Fréttir frá Íslandi - 01.01.1873, Page 24

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1873, Page 24
24 ATViNNUVEGIli. anförnum árum, hafa enn staSið í góSu gengi, og önnur ný verið mynduð. Eptir ágizkun er fje Jiað, sem ná er lagt í verzlunarfjelög, nálægt 150000 rd. Um framkvæmdir hinna einstöku verzlunarfjelaga skal hjer fljótt yfir farið. Gránufjelagið hefur jafnan haft bezt almenningstraust af öll- um hinum innlendu verzlunarfjelögum, enda hefur verzlun jiess að flestu leyti gengið ágætlega, og fjelagið allajafna staðið í beztu skilum við alla hlutaðeigendur. Fyrir næstliðið ár var fjelagsmönnum úthlutað sem ágóða 6% af eign Jeirra í fjelagshlutum. Eigi að síðnr kom kurr nokkur í suma fjelagsmenn útaf samningi nokkrum, er framkvæmdarstjóri fjelagsins hafði gjört við Englendinga um fjenaðarsölu. Tildrög þessa samnings voru þau, að nokkrir pingeyingar, Eyfirðingar og Skagfirðingar höfðu fengið mann til að semja fyrir þeirra hönd við Englendinga um sölu á sauðfje, hestum og nautgripum, en hann fjekk aptur framkvæmdarstjóra Gránufjelagsins, er þá fór til Englands, umboð til þess af sinni hendi; hann tók við um- boðinu, og fjekk á Englandi gjörðan samning um sölu á 200 hestum og 3000 sauðum; samning jþennan gjörði hann í nafni Gránufjelagsins, með pví að hann var eingöngu í þess erindum og einnig sökum þess, að fjár- eigendurnir höfðu lofað talsverðum umboðslaunum, er hann ætlaðist til að íjelagið fengi. Eigi verður annað séð, en að samningur þessi hafi verið vel viðunanlegur fyrir alla hlutaðeigendur, en eigi að síður varð liann þó að nokkru leyti til að spilla fyrir fjelaginu, þar eð verð á hestum varð seinna um sumarið miklum mun meira en framkvæmdarstjóri fjelagsins hafðiget- að búizt við. Svo hafði og verið um samið, að skip eitt frá Skotlandi skyldi í byrjun septembermánaðar koma áAlmreyri og sœkja Jiangað 1100 sauði; skipið kom 10 dögum seinna en ákveðið var, tók að eins 890 sauði, og ljet af þeim 190 óborgaða; 210 skildi það eptir. petta voru beinustu samningsrof af hálfu kaupanda, með pví að hann hafði skuldbundið sig til að taka allt fjeð og greiða borgun fyrir pað þá þegar; en af þessu leiddi, að Gránufjelagið gat ekki að svo komnu staðið í skilum með allt andvirði sauðanna sem eðlilegt var. petta notuðu óvildarmenn fjelagsins til að kasta skugga á það, en eigi er þó svo að sjá sem það hafi orðið því noklc- ur verulegur hnekkir, og sjálfsagt þykir, að það fái fulla uppreisn sinna mála. Gránufjelagið keypti næstliðið ár nokkur timburhús á Seyðisflrði, og flutti eitt þeirra á Oddeyri, þar sem fj elagið hefur fasta verzlun. Marg- ir gengu enn í fjelagið, og þar á meðal einkum Austur-Skaptfellingar, er buðust til að leggja fram talsvert fje, ef fjelagið verzlaði á Papós. — Fjelagsverzlunin við Húnafióa hefur talsvert eflzt næstliðið ár og gengið allgreiðlega. Margir gengu í 5 ára samninginn, eða hjetu því að verzla eingöngu við fjelagið í 5 ár; en eigi að síður hefur engan veginn tekizt að ná tilganginum með þessum 5 ára samningi, eða því, að bola með öllu burtu verzlun danskra kaupmanna; til þess erfjelagið, þrátt fyrir allan viðgang þess, allt of magnlítið, því að oigi hafa enn svo margir gengið í fjelagið, að það hafi getað sjeð fyrir fullnógum vörubirgðum. Auk Ilúnvetninga og SkagfirÖinga hafa nú margir Mýramenn og Borgfirðingar

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.