Baldur - 07.07.1869, Page 2
42
anum á ýmsu, einkum kramvöru og brennivíni, og hefl eg
heyrt höfð eptir úr því brjefl þessi minnilegu orð, n($ nú
væri eimnitt tími kominn til fyrir kaup-
menn lijer á landi, að liafa sig npp á
verzlnn sinni. þarna liafa nú íslendingar evan-
gelíum samkundunnaro.
Verðiag á íslenzkum vörum í Reykjavík.
Eptir því sem vjer höfum komizt næst, heflr verzlun-
arsamkundan í Reykjavík ákveðið eptirfylgjandi fast verð á
íslenzkum vörum.
harður fiskur 27 rd.
saltfiskur vel vandaður 19 rd., þó eptir vörumats-
manna mati 2 rd. meir fyrir prima (afbragð).
saltflskr nr. 2 . . 17rd.
— — 3 . . 15 —
isa....................15 —
hákarlslýsi með tunnu 27 —
þorskalýsi hrátt — 25 —
— soðið —
gota, tunnan . ,
hvít ull vel vönduð
tólg................
fyrir lýsi í kútatali
7—8 mörk kútinn.
22 V3 rd.
10 rd.
26 sk. 2 sk. í ferðakostnað.
. . 18 —
dúnn . . . 5Va rd.
Verðlag á útlendum vörum hið sama og áður (sjá
«Baldur» bls. 40).
Þegar nú þetta verð á íslenzkum vörum bætist ofan á
verðið á útlendu vörunum, þá skal oss ekki furða, þótt
bændur verði linir að leggja inn vörur sínar hjá Reykja-
víkurkaupmönnum, og er þeim það ekki láandi, þegar þeir
heyra betri prísa frá flestum öðrum verzlunarstöðum. Svo
að vjer minnumst lítið eitt á fiskverðið, þá ímyndum vjer
oss, að kaupmönnum sé engin vorkun, að gefa að minnsta
kosti jafnmikið fyrir fiskinn og í fyrra, með því þeir nú
standa enn betur að vígi, þar sem tollurinn á fiski er að
mestu af numinn á Spáni. Eins og vjer höfum áðurgetið,
(sjá Baldur þ. á. bls. 27.) þóttu allar líkur til, að íslenzk
ull mundi eigi seljast síður í Englandi en í fyrra, og telj-
um vjer ástæðulítið fyrir kaupmenn, að setja verðiðáhenni
niður að svo miklum mun, enda hefir og lauslega frjetzt,
að prísinn á Borðeyri væri 2 mrk, og það undir eins og
skip kom þar.
SAMVINNA OG FJELAGSSKAPER.
(Niðurlag). Slíkt verzlunarfjelag gæti því með skyn-
samlegu fyrirkomulagi og framkvæmdarsemi eílst að vel-
megun; en það, er allra mest yrði tit að styrkja og efla
framfarir þess og velmegun væri það, að merin gæti með
fjelagsskapnum reist skorður við enni óhæfulegu nautn
munaðarvörunnar, sem keyrir fram úr hófi hjá óss; gæt-
um að kæru landar! hve marga peninga vjer brúkum í
kaíTi og öiföngum, skoðið reikninga bænda, og það sveita-
bændanna, hjá kaupmönnum, og þjer munuð komast að
raun um, að 2/, af reikningsupphæðinni er munaðarvaran,
og þó eru eigi öll kurl komin til grafar þó reikningurinn
sje skoðaður; vjer skulum einungis líta á kaffibrúkunina;
það eru ekki alleina kaffibaunirnar, sem vjer kaupum og
njótum; jeg þori að fullyrða, að enginn getur reiknað sjer
kaffipundið undir ríkisdal, ef menn vilja gæta alls,sem til þess
þarf; fyrst er nú kaffið sjálft, eldiviður og tími til að brenna
og hita það, og svo rjómi og sikur; og hversu margur ó-
þarfi slæðist ekki í reikninga manna þar fyrir utan hjá
kaupmanninum, sem fjelagsskapurinn mundi útiloka, að
minnsta kosti þangað til að efnahagurinn leyfði að njóta
munaðarins, sem ætíð ætti að vera hóflega.
Aðgætum einnig nautn hinna áfengu drykkja, eða öl-
fanga yfir höfuð! Hve ósegjanlega mörg dæmi höfum vjer
eigi um hinar sorglegu afleiðingar drykkjuskaparins? hve
margur ungur og efnilegur maður hefir ekki eyðilagt heilsu
sína, fjör og álit viðölborðið? hve margur, sem hefði getað
verið dugandi maður, hefir ekki orðið að láta börn vanta
daglegt brauð, af því hann hefir matið meir ölkrúsina, en
að afla sjer atvinnu? Hve ósegjanlega mörgum pening-
um eyðum vjer íslendingar árlega árs í ölföngum, auk alls
tímaspillis, sem af drykkjuskapnum leiðir, og þó hefir eng-
inn af oss atvinnu af, að afla sjer þeirra, því vjer vitum
sjálfir, að hver dropi er fluttur frá útlöndum, og vjer kaup-
um ölföngin næstum helmingi dýrari, en þau kosta erlendis;
meðan vjerbreytum þannig getum vjersagt eins ogFrank-
lín forðum: vjer gefum of mikið fyrir hljóðpípur vorar.
Ef þjer viljið nú heiðruðu landar! gefa nokkurn gaum
að þessum athugasemdum mínum, skal jeg síðarmeir, ef
jeg get því í verk komið, láta í ljósi álit mitt um fyrir-
komulag slíks félagsskapar, er hjer ræðir um. Jeg efa
ekki, að þjer sjáið hve mikið gott getur leittaf ijelagsskap,
samheldi og samtökum, og hverjir þurfa þess fremur en
vjer, sem eru svo fátækir? og þó sjá menn að fjelög eiga
sjer allstaðar stað. Ef vjer lítum til hinna ríku Englend-
inga, sjáum vjer að öll hin stærri fyrirtæki þeirra eru stofn-
uð með samskotum og fjelagsskap. Athugið þetta íslend-
ingar! og útrýmið úr hýbýlum yðar tortryggni og fjelags-
leysi. Sveitabóndi.
* ★
¥
Ritgjörð þessari er, eins og flestum um það efni, það
ábótavant, að hún eigi bendir á nein meðöl til þess að koma
slíkum fjelagsskap á, en vjer höfum tekið hana upp í blaðið
einungis vegna þess, að höfundurinn, eins og hann bendir
til, hefir lofað oss, síðar að koma með ritgjörð, er sýni
beinlínis, hvernig fyrirkomulag slíks fjelagsskapar í fleiru
tilliti ætti að vera. Ritstj.
(AÍlsent).
UM FERÐIR TIL AMERÍKU.
f seinasta blaði Baldurs er drepið á með fáum orðum
um burtför nokkurra íslendinga hjeðan úr landi, er ætla að
flytja sig til Ameríku; jafnvel þó tilgangur greinarinnar sje
vel meintur, miðar hann þó lielzt að því, að menn skuli