Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.01.1865, Síða 11

Kristileg smárit handa Íslendingum - 01.01.1865, Síða 11
12 brjósti mannsins, guðsótta, mannelsku og sóma- tilfinningu. Hann þykist elska guð; hann tárast, ef til vill, í ölæði sínu, og talar fagurlega um trú og guðsótta; en ávextir þessa guðsótta eru á hinni sömu stundu blót og formælingar og í öllu lífi hans ítrekaðar hrasanir; í viðræðum hans skiptast á vinahót og lofræður við óvið- urkvæmilegar atyrðingar, við ósanna, vægðarlausa og meiðandi dóma. Svona óáreiðanlegur og marklaus er guðsótti hans og mannelska; hjarta hans er lokað fyrir kveinstöfum krossburðarins, og hvernig mundi hann vilja bjarga nauðstöddum bróður, fyrst hann hikar sér ekki við að taka bitann frá munni hungraðrar konu sinnar og barna til þess að svaia þessari eituríiöngun sinni, og til þess að drekka frá sér vitið fyrir hann og flytja, ef til vill, í staðinn ófrið og formælingar inn í húsið. J>að er ekki ofdrykkjumaðnrinn, sem líkist hinum miskunsarna Samarítan í að hjálpa þeim, sem hrasaður var meðal ræningja, heldur fyllir hann sjálfur ræningjanna flokk; er ekki kona, eru ekki börn, eru ekki hjú ofdrykkju- mannsins, eru ekki faðir lians og móðir á gamalsaldri, og allir vinir hans og vandamenn hrasaðir á meðal ræn- ingja, þar sem hann á hlutinn að? Er ekki það sveit- arfélag, þar sem margir eru ofdrykkjumenn, og þó þeir séu ekki nema drykkjumenn, hrasað á meðal ræningja? Ræna þeir ekki eigum sínum handa þessari syndsam- legu fýsn sinni, handa vanheiisu sinni og ófarsæld? Ræna þeir ekki eigum sínum frá þurfamönnum Jesú Krists, frá menningu barna sinna, frá uppeldi konu sinn- ar, foreldra og lijúa, frá skuldalúkningum og skyidu- gjöldum til félagsins? [>að eru ofdrykkjumennirnir sem eru ræningjar mannlegs félags, sem drepa niður ölium ávaxtarsömum guðsótta og mannkærleika í

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.