Tíminn - 31.12.1872, Page 2
14
inn» nefndi þá sem að honum þætti bezt færir
til þessa, mönnum til leiðbeiningar, án þess að
gjöra það að kappsmáli. 17 + 4.
«Tíminn» ieyflr sjer eptir tilmælum greinar-
innar hjer að framan, að stinga upp á nokkrum
mönnum í bæjarstjórnina, án þess þó að hann
ætli sjer að breyta skoðun og eigin sannfæringu
kjósendanna, en mennirnir eru þessir:
Magnús assessor Stephensen.
Halldór skólakennari Friðriksson.
Pjetur Jónasson, landfógetaskrifari.
Geir Zöega, glerskeri.
UM JÁRNGJÖRÐ FORNU ÍSLENDINGA.
Rita?) af Dr. HJaltalín.
Með því að enginn sá málmur er til, er þarfari
sje en járnið, þá var það með náttúrlegum hætti,
að hinirfornu íslendingar, sem í öllu sýndu sodd-
an dugnað og framkvæmdir, leituðu fyrir sjer,
hvort járn mundi eigi vera til hjer á landi. Þeim
virðist og að hafa tekizt þetta vonum fremur, sem
sjá má af sögum vorum. Hinn fyrsti maður, er
hjer hafði járngjörð um hönd var Rauða-Björn,
er bjó í Dalsmynni, og fer landnámabók þar um
þessum orðum: «Rauða-Björn bjó at Dalsmynni.
Hann blés fyrstr manna rauða á íslandi, ok var
hann því kallaðr Rauða-Björn». I Egilssögu
Skallagrímssonar (kap. 30) er getið um járngjörð
Skallagríms, og er meiningin þessi. Skallagrímur
var járnsmiður mikill og hafði rauðablástur mikinn
á vetrum. Hann ljet gjöra smiðju með sjónum,
mjög langt út frá Borg, þar, sem heitir Raufarnes.
Af því engan stóran stein var að fá á landi, þá
sótti hann slíkan stein á stóru skipi, og gekk
sjálfur til botns eptir honum, og við þenna stein
lúði hann járnið. Það er og sagt í sögunni, að
þessi steinn hafi staðið þar, er sagan var ritnð.
í Grettissögu er talað um járngjörð í’orsteins
Kuggasonar í Ljáskógum, og fer sagan um það
svo felldum orðum : uÞorsteinn var iðjumaðr
mikill ok smiðr, ok hélt mönnum mjök tit starfa.
Grettir var lítill verklundarmaðr, ok því fór lítt
skap þeirra saman. jþorsteinn hafði látið gjöra
kyrkju á bæ sínum. Hann lét gjöra brú heiman
frá bænum. Hún var gjör með hagleik miklum.
En utan á brúnni undir ásum þeim, er upp
héldu brúnni, var gjört með hringjum ok dyn-
bjöllum, svá at heyrði yflr til Skarðstaða, hálfa
viku sjávar, er gengið var um brúna, svá hristust
hringirnir. Hafði þorsteinn mikinn starfa fyrir
þessari smíð, því at hann var járngjörðarmaðr
mikill. Grettir var atgangsmikill at drepa járnið,
en nennti misjafnt».
Til að skilja þau orð, er koma fyrir í þess-
um hjernefndu stuttu skýringum um járngjörð
fornmanna, vil jeg geta þess, að járngjörð þeirra
hefir, eins og vænta var, verið hin einfaldasta, en
þetta stendur á litlu, því að það er vist að þeir
bræddu járnið úr járnsteinunum á líkan máta, og
enn tíðkast í ýmsum löndum, einkum austurlönd-
um. Þeirhafa sem sje, hlaðið viðarkolum ogjárn-
steinum fyrir smiðjuaflinn, og blásið svo að með
einum eða fleiri belgjum, unz járnsteinninn bráðn-
aði, en þegar járnsteinninn bráðnar á þenna hátt
þá er það með náttúrleguin hætti að hann heflr
farið innanum gjallið í stærri og minni hnyklum.
í’etta hafa menn nú tekið meðan það var glóandi
og lagt það á steiu, til að berja úr því soran,
og til þess að járnhnyklarnir hnoðuðust saman og
yrðu meira samanhangandi, og þetta hafa menn
ýmist kallað að drepa eða lýja járnið. Orðið að
drepa járnið sýnist mjer að bendi á það, að þeir
með sleggjum eða járnhömrum hafl eins og hnoð-
að saman járnhnyklana meðan þeir voru glóandi,
en það er einmitt það sem menn gjöra enn á vor-
um dögum, þar sem þessi járngjörð enn þá er um
hönd höfð. Menn kalla t. a. m. að drepa smjör-
inu, er maður hnoðar fleiri smjörhnykla saman,
svo þeir verði eins og að einni heild, og þetta
orð hygg jeg að hafl færzt yfir á járnið, þar sem
menn börðu járnhnyklana saman. Að drepa járnið
hefir stundum verið kallað að lýja það, og líkt
orðatiltæki hafa menn enn í dag um samskonar
járngjörð, er steypijárn er gjört að smíðajárni.
Það er alllíklegt að menn í fornsögum vorum
finni enn þá fleiri dæmi upp á járngjörð forn-
manna, en hjer er getið. En hjer vil jeg að eins
bæta þvi við, er stendur i Konungs-skuggsjá, sem