Kristileg smárit handa Íslendingum - 03.01.1869, Side 1
KRISTILEG SMÍRIT
BANDA ÍSLENDINGUM.
X 3.
HINN GERSKI (RÚSSNESKI) SIIRADDARI.
Frásaga þessi segir frá manni nokkrum, sem ekki
bætti ráð sitt fyrr en á elliárum, en varð eptir það ó-
þreytanlegur í að efla og útbreiða guðs ríki, og er hún
rituð af presti liins enska safnaðar í Pétursborg, höfuð-
stað Garðaríkis eða Rússlands, sem þekkti þenna skradd-
ara, og hljóðar lnin þannig:
Skraddari þessi fór á unga aldri til Englands, og
varð þar sjómaður. Þaðan fór hann fyrst með skipi
einu, er flutti svarta þræla úr Suðurálfu til Vestureyja;
fór hann þessa ferð sex sinnuni, og sá margt liryllilegt
og miskunarlaust athæíi þessara manseljenda; var hann
og sjálfur opt staddur í lífshættum, en guð viðhélt lífi
lians. Síðan gekk hann í enska herþjónustu, og missti
annað augað í sjóorrustu, svo að hann varð að fá lausn
úr liðsmannatölu. Hann hafði því í æskunni lifaðmarga
alvörustund, en hvorki höfðu syndir þær og lestir, sem
fyrir hann liöfðu borið, né þær hinar mörgu lífshættur,
sem hann hafði ralað í, getað vakið hjá honum iðrun
og apturhvarf, eðanokkra hugsun um að búa sig undir
eilífðina. Hjarta hans var hart eins og steinn; og hann
álli engan vin, sem gæti áminnt hann, og þekkti ekkcrl
guðsbarn, sem gæti sagt honum til vegar og vísað honum
3. ár.