Tíminn - 15.10.1873, Blaðsíða 6
94
arveiðar, hefir þeim sem öðrum orðið gott til
fanga afbáðum þessum flskitegundum, því í sum-
ar hefir einnig síldin gengið inn í botn, ekki ein-
ungis þar, heidur og líka bæði á Reyðar- og
Mjóafjörðum; um Norðfjörð hefl jeg ei beyrt, nje
fjörðinn fyrir sunnan Revðarfjörð. Kaupverzlun
varð hjer austanlands viðunanieg í ár, þegar öllu
er á botninn hvolft, enda eru því allmargir að til-
tölu sem um hana keppa; þannig munu þeir hafa
verið einir 10—12 nm hana í ár. Jeg veit
ekki betur, en að verðlagið hafl aimennt
verið þetta: rúgur 10 rdl., ertur 12, bbygg M,
kaffi 44 sk., sykur 26 að meðaltali, hlutuð hrís-
grjón frá 6—10 sk. pundið. íslenzka varan apt-
ur á móti: hvít ull 52 sk, og jafnvel allt að 56 sk.
mislit ull 40 sk. hákallslýsi á 25 rdl. tunnan,
þorskalýsi 21 rdl. tunnan, saltflskur 5 rdl. vættin
til jafnaðar, söltuð ísa 3 rd. 3 mrk., harðfiskur
marílattur, um 7 rdl. vættin að meðaltali; æðar-
dún 7, og 7 og hálfan rdl. eptir því sem heyrzt
heflr. Fjárkaupaskip frá Englandi er að sögn
væntanlegt, á Eskifjörð í haust, og jafnvel á Seyð-
isfjörð og er þegar farið að hugsa fyrir hæfilegum
viðtökum á því, en hvað um þetta verður, er
enn ósjeð. . . .
— Úr brjefi frá Khöfn dags. 26. sept. þ. árs.
«Hjeðan er ekkert sjerlegt að frjetta. Afar rign-
ingasamt hefir verið hjer í sumar og kornvöxtur
því í lakara lagi, og ef nú ekki bráðum breytist
til þurrka, þá verða bændur í vandræðum með að
ná heim kornvörunni af ökrunum. Allt af er hjer
allt að hækka í verði, jeg skal að eins nefna 8 pd.
rúgbrauð, kostaði þegar jeg kom hjer fyrst (1862)
18sk., nú kostar það 36 sk., og fiestar nauðsynjar
eru hækkaðar í verði að þessu skapi, svo hjer er
nú ekki orðið gott að komast af, en þetta á sjer
nú orðið stað víðarn.
— í Frakklandi er prentsmiðja í hinni nafn-
kenndu byggingu sem fyrrum nefndist palais Sou-
bise, sem forðum var aðsetursstaður kardínála
Rohan, f garðinum stendur nafnkennd stór mynd
af Guttenberg. Á fyrsta sal er letursteypusmiðja
með 6 maskínum, og hver maskína steypir 1000
stafi á klukkutíma. í sjálfri prentstofunni eru 37
hraðpressur og 60 handpressur. Prentsmiðjan er
upplýst með 1800 gasljósum. Bókasafnið er sjer-
lega merkilegt, því í því finnst allt hvað prentað
hefur verið í prentsroiðjunni síðan 1640. I þjón-
ustu prentsmiðjunnar eru 970 manns, nefnilega:
240 setjarar, 41 letursteyparar, 210 þrikkjarar, 44
teiknarar, 377 maskínufólk og 56 þjónar, hjer á
meðal eru þó 315 kvennmenn, sem brjóta og inn-
binda bækurnar. J>ær fá í daglaun 2—4 franka
en karlmennirnlr 5—10 franka. Umsjónarmenn
eru 87 tölu og hafa samtals í árleg laun 285,000
franka. Útgjöld til ljósa og eldiviðar eru hálf
þriðja millíón franka um árið.
— Heiðruðuhaupendur «Tímans»! nú hafið þjer
með þessu blaði hans, fengið árganginn heilann,
eptir því sem ákveðið var upphaflega, og viljum
vjer því við lok hans, mælast til þess við þá sem
enn eiga ógreidda borgunina fyrir þau bæði ár,
sem út eru komin af blaðinu, að þeir gjöri skil
fyrir henni sem fyrst, jafnframt þökkum vjer öll-
um þeim er stutt hafa að útsölu blaðsins, og greitt
borgunina í tækan tíma, sömuleiðis vægðar- og
vorkunsemi, er þier hafa sýnt blaðinu — sem
minnst er og líklega rírast allra blaðapostula hjer
á landi á slnum tlma, — sökum missmíða er við
játum að verið hafi á blaðinu, sem vænta má af
þeim er eigi hafa notið þeirrar sælu að feta leið
menntunarinnar. Rvík, 14. okt. 1873.
Útgefendurnir.
Gíjlr” Hnakhnr sá, frá handiðnamanna
«Tombolunni», sem auglýstur er í þessu blaði nr.
19. —20.; um hann var dregið 14. þ. m. á bæj-
arþingstofunni hjer í Reykjavík, undir umsjón bæj-
arfógeta; og vanst hann af amtmanni B. Thorberg
á M 29. Tombolunefnd handiðnam. í Rvík;
— PRESTAKALL: Stokkseyri í Arnessýslo er veitt
17. f. mán. sjera Gísla Thórarensen 4 Felli.
Útgefendur: N o k k r ir Reykvíkingar.
Abyrgðarmaður: Páll Eyjúlfsson.
Prentabur í prentBmibju íslande. Einar þórbarson.