Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.01.1865, Blaðsíða 4
5
legu og hverfulu hluti. »Elskið ekki heiminn, segir
postulinn, ekki heldur þá hluti, sem í honum eru; ef
nokkur elskar heiminn, í honum er ekki kærleiki föðurs-
ins, því alt það, sem í heiminum er, sem er fýsn holds-
ins, fýsn augnanna og stærilátt líferni, það er ekki frá
föðurnum, heldur frá heiminum« (1. Jóh. 2, 15.— 16.).
Kristur býður oss, »um fram alt að leita guðsríkis og
hans rettlætisu og fullvissar oss um, að þá muni oss
alt annað veitast« (Matth. 6, 33). Breytir þú þá eptir
hans boðum, þegar þú snýr þessu við og leitar þess
seinast, sem þú átt að leita fyrst, þegar þú um fram
ait leitar hinna jarðnesku hlula, en lætur guðsríki og
hans réttlæti sitja á hakanum? f>að er eins og þú hald-
ir, að ef þú leitar alls annars, þá muni guðsríki veitast
þér. f>ú gætir þess ekki, hvernig guðsríki er varið, að
það er »réttlæti, friður og fögnuður í heilögum anda«,
og »að ekki verður sagt: sjá! það er þar, eða það er
hér, því guðsríki er hið innra í yður« (Lúk. 17, 21.);
þú gætir þess ekki, að ef þú sökkur þér niður í á-
hyggjur og munað þessa jarðneska lífs, þá verður sál
þín óhæfileg fyrir hin andlegu og eilífu gæði, af þvi þú
hefir umgengni hjarta þíns her á jörðunni í stað þess
að þú um fram alt átt að hafa liana á himnum. Ef
þú ert heimsins og holdsins þræll, þá þjónar þú ekki
guði nö frelsara þínum, því »enginnkann tveimur herr-
um að þjóna«, og »hyggja holdsins«, segir postulinn,
»er fjandskapur í gegn guði, með því hún hlýðnast ekki
guðs lögmáli, af því hún getur það ekki« (Rómv. 8,7).
Æ! hugleiddu þessi alvarlegu og þýðingarmiklu orð
frelsara þíns: »ekki munu allir þeir, sem til mín segja:
herra, herra, koma í himnaríki, heldur þeir einir, sem
gjöra vilja míns himneska föðurs« (Matt. 7, 21). Enn