Tíminn - 12.06.1874, Qupperneq 4

Tíminn - 12.06.1874, Qupperneq 4
44 bótar, er hið síðasta alþingi samdi og sendi Yðar Konunglegu Hátign, þykir oss það eigi síður þakk- lætisvert, að Yðar Konungieg Hátign hefur tekið þá varauppástungu þingsins, sem þar var sam- þykkt nálega í einu hljóði, í öllu verulegu til greina. Að vísu er stjórnarskráin, eins og sagt er í hjer að lútandi auglýsingu Yðar Konunglegu Há- tignar til íslendinga, að mestu leyti byggð á frum- varpi því til stjórnarskipunarlaga, sem lagt var fyrir alþingi 1871 ; en vjer viðurkennum þó þakk- látlega, að hún veitir meira frelsi en það, eink- um að því leyti sem hún afnemur hina föstu fjár- hagsáætlun, er frumvarpið gjörði ráð fyrir og sem hlaut að hafa takmarkandi áhrif á fjárhagsráð þingsins. Yjer viðurkennum með þakklæti að með stjórnarskránni, er íslendingum veitt svo mikið frelsi og þjóðleg rjettindi, að skilyrðunum fyrir öflugum og heillaríkum framförum landsins, bæði í andlegum og líkamlegum efnum, sje með því svo fullnægt, að vjer ölum þá öruggu von í brjósti voru, að stjórnarbót þessi muni bera blessunar- ríka ávexti fyrir alda og óborna, með því að vjer treystum því, að stjórnin, þjóðin og þingið muni eptirleiðis leggjast á eitt, til að vinna að því í ein- drægni, sem Yðar Konunglega Hátign, hafið sjálfir svo mildilega sagt, að sje sameiginlegt mark og mið lýðsins og stjórnarinnar, það er að skilja fram- farir og hagsæld landsins, og vjer treystum því staðfastlega, að þó eitthvað í fyrstunni, meðan menn eru að læra, að neyta frelsis þess, sem þeim nú er veitt, kunni hjer eins og víðar, að takast ófimlega og miður en skyldi, muni þó sáð- korn það, sem falið er í stjórnarbótinni, spretta og blómgast, þegar stjórn og líður vinna saman í einum anda, og verða samtaka í að burtrýma öllu því, sem tími og reynsla kunna að sýna, að sje vexti og viðgangi þess til fyrirstöðu. Allra mildasti konungur! Eins og vjer erum gagnteknir af lifandi þakk- lætistilfinningum fyrir hina dýrmætu frelsisveitingu, eins erum vjer það eigi síður fyrir það, að kon- ungleg mildi Yðar hefur framkvæmt þessa mikil- vægu gjörð, einmitt á því ári, er þess verður minnst, að þúsund ár eru liðin, síðan ísland fyrst byggðist; með þessu hefur Yðar Konunglega Há- tign snortið hina innstu og viðkvæmustu strengí hjartna vorra, og sýnt Yðar landsföðurlegu mildi í hinu fegursta Ijósi. í konunglegri auglýsingu til íslendinga, hefur Yðar Konunglega Hátign allramildilgast þóknast að minnast þess, að fyrir púsund árum, hafi hjer byrjað þjóðarlíf, sem einkum með því, að halda við máli forfeðranna og færa í sögur afreksverk þeirra, hefur verið svo mikilsvert fyrir öll Norð- urlönd. Fyrir frelsisveitingu Yðar Konunglegu Hátignar, mun þjóðarlíf þetta eptirleiðis enn meir þróast og glæðast, og það gefur vissu fyrir því, að mál vort og feðra vorra muni enn viðhaldast um ókomnar aldir; en meðan það lifir, mun það geyma ógleymanlega minningu Yðar Konunglegu Hátignar, og þegar niðjar vorir færa enn í sögur afreksverk forfeðranna, munu þeir jafnan telja frelsisveitingu Yðar Konunglegu Hátignar, sem hið minnisverðasta og heillaríkasta afreksverk. Vjer biðjum Guð almáttugan, að halda vernd- arhendi sinni yfir Yðar Konunglegri Hátign, og yfir Yðar Konunglegu skyldmönnum, og að gefa Yðar Konunglegu Hátign langa og farsæla rikis- stjórrn*. 50 undirskrifuð nöfn. »Lög eru þar fyrir lögð, að boðorð skuli ei brjóta«. Blöðin, sem sannarlega heita tunga tímans og þjóðarinnar, bafa nú nokkra stund fært oss, og færa oss enn, þær helztu frjettir bæði fráhöf- uðstað landsins, Reykjavík, og öðrum stöðum þessa lands og annara; þau hafa líka lengi frætt oss um öll ný lagaboð og tilskipanir, sem og um alla breytingu á hinum fornu lagaboðum vorum, hvað eptir og þær hafa verið gjörðar; og jeg fyr- ir mitt leyti álít slíkt mjög gott og öldungis nauð- synlegt, og þá skoðun ætla jeg líka að margir hafi; en allt fyrir það, þó blöðin að nokkru leyti fræði menn um slíkt, þá er sú uppfræðing — því miður — ekki nærri nóg, og það er líka öldung- is ómögulegt að ætlast til þess; því til þess út-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/96

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.