Norðanfari - 26.06.1883, Síða 4
halda vörð um liann, pví fólk þyrpist að til
að kyssa vagninn, og yfir höfuð verður allt
heilagt, sem keisarinn snertir Við. fetta er
austrænn hugsunarháttur og austurálfulegur;
Norðurálfumenn og peir Eússar, sem hafa
peirra liugsunarhátt, munu aldrei knjekrjúpa
keisaranum sem hálfguði.
A s k o r u n.
Vjer, er á bókmenntafjelagsfundi höfum
verið kosnir í nefnd til pess, að búa til
prentunar nýja útgáfu af kvæðum Bjarna
amtmanns Thorarensens, leyfum oss að
skora á hvern pann, er skyldi kunna að hafa
undir höndum
kvæði eða lausavísur eptir hann
eða lionum eignaðar, enn fremur
sendibrjef cða
smáritgjörðir og allt pess konar,
að gjöra svo vei, að senda oss slíkt allt í
frumiiti eða afriti svo nákvæmu, sem unnt er.
Einnig biðjum vjer alla, sem kunna að
vita eitthvað, er skýrir kvæðin, svo sem aldur
peirra eða atvik að peim, að láta oss fá pað;
enn fremur að skýra oss frá æfiatriðum eða
smásögum (skrýtlum) um Bjarna, að svo
mikiu leyti, sem unnt er.
Ailt pess konar yrði helzt að vera komið
í hendur nefndinni fyrir árslok, og mætti
senda pað einhverjum af oss, og má skrif'a
oss alla á Eegenzen, Kjöbenhavn.
Kaupmannahöfn 26. d. maím. 1883.
Virðingarfyllst.
Bogi Th. Melsteð. Einar Hjörleifsson.
Einnur Jónsson. Hanues Hafsteinn.
Jón J>orkeIsson.
í aukablaði við „Norðanfara“ nr. 19. lil
20. þ. á., stendur grein ein, er undir eru
ritaðir „8. lyslhafcmlur‘í, par scm sagt er,
að jeg hafi boðist til að panta allar bækur
N'orðuráifunnai' o. s. frv., og síðan er óskað,
að jeg útvegi nokkrar íslenzkar bækur, er
þar eru tilgreindar.
í auglýsingu minni í 32. bl. „J>jóðólfs“
f. á. býðst jeg að vísu til að útvega allar
bækur Norður- og Vesturálfu, en vitanlega
þær einar, er fáanlegar eru í bókaverzlunum,
og verður titill þeirra, prentunarstaður og
„forleggjari“ að vera greinilega tiltekinn. En
bækur þær, scm taldar eru upp í nefndri
Norðanfaragrein, eru fyrst og frcmst allar
útseldar, og svo munu nöfn þeirra öll meir
og minna ónákvæmlega tilgreind, jafnvel þó
þau sjcu, að því er virðist, tekinn eptir aug-
lýsingn minni í fyrnefndu blaði „J>jóðólfs“,
þar sem jeg óska, að fá ýmsar bækur
k e y p t a r. En bókanöfnin í þeirri auglýs-
ingu cru stafrjett prentuð eptir handriti frá
próf. Willard Fiske, sem bað mig að útvega
þær bækur handa Cornell háskóla. Mjer
datt ekki í hug að breyta bókanöfnuinim
þcim, er liann bafði skrifað á pöntunarlista
þann, er hann sendi mjer, enda ætlaði jeg
að enga þörf bæri til þess.
Aö öðru leyti þykist jeg þekkja rödd
þá, er talar í þessari grein í „Norðanfara“.
Höfuudurinn er vitanlega hinn alkunni bóka-
bjeus, er mestum hluta æfi sinnar hefir varið
til að lesa titilblöð á gömlum bókum, en
aldrei komist svo langt, að liann hafi vitað
neitt um innihald þeirra, og veit ekkert í
sinn haus, nema gömul bókanöfn og prent-
unar ártöl. Hcfir hann með þessari grein
sinni ætlað að gjöra sig gleiðan og gildan
af lærdómi sinum. jpessi spekingur hefii' nú
reyndar mest allan sinn vísdóm úr skrifuðu
bókaregistri, er hann citt sinn keypti á upp-
boðsþingi fyrir fáeina skildinga.
— 64 —
Hann hefur nú verið að studjera það í
mörg ár, og setja hjer og hvar S það punkla
sína og kommur, og loksins kemur hann
svo ái' sinni fyrir borð, að han» fær fyrir
handritið nokkur hundruð króna úr gullkistu
almennings, og segist sjálfur vera höfundur
þess, þó hann eigi ekkert í þvl nema punkt-
ana og kommurnar. Jeg óska einungis, að
þetta bókaregistur (titlafræði kynni að mega
kalla það) verði svo áreiðanlegt, að í því
finnist hvergi Hkar villur eða ónákvæmni,
sem í nefndri auglýsingu minni í „|>jóðólfi“.
Eeykjavík, 28. maí 1883.
Kristján Ó. |>orgi'imsson.
Frjettir inn 1 en(1 ar.
Úr brjefi úr Kelduhverfi 30/4 — 83.
«Síðan um góukojnu liefir hjer mátt
heita öndvegis tíð; pá gjörði sterka sunnan-
vinda, stundum ofviðri, svo sem 1. marz, pá
var útsunnan veður svo mikið, að menn
muna ekki annað eins, en enginn skaði
varð að pví í pessari sveit. Um páska
gjörði kalda tíð með snjófalli rúma viku.
|>ann 29. mafz var norðan veður og hríð og
óvana-lega mikill sjávargangur á peim tíma
árs, braut hann byttu á Ejöllum og tætti í
símdur selanætur sem lágu í Fjallahöfn. Nú
er útlit fyrir góð skepnuliöld, pví víðast eiga
menn eptir dálítið af lieyi og fje er í sæmi-
legu útliti; höfðu menn eigi ætlað pað í
haust, pví heyföng eptir sumarið voru bæði
mjög lítil og skemmd, en ásetningur gífur-
legur. Heilsufar manna var ágætt á vetrinum,
pó stakk sjer niður vond hálsbólga á börnum
og dóu 2 úr henni lijer í sveit. Einnig hafa
látizt 2 bændur: Kristján Jóhannesarson á
Sultum og ísak Sigurðarson á Auðbjargar-
stöðum. Hann andaðist snögglega 13. p. m„
69 ára gamall. Húnn var greindarmaður í
betra lagi og hygginn, ráðvandur og vinsæll,
er lians pví saknað af peim sem hann pekktu.
Um sumarmálin byrjaði hjer rannsókn um
meintan sauðapjófnað; var gjörð leit á nokkrum
bæjum, en árangurinn varð lítill, pó hefir
einn bóndi, er hjá var leitað og sem eitt
sauðarskinn fannst lijá, án pess hann ætti
nokkurn sauðinn sjálfur, kannast við að hafa
tekið einn sauð og situr við pað enn pá».
Úr brjefi úr Eeykjavík 2% — 83.
«Fátt er að rita hjeðan, nema kalsa og sí-
felld frost til sveita á nóttum; norðanhríð pessa
dagana með snjókyngju á fjöllum, ínótteðvar,
frost og norðanhríð svo snjóskaflar komu við
lms og á milli púfna, að öðru leyti alhvítt,
en tók upp aptur, pví í dag var hitinn um
miðjan daginn 3°, en hríðarbálkur til vesturs
og norðurs; grasnál sú, er kom á dögunu.m
deyr með öllu út, sauðburður verður illur og
kýr ónýtar, hefir petta slæm áhrif og slæmar
afieiðingar til næsta árs og ella lengur, pegar
harðindabálkinum heldur sífellt áfram. Fisk-
afli er góður ef gæftir leyfðu. Síld liafa
menn aflað í net til beitu, • en ekki lítur út
fyrir að Norðmenn ætli að stunda pá veiði
hjer í petta sinn, enda mun síldarveiðin á
förum, pví síld kom lijer snemma í vor».
Úr öðru brjefi úr Beykjavík 1/6 — 83.
«Hinn fyrsta p. m. brann til kaldra kola,
hús mad. Guðrúnar Halldórsdóttur, ekkju
Egils sál. bókbindara, ásamt talsverðum
munum. Nokkrum gjöfum hefir pegar verið
skotið saman handa henui».
-J- J>ann 15 p. m. drukknaði í Blöndu
óðalsbóndi Jón Jónsson á Auðólfsstöðum í
Langadal í Húnavatnssýslu.
Hitt og Iietta.
A safninu í Westminster í Lundúnum,
er til sýnis 7 ára gömul stúlka, er mun eiga
fáa sína líka. Eptir sögn sýningarmannsins,
hafði Norðmaður einn, Carl Bock að nafni,
komið meða liana pangað og náð henni í
skógi nokkrum, nálægt borginni Laos á
Austur-Indlandi. Yið hirðina í Mandale er
sagt að sje, meðal annara fásjeðra skepna og
gripa, alloðnir menn með hala eða dindli,
Bock hjet peim launum, er gæti útvegað sjer
einhvern karl- eða kvennkyns af pví kyni,
sem kvað hafast við í skógunum nálægt
Mandale. J>etta heppnaðist honum með pví
móti, að hann náði í hjón með einu barni.
J>á stúlkan gekk eitthvað burt frá foreldrum
sínum, köllúðu pau til hennar ðg nefndu
hana «Kroa», og síðan hefir hún haldið nafni
pessu. Faðirinn deyði í Laos úr kóleru;
konungur bannaði pví að nokkur fengi móður-
ina gefins eða keypta, hvað sem í boði væri,
en Bock tókst pó loksins að fá barnið og pað
með sampykki konungsins í Síam, og að pað
mætti flytjast til Englands. Augu barnsins
eru dökk, stór og glaðleg, nefið er flatt og
nasaholurnar mjög litlar, kinnarnar miklar
og sem pokamyndaðar, en pað sem mest ein-
kennir liana er, að hún er alloðin yfir allan
líkamann. A höfðinu hefir hún svart liár
hrokkið og pykkt, sem nær ofan á kitinar;
hið annað af andlitinu og ofan á herðar er
loðið, handleggirnir sönnileiðis, og er liár
petta 1V2 puml. að lengd-. Svo er og sagt
að neðsti liðurinn í hryggnum sje óvanalega
langur og hangi niður sem rófa eða dindill.
Yöðvabyggingin kvað vera frábrugðin pví
venjulega á mönnum, sem ekki mun leynast
fyrir vísindamönnunum. «Kroa» er mjög
glaðlynd að náttúru og bullar dálítið í ensku.
Henni pykir vænt um að vera vel klædd og
borðalögð.
í Warschau, borg á Pólínalandi, er 6
ára drengur, er les blöð um stjórnarmál,
skilur frakknesku og les stjórnartíðindi Frakka,
pekkir alla stjól'nflokka og nöfn allra nafn-
togaðra stjórnarvitringa, og hefur skapað sjer
meining um stjórnarmál. Hann unnir mjög
i frístjórn Frakka, en við furstann Bismarck
er honum illa. Stefnu hinna ýmsu blaða
pekkir hann út í æsar.
Auglýsingar.
Tveir pokar hafa fundizt í Glæsibæjar
landareign, með nokkru af kaupstaðarvöru í
og fleiru smávegis. J>eir, sem sanna eignar-
rjett sinn að nefndum pokum, mega vitja
peirra hjá undirrituðum, með pví að greiða
fundarlaun og kostnað auglýsingar possarar.
Glæsibæ, 11 júní 1883.
Friðrik J>orsteinsson.
LEIPUB,
blað sem íslendingar í Winnipeg í Ameríku
gefa út, fæst í bókaverzlun minni fyrir 8
krónur árg., sem greiðast eiga fyrir fram.
Frb. Steinsson.
Yegna skulda minna til annara, lilýt jeg
hjer með að skora á alla pá, sem eru mjer enn
skuldugir fyrir «Norðanfara» og fleira frá und-
anförnum árum, að peir borgi í næstkomandi
júlí- eða ágúsmán. helzt í peningum; en peir,
sem ekki geta pað, pá með innskript til peirrar
verzlunar hvar jeg hefi reikning og peim hægast
að ráðstafa pví og skýra mjer frá pá pettaergjört.
Akureyri, 25. júní 1883.
Björn Jónsson.
Fjármark Eiríks Guðinundssonar á Breiða-
bóli í Svalbarðshrepp í J>ingeyjarsýslu: Biti
framan liægra, stýft gagnfjaðrað vinstra.
Eigandi og ábyrgðarm.: Björn Jónsson.
Prentað í prentsm. Nf. Gr. Guðmundsson.