Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.01.1865, Qupperneq 6

Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.01.1865, Qupperneq 6
7 sem liggur til glötunar, og margir eru þeir, sem hann ganga«; en um hinn sanna kristindóm kemst hann svo að orði: »hversu er það hlið þröngt og mjór sá vegur, er til lífsins leiðir, og fáir þeir, er hann rata« (Matth. 7, 13 — 14.). Ertu nokkru bættari fyrir það, þó þeir séu margir, sem fara villir vegar og ganga hinn breiða veginn? Eða lieldur þú, að þín eilífa ófarsæld verði minni fyrir það, þó þú komir í samfélag vondra og ó- guðlegra«. Eitt af því, sem einkennir heimsins börn og sýnir, að þau elska ekki guð, né tilheyra Kristi, eða eru hans lærisveinar, þó þau beri kristið nafn, er það, að þau hafa óbeit á að lesa guðsorð og hafa það um hönd. |>eim finst hver sú stund leið og löng, sem þau þurfa að sitja undir lieyrn guðsorðs, og þvi er ekki að búast við, að þau hlýði því með andakt og eptirtekt, eða heimfæri það til síns sálarástands, sér til uppvakn- ingar, huggunar og helgunar. Hinn holdlega lynti maður forðast að hugsa um dauða, eilífð og dóm; hann vill hvorki heyra né rannsaka lærdóma guðs heilaga orðs; hann grunar, að þeir muni ónáða hann og aptra honum frá að svala girndum sínum, og þess vegna byrgir liann augu sín og eyru fyrir áminningum þeirra. þar á mót vill hinn sannkristni fyrir hvern inun þekkja sálarástand sitt og gjöra sína útvalningu vissa; liann vill fyrir hvern mun vita, hvort sá vegur, sem liann gengur, Ieiðir til lífsins eða til glötunarinnar og prófar því lijarta sitt og líferni við Ijós Jesú sannleiksorða. Llinn holdlega lynti er svo önnum kafinn í sínum stund- legu og jarðnesku sýslunum, að hann gefur sér engan tíma til að hugsa um eilífðina. Ilinn sannkristni veit, að þetta tímanlega líf er stutt og fallvalt og að þá tek- ur við endalaus eilífð, og þess vegna lætur liann sér

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.