Norðanfari


Norðanfari - 26.02.1883, Blaðsíða 1

Norðanfari - 26.02.1883, Blaðsíða 1
MMFARI, 22. ár. Akurcyri, 26. febrúar 18S3. Nr. 3.-4. Nokkuð um trúarefni, að miklu leyti tekið eptir fyrirlestrum, sem lialdnir hafa verið um það efni af Guðmundi Hjaltasyni. Inngangur. «Ekki veldur sá er varir». pað er ekki ætlun mín að fara að verja eða fram halda neinni sjerstakri trú, heldur vil jeg reyna að leiðbeina mönnum til að hugsa alvarlega um trúna og lífið yfir höfuð. Menn hafa meir enn nóg af margbreyttum trúarskoðunum, en menn hafa allt of lítið af rjettri meðferð á þeim, því þegar menn fara að tala og hugsa um trú, þá gjöra menn það opt með frábærri Ijettúð eða þá ónáttúrlegri alvöru. |>etta getur ef til vill komið af því, að sumir eru á báðum áttum, hvert þeir eigi að álíta trúarbrögðin æðsta sannleika' eða aumustu lýgi. Mannkynið er orðið svo menntað og þroskað, að það finnur sig hafið yfir það að trúa í blindni; en eins ætti það að verahaíið yfir það að sýna ljettúð í trúarefnum. J>ví sjer- liver hreinskilinn og menntaður maður hlýtur að slcoða trúarefni eins og hið alvarlegasta atriði þessa lífs, þvi að trúarbrögðin eru ekki annað en tilraunir til að leysa úrþeimspurn- inguip, sem mannleg reynzla ejkki kemst að; þau eru tilraunir til að finna upphaf, eðli og takmark tilverunnar og lífsins. Hvert kristna trúin hafi leyst úr þessum spurningum eða ekki, það mun hún sjálf geta sýnt. 1. Kafli. Yantrúin hjá þeim ómenntuðu. Vantrúin eða efinn um öll trúarleg efni kemur fram á margan hátt. Jeg vil fyrst benda á tvær myndir hennar, ön-nur kemur fyrir hjá ómenntuðum, hin hjá menntuðum mönnum. J>ótt meira beri á efasemi hjá menntuðum mönnum, þá mega menn ekki halda að van- trúin eigi fremur heima hjá þeim, en hinum, sem minna vita; því þeir, sem af náttúrunni eru hneigðir fyrir hið guðlega, þeir halda áfram með að vera það hvort sem þeir menntast eða ekki; en sje þeir ekki hneigðir fyrir þvílíkt, þá verða þeir eins guðlausir þótt þeir sje hálfbjánar, eins og þótt þeir væru manna iærðastir. Hinn ómenntaði, sem aldrei hugsar al- varlega um trúna, en gjörir þó gis að guðs- orði undir niðri þótt hann fylgi ytri helgi- siðum, er fullt svo vantrúaður eins og hinn menntaði, sem opinberlega rífur trúna niður. En sá er að eins munurinn, að hinn ómenntaða skortir það áræði, sem mer.nturiin gefur. En samt gjörir hann ekki minni skaða, því hann útbreiðir hræsni og Ijettúð í sínum litla verka- liring. Hann nennir ekki að hugsa alvarlega um neitt, því bann heldur að það auki sjer fyrirhöfn og áhyggjur, honum er hálfvegis drumbs uin að hugsa um skaparann, þó hann ekki beinlínis vilji eða geti neitað tilveru lians, því lionum þykir náttúrlega gott að grípa til hans ef mikið liggur við! |>að ber stundum við, að stöku maður er hneigður fyrir biblíulestur, en ekki eru sumir lengi að gjöra gis að því, þótt þeir sjálf- ir sjeu svo aumir, að þeir aldrei hafl lært að gjöra sjer grein fyrir hvert biflían sje sann- leikur eða lýgi. Jeg hefi sjálfur orðið þessa var^og jeg held að orsalójnar geti verið marg- ar, einkum meðfædd óbeit á öllu guðlegu eða ill og andalaus trúarkennslu-aðferð, sem hefir gjört þá leiða á því. Meira hjer um síðar. «Hann talar eins og prestur!* segja menn ef að einhver «óvígður» ætlar að tala eða rita alvarlega uin trúna. J>etta viðkvæði er meist- araleg lýsing á trúarlífi voru, því margir álíta prestsembættið óþarft og jafnvel hlægilegt. J>eir dæma guðræknina úr daglega lífinu í kirkjuna eins og í einskonar gapas tokk! Að menn unna «góðum» presti, kemur ekki alltaf af trúarbragðaást, heldur af því að mönnum þykir vænt um prestana vegna manndyggða, hjálpsemi og menntunar, sem margir þeirra hafa, og loksins af því, að presturinn er «skemmtilegur» í kirkju.^ J>etta orð «skemmtilegur prestur» er líka góð lýs- ing á hugsunarhætti manna: Menn fara í kirkju, ekki svo mjög iil þess að leita sann- leikans, heldur til þess að skemmta sjer við lipurt látbragð, fallegt tón og hnittileg orð, og þannig leita menn «fegurðar» í messunni. En ef menn hefðu nóg leikhús, þar sem nóg væri af söng og fögrum orðum og annari skemmtun, þá hygg jeg að sumir færu sjaldn- ar til kirkju en þeir gjöra nú. En nú er auðvitað að stundum getur verið bágtaðfinna rnikla fegurð í prestsverkunum, en það gjör- ir þá ekki evo mikið til; því það er þó opt- ast að einhver laglegur piltur og skrautleg stúlka slæðist til kirkjunnar og þá geta báð- ir partar haft von um nokkurt augnagaman. J>að er þannig ósjálfráð fegurðartilfinn- ing, sem drífúr mavga til kirkjunnar. En hætt er uú við að stundum sje lítið af henni, og þá fara menn fyrir siðasakir eða til að fá frjettir! En eru þá engir, sem af sannri guð- rækni fara til kirkjunnar? Líklegt væri að það væru sumir. En jeg held þeir sjeu fáir. Yerði það sannað, að jeg geti rangt til, þá þætti mjer vænt um. Jeg held það sje sannleikur að þeir sjeu fáir, en sannleikur sá er mjer svo leiður, að jeg vildi að jeg þyrfti ekki að trúa hotium. En eru þá ræður prestanna lagaðar til þess að leiða þessa ósjálfráðu vantrúarmenn á rjetta leið? J>að er ekki alltjend, á það mun síðar minnst; enda hefi jeg áður í Norðanfara minnst á að sumum þeirra sje hætt við að kenna meira en þeir trúa sjálfir. Sje þetta satt, eða hafi alþýðan nokkurn misgrun uin það, þá er henni vorkunn. En því kemur þá enginn alþýðumaður og talar rnáli guð- rækninnar? J>etta gjöra alþýðumenn ytra svo vel að prestar mega vara sig. 2. Kafli. Yantrú menntaðra manna. Vantrú menntaðra manna getur kornið af líkum orökum og vantrú hinna ómennt- uðu, svo sem meðfædd óbeit á öllu guðlegu og Hundurism fór. (J>ýtt). (Framhald). Ijet í haf, og sjálfur varð hann að vera bæði skipstjóri og matgjörðarmaður, — það var sem sagt í Nóvember, það hrikti í glugga- hlerunum og regnið buldi á rúðunum; en inni í hinni þrifalegu stofu var allt gagnstætt hinu dimma haustveðri; það skíðalogaði í ofninum og rokkhjólið þaut, eins og það væri að masa við þau í bróðerni. Móðirin leit opt til drengsins, þar sem hann sat kafrjóður og var að srníða skipið sitt. Ó, hvað liann er fallegur! með blíðu augun sín rjóðu og kinnarnar, hugsaði hún með sjálfri sjer, og loksins sagði hún bátt: «Langar þig ekki til, að koma heim með einhvern skóladrenginn til að leika við þig góði minn»? «Jeg kæri mig ekki um það inamma». «J>ú ert undarlegur drengur Frits, að þú skulir ekki eiga neinn vin eins og aðrir drengirs. «Jeg á einn vin», sagði hann, «Jörgen frændi er vinur minn». «En hann er svo opt ekki heima», sagði móðir hans; «þú ættir að eiga einhvern vin á þínum aldri, sem þú gætir leikið þjer við, þegar þú átt frí, og keppst á við hann að læra í skólanum og sem . . . lengra komst hún ekki. «Hvaða ýlfur er þetta, hvað getur það verið»? Og hún hætti að spinna svo hún gæti heyrt það betur. Drengurinn hlust- aði á þetta með mikilli athygli. «Æ, hvað er að gráta» ? sagði hann, «jeg ætla að ljúka upp mamma». Og svo hljóp hann til dyr- anna og lauk -upp, í sama bili skaust inn dálítill loðhvolpur magur og rennvotur; hann ! flaðraði upp um drenginn, sleikti á lionutn hendurnar, dinglaði rófunni og leit á hann ! liinum stóru og fögru augum sínum, og litla | hjartað drengsins inundi hafa bráðnað hefði I liann skilið þetta augnatillit. Bleitan rann af — 5 — hvolpinum og gjörði' gólfið óhreint; en það var nú ekki rjett eptir annari eins þrifakonu, og madömu Villumsen, að líða slíkt. «Svei þjer óhræsið þitt, farðu út, svei þjer! sagði hún og sló í hanu með sóp; en það var sannarlega enginn hægðarleikur að reka hann út; úr þvi hann á annað borð var kominn inn, ásetti hunu sjer að fara ekki strax aptur út í óveðrið. pegar hann var búinn að velta um koll öllum stóJunum, fót- skörinni og rokknum hafnaði liann sig loks- ins undir dragkistunni lagðist fram á lappir sínar og leit biðjandi vonaraugum á Frits litla, sem skildi hann fljótt og bað mömmu sína fyrir hann. «Lofaðu honuin að vera góða mamma bara í nótt, liann ýlfraði svo aumkunarlega og skrækti áðan út í kuldanum, hann er líklega svangur, og kann skje ein- hver voudur maður hafi barið hann». Móðir hans gat ekki neitað honum, þegar hann bað haua svona vel. «Jæja hann má þá vera í nótt fyrst þú

x

Norðanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðanfari
https://timarit.is/publication/88

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.