Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.01.1865, Qupperneq 5
6
fremur heflr Kristur sagt: »takið á yður mitt ok og
lærið af mér, því eg er hógvær og af hjarta lítillátur og
munuð þér hugsvölun flnna, því mitt ok er inndælt og
mín byrði létt (Matth. 11, 29—30). Ileflr þú, kristinn
maður! hlýðnazt þessu boði frclsara þíns? hefir þú liaft
hans heilaga dæmi fyrir augum lil að líkjast honum í
auðmýkt, lítillæti og mannelsku, í hlýðni við guð og
undirgefni undir lians vísdómsfulla og gæzkuríka vilja?
hefir þú með auðsveipni borið krossinn á eptir frels-
aranum og sagt af hjarta eins og hann: »faðir! þó ekki
minn, heldur verði þinn vilji?« Eða lá þér ekki fremur
við að mögla yfir drottins handleiðslu á þér, þegar þér
har eitthvað mótdrægt aðhöndum? Ileflr þú í meðlæt-
inu gefið guði dýrðina og þakkað honum fyrir miskun lians
og trúfesti, fyrir alla hans náð og velgjörðir við þig?
Eða lá þér ekki fremur við að ofmeluast í hjarta þínu,
þegar þér gekk alt að ósluim? hætti þer þá ekki frem-
ur við að þakka þetta sjálfum þér, dugnaði þíuum og'
framsýni þinni, en gleyma gjafaranum allra góðra hluta?
Hefir þér fundizt Jesú ok inndælt og lians byrði létt?
Hefir þér ekki öllu fremur fundizt það þungur kross og
óbærileg byrði að þurfa að láta á móti þínum holdlegu
girndum og tilhneigingum? að þurfa að afneita sjálfum
þér og heiminum til að fylgja Jesú? Æ\ kristinn mað-
ur! hafðu ekki þá afsökun til að fegra með breyskleika
þinn og yfirsjónir, að margir breyti eins og þú, eða
jafnvel verr en þú. þetta er sú viðbára, sem heims-
ins börn hafa á reiðum höndum, þegar guðs heilaga
orð sýnir þeim sálarástaud þeirra og samvizkan ætlar
að ónáða þau. En gætlu að, hvað vor guðdómlegi
frelsari sagði um hugarfar og breytni heimsins barna.
»I>að hlið er vítt« sagði hann, »og sá vegurer breiður,