Tíminn - 06.05.1874, Blaðsíða 2

Tíminn - 06.05.1874, Blaðsíða 2
38 því að gjöra það, bafi viljað vinna landi og lýð til framfara og farsældar. En hafa þeir þessa hugs- un enn? Eða hvernig er ástand fjelagsins nú? "Tíminn», sem öðru hverju var að prjedika um bindindi, hann tók tveim höndum við bindindisfje- laginu í Reykjavík í fyrra, og auglýsti mönnum lög þess. Síðan hefur hann ekki minnst orð á það, og ekkert af hinum fjórum Reykjavíkurblöðum. Menn eru nú farnir að vera hræddir um að það hafl oftekið sig þegar við fæðinguna, og hið mikla fjör, sem það fæddist með, hafl riðið því að fullu. Það er einkum 2. gr. bindindislaganna, sem styrkir menn í þeirri trú, að fjörið hafl fljótt dofnað, því mönnum finnst ekkert hafi komið fram, sem þeir eptir þessari grein gjörðu sjer vonir um frá fjelag- inu, og hvergi er þess gelið að bindindið hafi orðið almennara, en það var fyrir ári síðan. Aptur erþað 5. gr. nefndralaga, sem heldur mönn- um við þá trú að fjelagsmenn ekki hafl fækkað, nema svo sje, að lögin sjeu annaðhvort gjörsam- lega fótum troðin, eða úr giidi gengin. Forstöðu- nefnd fjelagsins gjörði því vel í því að auglýsa í blöðunum aðgjörðir sínar og ástand fjelagsins, nú er það hefur staðið eitt ár. Ábyrgðarmaður «Timans», sem í ræðum og ritum lætur sjer vera umhugað um bindindi, gjörir svo vel að taka við línum þessum. 1. apr. 1874. Árn. , »TIL AMERÍKUn1. Margir af lesendunum hafa án efa farið um Hafnargötu síðari hluta föstudags. Á föstudögum er vanalega skipað út nautpeningi sem fara á til Englands, og vesturförum til Ameríku. þegarmenn þennan dag ganga um götuna, þá er það ýmislegt sem fyrir augun ber. Innanum hinar skynlausu skepnur, sem leiddar eru til slátrunar, sjá menn ýmist sorglegar, ýmist blæilegar sjónir. Hjer og 1) Grein þessi er tekin úr „III. Tid hún erritn?) af dönsk- nm manni, sem nú er í Amiríkn (Carl Hohienberg), til danskra lesendra. Hjer er útlagt J>ab helzta úr greininni en rnörgu sleppt, t. a. m. ferbinni frá Danmörku til Englands, og þv( er fyrst ber fyrir vestnrfara, er þeir koma til Ameríku. Hjer er mest talaþ nm fertina frá Englandi til Ameríku. hvar sjá menn bóndamenn, sitjandi á kistum sín- um, sem hafa að geyma alla fjármuni þeirra, þeim hefur verið sagt, að þeir á allri leiðinni megiekki eilt augnablik af þeim víkja, þá verði þeim stolið. Stundum sjá menn mæður, 10—12 tilvonandi Am- eríkana, með 2 yngtsu börnin á handleggjunum, vera að leita að bændum sínum, stundum sjámenn föður eða móður vera að kveðja son eða dóttur í síðasta sinni, og eiga aldrei von á að sjá þau aptur í þessum heimi. það er ekki að undra þótt undarlegar tilfinn- finningar kvikni í brjóstum manna, er menn eru komnir út á skip það, er að fullu og öllu á að flytja menn frá ættjörðu sinni; þegar það leggur frá landi þá er eins og allt hið liðna líf standi mönnum í fersku minni. En þetta gleymist brátt; þegar landið er komið úr sýn, þá fara menn að hugsa um hina nýju ættjörð og háar vonir um ó- komna æfi fylla þá hugi og hjörtu manna. þetta verður þó aptur að gleymast um hríð fyrir erfið- leikum ferðarinnar. þegar menn komast í land á Englandi1), þá kernur umsjónarmaður eða móttökumaður Vestur- fara niður á bryggjuna, og skipar mönnum að standa í sömu sporum þangað til flutningur þeirra sje kominn i land. Síðan rekur hann þá sem sauði til slátrunar á járnbrautina og af henni aptur til húss þess, sem þeir eiga að búa í, á meðan þeir dvelja í Englandi. Þótt gufuskipsfjelögin skuldbindi sig til, að koma Vesturförum sem fyrst frá Englandi til Ameríku, þá skeyta þeir ekki meira um þetta en aðrar skuldbindingar sínar þegar til Englands er komið, og opt verða menn þar að bíða 12—14 daga til eigi lítils kostnaðarauka. Blaðið »New York Herald«í Ameríku gjörði út mann í vor til Liverpool, til þess að hann það- an tæki sjer far með vesturfaraskipi. Hann var huldu höfði með Vesturförum á miðdekkinu. Grein sú er kom út í blaðinu þegar hann kom heim aptur, skaut hlutaðeigandi gufuskipsfjelagi skelk íbringu. þá hittistsvo á, að á skipinu voru 1100 farþegjar, mikið meira en lögin leyfa. X) Hjer er sleppt fer&inni frá Damnörkn til Englande, en tekib vib aptnr þar, sem átt getnr heima einnig nm oss Is- lendinga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/96

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.