Norðanfari - 05.11.1881, Side 4
— 4 —
að lengd, kjálkinn 8 áln., sporðurinn vóg
11 vættir. — Spik af hvalnum var 170
vættir, rengi 82 vættir. — Skiðin voru 660
að frátöldum hinnm smæztu.
Jeg hafði ráð á sölu á að ^pins 7 vættum
af spiki og rengi, er jeg seldi til 11 innan-
hreppsmanna, auk undanfláttu, pvcstis og
tungu, er hver innanhreppsmaður gat fengið
og fjekk, meðan tilvannst. — En svo er að
sjá á grein herra „Matarpurfa“, að lionum
sje ekki vel kunnugt um petta, pótt hann
væri á hvalfjörunni pegar slcipt var, til pess
að ganga ósleitilega eptir skurðarhlut karls
sins. — Hann virðist heldur eigi hafa vitað,
eða getað skilið, að jeg stóð fyrir skurði
hvals pessa sem „privat“maður, en eigi sem
hreppsnefndaroddviti, og að jeg sem hrepps-
nefndaroddviti eigi gat heldur meinað utan-
sveitar hvaleigendum að flytja sinn hlut út
úr sveitinni. J>essa óskynsamlegu skoðun
sína vill hann jafnvel eigna öðrum, pvi að í
grein sinni sem rituð er 5 dögum eptir
hvalskiptin, kemst hann svo að orði: „menn
i m y n d a sjer, að oddviti hreppsins, sem
livalinn rak i, m u n d i r e y n a að stuðla
svo til, að hinir fátækari hreppsmenn fengju
að sitja fyrir öðrum, sem síður purfti
með hvalkaupanna".
Jeg get frætt herra „Matarpurfa" á
pvi, að fyrst gekk ‘/s af hvalnum til skurð-
armanna, sem allir voru innsveitismenn
nema einn. — Af hinum 2/3 hlutum hvals-
ins, er innanhreppsmenn voru eigendur að,
voru 10/16 hlutir hans mestallir seldir inn-
sveitismönnum, og nokkuð af hinum G/16
hlutum hans er utansveitarmenn áttu.
Af pessu getur herra „Matarpurfi“
sjeð, að mestallur hvalurinn hefir orðið
sveitarmönnum hjer að góðri hjálp í vor,
pótt hann með öllum sínum „mannkærleika
og sannkristilegu hugarfari“ pykist ei vita
til pess.
Hjer geta nú lesendur Norðf. sjeð hina
„hroðalegu hvalsölu“, sem herra „Matar-
purfi“ getur nærri grátið yfir.
Jeg skil svo við frásögn um hvalreka
penna, um leið og jeg skýrskota til eptir-
ritaðs vottorðs nokkurra sveitunga minna,
er jeg hef sýnt grein pessa, sem eru valin-
kunnir menn, án pess jeg finni ástæðu til
að hreifa við heiðri og mannvirðing herra
„Matarpurfa“, sem ef til vill, er ljelegur
texti að leggja út af.
J>verá í Hallárdal, 28. júní 1881.
Arni Jónsson
(oddvíti Vindhælishrepps).
* *
*
Vjer undirskrifaðir, er höfum *jeð svar
herra Árna Jónssonar á |>verá gegn grein peirri
í Norðanfara, er ófrægja vill aðgjörðir hans við
skurð, skipti og sölu á hval peim er rak hjer
í sveit næstliðinn vetur, lýsum pví yfir, að
frásögn hans í pessu svari hans er sönn og
rjett, og að greinritinn «Matarpurfi» hafi ófrægt
hann að eins af illgirni og mannvonzku, eða
fávizku.
Ritað í júlímánuði 1881.
0. Möller. S. Finnbögason. Björn Jónsson.
Ólafur Ólafsson. Jakob Jósefsson.
Sveinn Guðmundsson.
•f Stefán Jónsson.
I.
1. Hjörtun titra harmi lostin,
hjörtun sorga pjáir pín,
af pví nú eru’ augu brostin
elskulegi sonar pin,
sorgin hneit við lijarta rætur,
pá hreif pig dauðinn burt frá oss
aldrei pess vjer bíðum bætur
berum pann til dauða kross.
2. Okkar varstu indi’ og gleði,
elskulegi sonur kær,
ljekstu pjer með glöðu geði,
af gleði pinni kættumst vær;
nu er dapurt úti’ og inni,
engin blóm pitt litið fær,
barna pú með blíðu sinni
á babba’ og mömmu’ ei kalla fær
3. Ó! pú Guð; vor Guð og faðir
gef oss stýrk í pessum heim,
pú um allar alda raðir
aldrei hefur hrugðist peim,
sem að treysta á pig einan,
einn pú telur sjerhvert tár,
send oss anda himin hreinan
hjarta okkar lækna sár.
4. Himna Guð oss huggun sendu,
hjálpa lífsins prautir gegn,
oss að bera böl vort kenndu,
blessaðu oss og veittu megn;
mörgum sorga sárum stungin,
sjá við fiýjum nú til pin,
friðaðu hjörtun harmi prúngin
heilög gæðskan aldrei dvin.
Foreldrarnir.
II.
1. Foreldra siskini frændur og vini,
framliðins hugga pú Drottin minn nú
allar mótlætis árásir lini
á pjer grundvölluð kristileg trú,
græði í hjörtunum harmanna sárin,
heilagur andi með nærveru sin,
burt perri saknaðar brennheitu tárin
blessaði faðir náðar hönd pín.
2. Syrgjandi foreldrar glögt að pví gáið
í Guðs nafni stýrkist af trú peirri og
von
endurlífgaðan aptur pið sjáið,
ýkkar sárpreiða framliðin son,
par sem öll ýðar afkvæmi ljóma
með útvaldra skara í sælunnar rann,
eilífar pakkir um aldirnar róma
allsherjar drottni sem frelsa pau vann.
3. Með ljósanna föður hæstum í hæðum
hjartkjæra ástvini girnumst að sjá,
leystir frá allskonar missir og mæðum
meiga um aldirnar vera peim hjá,
enginn par kvíði útvalda særir,
engin liarmur nje skilnaður pá,
eilífur friður og fögnuður nærir,
fúsir vjer keppum pví takmarki ná.
III.
1. Hjeðan i hinnsta sinni
hafin er ung-sveinn kær,
pví er hjer úti’ og inni
allstaðar sorgar blær,
trega vjer tár ei byrgjum
pau telur ei maðnr neinn,
ó Guð! hvað sárt vjer sýrgjum
sjerðu og pekkir einn,
2. Hjeðan vjer grátnir höldum
helgum að grafarbeð,
Guði samt pakkir gjöldum
sem gaf og taka rjeð,
barnlegt pitt bros æ kætti
blíðasti vin indæll,
dauðinn oss glaða grætti,
Guð tók pig; vertu sæll!
3. Andi hins látna lifir
lifandi Guði hjá
hörmungar hafin ýfir
hann flytur kveðju pá;
„grátið ei vinir góðir
gott er að lifa hjer,
fagnið faðir og móðir,
íaðir minn drottinn er
4. Ungur jeg dó í drottni
í drottni lifi nú
líkaminn ljóst pó rotni
lífið í peirri trú;
andi minn bænar biður
blessaðan drottin hjer,
harmandi hugga yður
hann mun pað veita mjer“
F r j e 11 i r 1 n n 1 e n (1 a r.
Síðan um næstl. Mikaelismessu hefir veðr-
áttan enn verið hverjum degi hlíðari oghetri
nema stöku frostdagar, en sjáldan snjókoma,
nema hinn 14. f. m., snjóaði pá talsvert í sum-
um sveitum. J>ann dag lögðu hjeðan af stað
kaupskipin «Hertha» og «Ingeborg» enkaup-
skipið «Rósa» 20? s. m. öll með hlaðfermi.
Mælt er að allt að 2000 tunnum af kjötí hafi
nú í haust komið til verzlananna á Akureyri
og Oddeyri, en 800 t. á Húsavík og 1600
t. í Hofsós og á Sauðárkrók. í ölluui veiði-
stöðum hjer Norðanlands hefir fiskaflinn að
öllu samtöldu verið með bezta móti, enda hefir
fjörðurinn opt síðan á leið sumarið verið full-
ur með síld og Norðmenn flutt hjeðan hvern
skipsfarminn af öðrum bæði á gufu- og segl-
skipum, svo að alls munu verða fluttar lijeð-
an af Eyjafirði í ár 100,000 tunnur af síld
og fyrir 60,000 tunnur pegar greiddur spítala-
hlutur V2 alin — 27 l/a a. eptir verðlagsskrá af
hverri tunnu, er verður alls hjer um 16,500 kr.
Verzlunarstjóri Snorri á Siglufirði kvað og
hafa kvíað í nótaútgjörð sinni 600 t., er hann
saltaði í tunnur og sendi til útlanda. Hjer
liefir og í sumar og liaust aflast mikið af haf-
síld og smærri síld bæði í lag- og fyrirdráttar-
netjum, svo alls munu komnar nú í haust svo
100 tunna skiptir, og hver tunna af smásíldinni
seld fyrir 1 kr., sem er gjafverð, ætla kaup-
endur að salta hana í ílát og gefa kúm, hefir
pað áður reynst bezta fóður handa peirn til
mjólkar og prifa. Talsvert hefir aflast hjer
í haust af kolkrabba.
f A3 morgni hins 30. f. m. póknaðist
Drottni alvöldum að taka til sin eptir langa
tæringarsjúkdómslegu konuna Jakobínu Ingi-
björgu Ketilsdóttur frá Hlíðarhaga í Eyjafirði
að eins 28 ára. Um hana mátti með sanni
segja, að par bjó í fríðum lílcama, góð og guð-
elskandi sál; er liennar pví af ektamaka, ætt-
ingjum og vinum sárt saknað. En
«Ó, hvað dýra huggun ljer
að allt hvað eðli himneskt hefur
himininn aptur dauðinn gefur».
f 3, p. m. andaðist hjer í bænum af
taugaveiki, fyrrum hreppstjóri og meðhjálpari
Arni Jónsson járnsmiður nær fimmtugur að
aldri, vænn og vellátinn maður.
Auglýsing «T,r.
Stórkaupa-fiskverzl un
William Jamieson’s
15 Pitt Street
Liverpool
— stofnuð árið 1821 —
tekst á hendur að kaupa og selja í umboði
annara, skipsfarma af íslenzkum og færey-
iskum saltfiski, löngu og ísu.
Banki verzlunarinnar er:
Liverpool Union Bank
— Ef einhver .vildi selja Ferðasögu
peirra Eggerts Ólafsonar og Bjarna
Pálssonar, er hann beðinn að snúa sjer til
ritstjóra Norðanfara, og mun bókin verða mjög
vel borguð ef hún er í bærilegu standi.
Fjármark J>órðar Jónassonar á Hóli
í Gritubakkahrepp í |>ingeyjarsýslu: Sneið-
rifað aptan biti framan hægra, sneitt aptan
bíti fr vinstra. Brennimark: J>órð, 9.
Eigandi og ábyrgðarm.: Bjðrn Jónsson.
Prentsmiðja Norðanf. B. M. Stephánsson.