Baldur - 30.04.1868, Side 1

Baldur - 30.04.1868, Side 1
Auglýsingar og grein- ir um einstaMeg efni eru telcin í blað þetta, ef borgaðir eru 3 sfe. fyrir hverja línu meS smáu letri (5 sfe. með Stcerra Jetri). Kaup- endur fá helmings af- slátt. Sendur Jcaup- endum óJceypis. Þeir, er vilja semja um eitthvað við rilstjórn blaðs þessa, snúi sjer í því efni til ábyrgð- armannsins, FriðriJts bóJcbind. Guðmunds- sonar, er býr í húsinu nr. 3 i IngóJfsbreJcJcu. Verð bJaðsins er 24sJt. ár-þriðjungur hver (6 bJöð), og borgist fyrir- fram. 1. ár. Efni: Skipakoma. — Frjettir útl. — Dm dysjarnar á Hafurbjarnar- stó&om. — Frjettir iun!. —Prestakall.— Neílanm.i AfJóni Espólín (frh ). SKIPAIÍOMA. 24. d. apríl-m. Christine Marie, 24V2 lestir, frá Englandi, skiph. J. L. Petersen, fermd matvöru og ýmsu fleiru til faktors Sivertsens hjer í bænum. 25. d. apríl-m. Hanne, 39 1., fráEnglandi, skiph. P. J. Peter- sen, fermdmeð salt, kol o. fl. til verzlunar Jacobsens & Co. 27. d. apríl-m. Áfram, 20 lestir, fermt rneð ýmsa vöru, til konsúls E. Siemsens verzlunar, skiph. H. G. Beldring. FRJETTia ÉTLEINDAR. í Frakklandi er herútbúnaður hinn mesti, svo sem sagt er áður frá. Um míðjan vetur (eptir ný-árið) komust á ný útboðslög áFrakklandi, og verður eptirþeim 1248000 manna boðið út. Skulu 400000 vera megin-herinn, en önnur 400 þúsunda skulu vera heima í landinu, en 448 þúsundir skulu vera varalið. Er það að vísu mikíll herafli, að geta út boðið meiru en millíón manna. Vjer gátum þess síðast, að Napóleon keisarafrændi hefði ferðazt í vetur til Þýzkalands, og var hann kominn heim aptur til Frakklands í marz-mán. Veit enginn neitt um ferð hans enn, til hvers hún hefur gerð verið. En það segja frönsk stjórnarblöð, að eigi hafi sú ferð verið gerð frá stjórnarinnar hálfu, enda hafl enga þýðingu fyrir stjórnir ríkja í Norðurálfu, heldur hafl prinzinn farið ferð þessa sinna erinda. — Eptir það að Frakkar höfðu hlutazt tii um í haust, að halda í liemilinn á hinu verzlega valdi páfans, og bægja Garibaldi brott, var mikið um rætt, hve fara skyldi með mál ítalinga. ítalingar ljetu það skýrt og skorinort í Ijósi, bæði öll þjóðin og jafnvel æðsti ráðgjafl Viktors konungs, að eigi væri við unanda fyrr, en Róm væri gjört að höfuðborg alls Ítalía. En ráðgjafl Frakkakonungs tók þar skarið af í einni þing- ræðu sinni, og sagði það skyldu aldri verða. Nú þótti vant úr að ráða, þar sem vilji hinnar ítölsku þjóðar var: «það sJcal verða!» en orð Frakka-ráðgjafa: »það skal aldri verða» var hinum megin. Napóleon keisari vildi því kalla saman fund, og skyldu þar koma saman ráðendur ríkja og ræða mál páfans og ítalinga. En af því að menn sáu engin horf á, að sátt og samlyndi myndi vinnast á þann hátt, 6. blað. þá fórst það fyrir, og er svo eigi út kljáð það mál enn. Upphlaupið á Iírít heldur enn á fram, og er mælt, að Rússar rói þar undir; munu Rússar ætla að hafa gott af, ef að Tyrkjum þrengir. En verði stríð milli Rússa og Tyrkja, þá hafa Austurríkismenn sagt, að þeir yrði að sker- ast í leik með Tyrkjum, en Rússar vilja fyrir hvern mun, að stórveldin sje hlutlaus, sitji hjá og sjái á. Rússar hafa nú í vetur gert út af við það, sem eptir var af pólsku þjóðerni, af tekið alla sjer staka stjórnarskipun þess, og dregið stjórnina undir Rússland, svo að nú eru eyddar hínar síðustu leifar af Pólen, sem ríJci. En mælt er, að Napóleon muni vilja hlutast til um það, að halda hinu pólska ríJci við lýði, (að nafninu til ?), en eigi er það þó sannfrjett, en nokkurn veginn víst er það talið í dönsk- um blöðum; en sje svo, að hann ætli að hlutast tii um mál Rússa og Pólverja, þá lítur eigi friðlega út, því að Rússar þola eigi, að útlend ríki láti til sín taka innanríkis- stjórn þeirra; sje því fregnin sönn, sem talið er víst, þá má og telja ófriðinn vísan. Napóleon keisari og stjórnarblöðin frakknesku prje- dika það allt af, að allt sje friðvænlegt, en orð og gerðir fara þar eigi saman, þar sem ávallt er hinn mesti herút- búnaður, og fáír láta sjer koma í hug, að festa trúnað á friðarþulur Frakka-stjórnar. England óskar, að góður friður og eining haldist um Norðurálfuna, en það er að eins óskin ein. Þar í landi eru ávallt óeirðir og samsæri, er Feniar gera, og er þó hver sekur maður vægðariaust hengdur. Kyrkju-mál íra situr enn ólokið, og er mælt, að það skuli verða út kljáð í parlamentinu 30. d. þ. m. Svo lesendur eigi hægra með að átta sig á kyrkju-máli íra, skulum vjer í fám orðum skýra frá, hvernig á því stendur. Ilinrik konungur áttundi reif sig undan veldi páfans, og lögleiddi prótestanta-trú í Englandi, en írar sátu við sinn kaþólska keip, og urðu því fyrir ofsóknum. Eignir, tekjur og ítök hinnar kaþólsku kyrkju á írlandi var allt lagt undir prótestanta-kyrkju. írar voru neyddir til að tíunda og Ijúka gjöld öll til prótestanta, þótt flestir írar væri kaþólskir. Þeir urðu með gjöldum þeim, er á þá voru lagin, að ala og við halda prótestanta- Reykjavík 30. dag apríl-mánaðar, 1868. 21

x

Baldur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Baldur
https://timarit.is/publication/90

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.