítið parf að gjöra
við, nema hlaða priggja álna háan stöpul öðru-
megin undir brúarsporðinn. Brýrnar verða lík-
lega keyptar báðar erlendis í vetur og fyrir al-
vöru byrjað að hlaða stöplana á næsta vori.
Hversu umstangsmikið og dýrt verkið muni
* verða eptir ágizkun nefndarinnar, er oss ó-
kunnugt.
F t j e 11 i r.
Hafísinn kvað hafa legið hjer fyrir Norð-
urlandi í sumar, allt austan frá Kolbeinsey
vestur fyrir Strandir, en nokkuð djúpt, og
grynnst komist eina mílu undan Almenning-
*-) 1 ton er 2016 pd. dönsk eða sem næst
klyfjar á 10 hesta.
um, millum Siglufjarðar og Eljóta og inn á
miðjann Húnaflóa; en um mánaðamótin júlí
og ágúst fór hann algjörlega að reka frá og
hefir ekki sjezt síðan.
Seinast í næstl. mánuði öfluðu Norð-
menn, sem eru alltaf á skipum sínum við
Hrísey, í net sín á áttunda liundrað tunnur
af hafsíld , við Birnunes og víðar par ytra
lieíir og aflast talsvert af síld í p. m.
Með skipi sem nýlega er komið frá Nor-
egi til fjelagsins í Hrísey, frjettist að í sum-
ar hefði verið mjög aflalítið við Noreg af
síld og íiski, og pví horfur á að sú vara, og
sömuleiðis lýsi, mundi hækka í verði er-
lendis.
I Olafsfirði kvað ísuganga svo mikil, að
hún er innst í fjarðarbotni par úpp í land-
steinum og hlaðíiski er nú sagt innfyrir
Hrísey.
1. p. m. kviknaði eldur í heyhlöðu að
Hallandu á Svalbarðsströnd, brann par nálægt
einu kýrfóðri af töðu og rjáfrið af hlöðunni,
sem stendur sunnan og ofan til við bæinn,
en sunnangola var og allur bærinn 1 veði.
Voðinn sást hjer úr bænum og af Oddeyri,
og voru menn sendir til hjálpar. Eldurinn
hafði orsakast af pví, að aska hafði verið bor-
in á hlöðuna til að verja hana leka, en eld-
urinn leynst í henni.
— Hlutarliæð hákarluskipa peirra sem
lagt hafa upp afla sinn hjer petta ár. við bræðsluhúsin
Ákureyrin 501 ;unnur.
Arskógsströndin 145 —
Baldur .... 258 —
Ellidi . . . . 144 —
Eyfirðingur 155 —
Elína . 144 —
Gestur , 117 —
Hafrenningur (opinn) 78 —
Hermann 533 —
Hermóður 252 —
Hringur . 208 —
Mínerva .... 160 —
Pólstjarnan 154 —
Sælor .... 138 —
Sjófuglinn 72 —
Stormur .... 280 —
Svanurinn 141 —
Siglnesingur . 30 —
Víkingur' (heldur enn út) 146 —
Ægir .... 124 —
Sum af skipum pessum hafa lagt nokk-
uð af lifur upp á öðrum stöðum.
PKESTVÍGSLUR.
Árni |>orsteinssoii aðstoðarprestur síra
Jóns Austmanns á Saurbæ í Eyjafiriði. Ein-
ar Vigfússon, prestur til Hofspinga á Höfða-
strönd (Hofs og Miklabæjar í Óslandshlíð).
Kjartan Einarsson, til Húsavíkur á Tjörnesi í
Jpingeyjarsýslu.
Úr brjefi úr Rvík. dag 28. ágúst 1880.
«Eiskitregt, pokulopt og mollur, perrilaust,
nær hálfsmánaðartíma».
25. f. m. Ijezt háyfidómari j> ó i' ð u r
Jónasson í Roykjavík.
— 5. p. m. um morguninn kom Phönix
aptur hingað að sunnan frá Rvík og meðal
farpegja pessir: herra rektor J. A. Hjaltalín
alfarinn til Möðruvalla skólans, sjera Jón
Bjarnason ásamt konu sinni (hann hefir tekið að
sjer að gegna prestsverkum um eins árstíma
í Dvergasteins prestakalli), síra J>orleifur Jóns-
son frá Presthólum, sjera Árni |>orsteinsson
með konu sinni og tveimur börnum peirra,
kaupmennirnir Jón Guðmundsson frá Elatey
á Breiðafirði og Lárus Snorrason frá fsa-
firði, ekkjumad. Ásgeirs sáluga kaupm.
frá ísafirði og dóttir hennar, á leið til
Kaupmannahafnar, frá Sauðárkrók herra hjer-
aðslæknir Árni Jónsson, verzlunstjóri Stefán
Jónsson og kona lians.
Hjeðan lagði Phönix aptur kl. 3. um
morgunin 7. p. m. og hjeðan með honuni
ungfrú Margrjet Daníelsdóttir Halldórssonar frá
Hrafnagili, frú Anna Stephensen frá Holta-
stöðum, pær ætla að vera í Kmh. næsta vetur.
Auglýsingar.
Kunnugt gjörist: að fimtudag p. 16. p.
m. kl. 12 á hádegi, lætur kaupstjóri Tryggvi
Gunnarsson við opinbert uppboð á Möðru-
völlum í Hörgárdal selja nokkuð af borðvið,
kalk í tunnum, tjöru, vagn og verkfæri, og
ef til vill 2 hesta. Söluskilmálar verða aug-
lýstir við uppboðið.
Skrifstofu Eyafjarðarsýslu 1. september 1880.
S. Thorarensen.
Dökkrauður foli fjögra vetra gam-
all hvarf mjer undirskrifuðum frá Hraukbæj-
arkoti í Kræklingalilið 24. ágúst, með mark:
sylt hægra, aljárnaður, góðgengur, litlastjörnu
undir ennistoppi og stýft tagl. Hver sem
kýnni að verða var við folann bið jeg svo vel
gjöra að handsama hann mót borgun og láta
mig vita hið fyrsta.
Grenivík 1. september 1880.
Tómas Jónsson.
Jarðepli.
Seinni part yfirstandandi septemb. fást
jarðcpli til kaups hjá mjer undirskrifuðum
og geta sjóbændur fengið að borga pau með
isu og harðfiski. Jarðepli úr görðum mín-
um hafa jafnaðarlega pókt einhver liin beztu
hjeðan af Akureyri.
Eggert Laxdal.
Að kveldi hins % 80, týndist peninga-
budda með rúmum 50 kr. á leíðinni utan af
Oddeyri og inn að bakarii, sem finnandi er
beðinn að skila til ritstjóra Norðanfaragegn
sanngjörnnm fundarlaunum.
Á veginum millum Akureyrar og. Odd-
eyrar tapaðist í dag, röndóttur malpoki, með
silfurbúinni svipu í, sem finnandi er beðinn
að halda til skila — mót sanngjörnum fund-
arlaunum — til ritstjóra Norðanfara.
J>verá á Staðarbyggð 6. sept. 1880.
S. Sigurðsson.
Daginn eptir „sýninguna“ á Oddeyri 8.
júní p. á. hafa orðið beizlasldpti, pannig, að
jeg undirskrifaður hefi fengið beizli með járn-
stengum nýlegu stönguðu höfuðleðri og ný-
legum kaðaltaumum, en mitt beizli var með
einföldu höfuðleðri, hringju á hnakkanum,
fornum járnstengum og kaðaltaumum og minna
virðis en pað beizli sem mjer var eptir skilið;
eigi að síður vildi jeg pó helzt geta fengið
mitt beizli aptur, og hinn. sem mitt beizli
hefir í höndum, sitt beizli, sem hjá mjer er.
Ytra-Laugalandi í Eyjafirði 28. ágúst 1880.
Stefán Árnason.
Fjármark Jóns Einarssonar, á Stein-
dyrum á Látraströnd: Sneiðrifað framan
liægra, sílt vinstra. Brennimark : J E S.
Eigandi og ábyrgðarm.: Björn Jónsson,
Prentsmiðja Norðanf. Guðm. Guðmundsson.
4