Norðanfari - 26.02.1883, Page 4
nauðstöddu, þegar hret og harðviðri, geys-
uðu svo frekt ýfir láð og lög, að eigi leit
út fyrir annað, en margir mundu algjörlega
fella fjenað sinn; — eins og lika alltof víða
átti sjer stað, — £>að getur þvi víst enginn
nserri sem aldrei hefur kornist i heyþrot,
livað mikla hugarraun bóndinn má bera
þegar hann er kominn á nástrá með skepn-
nr sinar þann bjargræðisstofn, sem hann
verður að framfleytast af, bæði fyrir sig og
sína, og eigi er annað sýnna, en dauðinn
sje fyrir dyrum; þeim sem einhverntima,
hefir verið þannig ástatf' fyrir, þekkja það
bezt hversu það er sárt og svíðandi, að
geta ekki líknað skepnum þeim er maður
hefir undir höndum, þegar það hefur litla
eða enga hjörg úti eða inni, og þær eins
og lita hænaraugum upp til manns, hvaðan
þær vænta einhvers meinaljettis; hversu
þakklætisvert er það þá ekki, að hafa þá
hjargvætti í fjelaginu, sem hæði hafa efni
og vilja; til að hjálpa sínum nauðstadda
hróður, eins og átti sjer stað i sveitarfjelagi
þessu á næstliðnu vori. Yjer höfum lesið í
Norðanfara 21 árgangi nr. 35—36 grein
frá nokkrum búendum í Engihliðarhreppi, í
Húnavatnssýslu, um hjálpsemi Árna bónda
á Geitaskarði á næstliðnu vori, og geta þess
jafnframt, að sýslumaður, þeirra hafi minnst
þess á manntalsþingi þar í vor. Eptir grein
þessari að dæma, virðist oss sem líkt hafi
verið um hjálpsemi velnefnds Árna og herra
óðalsbónda Benidikts Jóhanessonar í Hvassa-
felli í Eyjafirði, sem á næstliðnu vori reynd-
ist sannur bjargvættur sveitar sinnar; með
því að hjálpa hæði um hey og mat handa
fjenaði bænda. Jafnvel þó vjer ekki til-
greinum, fieiri atriði í þessu tilliti, er eigi
svo að skilja, að þetta bafi verið í hið eina
skipti; 'nei langt frá, því hann hefir til
langs tima, hjálpað þeim er leitað hafa lið-
sinnis lians.
Yjer sem ritum línur þessar, viljum að
síðustu, á þessum seinasta degi ársins, óska
þeim höfðingshjónum, að Drottinn gefi þeim
gott og gleðilegt ár, að bú þeirra blómgist,
svo þau geti framvegis eins og hingað til
hjálpað nauðstöddum.
Ritað á Gamlársdag 1882.
Nokkrir búendur í Saurbæarhrepp.
í 9. ári «íssfoldar», 27. bls. 1882, er
sagt frá láti sjera Guðmuridar Einarssonar pró-
fasts á Brejðabólsstað á Skógarströnd, er hafði
skeð 31. október f. á., eptir stutta legu. Hann
var fæddur í Skáleyjum á Breiðafirði árið
1816. 22. ára gumall útskrifaðist hann. 4.
árum síðar vígðist hann til aðstoðarprests sjera
Ólafs prófasts Sívertsens í Flatey. 1848 var
lionum veitt Kvennabrekka í Dalasýslu, en
áiið 1868 fór hann að Breiðabólsstað á Skóg-
arströnd. Prófastur vurð diann í Dalasýslu
1864 — 1868, en alþingismaður Dalamanna var
hanu langa hríð. 1842 gekk hann að eiga
Katrínu Ólafsdóttur prófasts Sivertsen. Sjera
Guðuiundur var meðal liinna merkustu manna
stjettar sinnar hjer á laudi, hann var gáíu-
maður góður, yðjumaður hinn mesti og hinn
vaudaðasti og samvizkusamasti maður í öllu,
það var því eðlilegt, að hann leysti embætt-
isstörf sín svo af liendi, að það var lionum
til sóma og öðrum til gagns. Kæðumaður
var hanu sjerlega góður og öll heimilisstjóru
hans var sannarleg fyrirmynd. A alþingi
kom hann fram með þeirri sömu alúð, sam-
vizkusemi og hyggitiduin, sem lýstu sjerann-
arsstaðar í Íífi hans.
Ritverlc sjera Guðmundar sál. eru, eptir
skýrslu frá kerra, Jóni Borgfjörð þessi;
I. I óbundnum stíl.
Um nuutpeningsrækt. Keykjavík, 1859.
— bráðapestina: Keykjavík, 1876.
Undirstöðuatr.iði búfjárræktarinnar: Reykjavík, |
1877.
Um sauðfjenað: Reykjavík, 1879.
Hann var og í forstöðunefrid «Gests vest-
íirðings* 1.—3. ár ltí47—49. í honum eru j
ýnisar ritgjörðir eptir sjera Guðmund og í j
4. ári: Obrygðul eínkenni á mjólkurkúm. '
— 8 —
Enn eru ýmsar búnaðar greinir í |>jóðólfi, ísa-
fold og Tímanum,.
II. í bundnum stíl.
Hugvekjusálmar (110) Kaupm.höfn, 1960.
Sjö sálmar í hinni endurskoðuðu sálmabók;
Rvík, 1871, 1875 og 1882.
Nokkrar grafskriptir og erfiljóð aptan við «út-
fararminningar» í Jpjóðólíi og Norðanfara.
Skúlaröð á Möðruvöllum.
eptir 2. próf, fyrír jólin
2. Bekkur
1. Árni Hólm.
2. Guðmundur Davíðsson.
3. Guðmundur Ogmundsson.
4. Brynjólfur Bjarnason.
5. Ólafur Thorlacius
6. Björn Árnason.
7. Ólafur Jónsson.
8. Friðbjörn Bjarnarson.
var ekki raðað.
1. Bekkur
1. Hjálmar Sigurðarson.
2. Sveinn Ólafsson.
3. B.jarni Jónsson.
4. þorgils þorgilsson.
5. Bjarni Bjarnason.
6. Eggert Snorrason.
7. Sigurður Ketilsson.
8. Ágúst Guðmundsson.
9. Árni Bjarnarson. (veikur).
10. Júlíus Sigurðarson.
11. Gunnar Sveinsson.
12. Jón Hjaltalín. (ekki raðað).
13. Björn Einnbogason.
14. Sigfús Sveinbjarnarson.
15. Stefán Árnason.
16. Viggó E. Vedliolm.
17. þóröur Gunnarsson.
18. Eriðrik Guðjónsson.
19. ÍTón Bergmann Guðnason.
gekk ekki úndir próf.
— Síðla dags,13. þ. m., kom austanpóst-
ur Hallgrímur Ólafsson að austan hingað;
hann hafði verið 17 enn ekki 19 daga á leið-
iiiril austur, sem áður'riafði frjetzt, en hing-
að 19 daga.
— Öndverðlega í þessum mánuði er sagt
að sjera Ólafur Ölafsson (er sumir auknefndu
stúdent), sje látinn á Páfastöðum i Glaum-
bæjarsókn í Skagafirði. Hann hafði óskað
þess, að lík hans yrði flutt að Hólum í Hjalta-
dal og hann jarðaður þar við hlið konu sinn-
ar, sem dáinn er fyrir nokkrum árum.
— Húsbruni. 20. þ. m. brann á Nesi
í Höfðahverfi, nýbyggt timburhús til kaldra
lcola og mikið af fjármunum er þar voru inni.
— 26. þ. m. kom norðanpóstur hingað
aptur að sunnan.
Ánglýsingar.
Undirritaður býður mönnum til kaups:
rúgmjöl, sekkinn, 180 pd. á kr. 17,50
grjónamjöl----
haframjöl-----
hafragrjón----
kygggrjón,
baunir
konjakk, hverja
— 20,00
— 14,50
— 27,00 p. 16
a.
200 —
225 —
tunnu,
24,00 -
25,00 -
hjer
um bil 120 potta
-----fínt, flöskuna á
aquavít —------------
kaffi, beztu tegund, pundið
tegras —
tjöru, íinnska, tunnuna á
koltjöru ---
færi, 60 faðma, hvert
lóðarstrengi, 50 faðma, hvern
160,00
2,75
1.50
0,60
2,00
22,00
14,00
3.50
1,60
línuás-hespur, 40 faðma, hverja 1,20,
og ýms öunur færi og öngultauma.
Akureyri, 14. febrúar 1883.
Olaus Housken.
12V8-
11V.-
Óskil á munum, sendum með strand-
ferðuin póstskipanna næstliðið sumar.
Af munutn þeim, sem jeg undirskrifað-
ur átti von á í sumar með strandferðaskip-
unum frá Reykjavík til Akureyrar, vantar
mig enn 3 klyfjar, bundnar reipum. Ein
þeirra kassi með ýmsu i; meðal þessa var forn
prestshempa og stór karlmansfrakki úr svörtu
klæði. Önnur klyfin er poki eða 2 pokar
samanbundnlr, með ýmsum fatnaði í bæði af
fullornum og börnum, tveimur yfirsængum
og nokkru af borðbúnaði. þriðja klyfin er
poki með kýrhúð bundinni utanum, og í hon-
um reipi og rcipa-efni (ný tögl) svo og tals-
vert af skinnum. — Ailar þessar klyfjar voru
auðkendar með merkinu: „E. Th. Akureyri“
— Af því helzt cr líkindi til, að munir þessir
sjeu niður komnir á einhverjum verzlunar-
staða þeirra, sem skipin hafa komið til, —
þá bið jeg hjer með hvern þann afgreiðzlu-
mann þessara skipa, svo og hvern annan,
sem kynni að hafa orðið var við eitthtað af
þessu, — að láta mig vita það sem fyrst.
Saurbæ í Eyjafirði 16. febr. 1883.
Guðjón Hálfdánsson.
Matvara sú frá Englandi, sem úthlutuð
var Svalbarðs- og Sauðanesshreppum í
Norður-þingeyjarsýslu, er geymd hjer á
Akureyri, en sökum fjarlægðar nefndra
hreppa, hefi jeg tekizt á hendur, að selja
tjeða vöru, 5V2 tunnu rúg, 24. t. af stykkj-
uðum maís og 3 t. bygg, verð vörunnar er:
100 pund rúg 8 krónur með poka, 100 pd.
mais 7 kr. 50 aura með poka, 100 pd. bygg
6 kr. 50 a. með poka, mót peningum út í hönd
eða innskript til verzlunarstjórans á Oadeyri.
Akureyri, 26. febrúar 1883.
Sigfús Jónsson.
— Lýsing óskilafjár, er selt var í Skaga-
fjarðarsýslu haustið 1882.
í Lýtingsstaða hrepp.
1. Hvítur lambgeldingur, mark: Stýfthægra,
Vaglskora aptan vinstra.
2. Eins, sama mark.
3. Hvít ær 3 v., markleysa: stýtt eða sneitt
a. gagnb. v.
4. Hvítur s. veturg., mark: Sneitt fr. h.,
heilrifað v.
5. grá ær 4 vetra, mark: sýlt í liamar fj.
fr. h., meinast sneítt a. v.
6. Hvítkollótt ær 2 v., mark: Sneiðrifað fr.,
gagnfj. h., hvatrifað fj. a. v.
7. Hvíthyrnd ær 2 v., mark: Tvístýft fr.,
biti a. h., hvatt v.
8. Hvít Mmbg., mark: Stýft, fj.fr. h., stýft
vinstra.
9. Hvítur lambg., mark: Stýft af hálftaf fr.
h., vaglskorið a. v.
10. Grá hryssa 4 vetra, marklaus.
í Seiluhrepp.
j 1. hvítur lambhr. mark: Stúfrifað h., blað-
stýít a., 2 bitar fr. v.
I Ripurhrepp.
1. Hvíthyrnd lambg. mark: Sneiðrifað a. h.,
fjöður biti neðar a. v.
2. Hvítur lambhr., mark: Tvístýft fr., biti
a. h., stýft af hálftaf fr., biti a. v.
3. Grábíldóttur lambhr., mark: Sneitt fr.,
gat h., likast sneitt fr., vaglsk. a. v.
þeir sem sanna eignarrjett sinn á
óskilafje þessu, geta vitjað verðs þess að frá-
dregnum kostnaði, hjá þeim er selt hafa, til
næstkomandi septeinberloka 1883.
Skarðsá hinn 5. febrúarm. 1883.
E. Gottskálksson.
— Lýsing á óskilafje, sem selt var í Sval-
barðshrepp haustið 1882.
1. Hvíthornóttur haustgeldingur veturgam-
all, mark: Stýft h., gagnfjaðrað v.
2. Svartbíldóttur lainbhrútur, mark: Sýlt í
stúf, biti fr. hægra, hvatt vinstra.
3. Hvíthornótt lambgimbur, mark: Sneið-
rifað fr. biti a. hægra, biti a. vinstra.
þeir sem sanna eignarrjett sinn á
þessu óskilafje fyrir næstkomandi september-
mánaðarlok, mega vitja verðs þess til undir-
skrifaðs að frádregnum kostnaði.
Kúðá í jpistilíirði 4. janúar 1883.
Ólafur Jónsson.
Eigandi og ábyrgðarm.: Iljöru Jónsson.
Prentsmiðja Norðanf, B. M. Stephánsson.