Tíminn - 12.06.1874, Blaðsíða 8

Tíminn - 12.06.1874, Blaðsíða 8
48 og sælunnar vona. En halda pá heim; heim, ó, að dauflega bústaðnum þeim, og færa þar foreldrum — nauða — fregn, sviplegs dauða. Orsök til var, að ungmennið blíðlynda sjálft hefði þar, hýmt undir húsunum lengi uns hel dapurt fengi. Heldur en að hverfa’ inn í bæinn og tilgreina það óhapp, sem að borið hafði og angur mest krafði. Og vita hvað, þeim elskuðu foreldrum brygði við það. — Ströng aðköst angurs og meina fá ýmsir að reyna. — En einn gefur þrek, sem aldrei frá guðhræddu börnunum vjek, stýrir í straumunum kífsins og stefnir til lífsins. Frelsari vor, fullvel sem þekkir vor öxðugu spor, lætur ei lundina’ óhressta, nje liðsinni bresta. Háskanum úr hann leiðir sum þeirra, og reynist þeim múr huggar þau, gætir og geymir, meðan ganga’ um í heimi. En ungmennum þeim sem í gegnum slraumana’ hann leiðbeindi heim sæluna sífellda gefur sem sjálfur hann hefur. í apríl 1874. Æ. — Maður nokkur var á gangi í skógi í Austra- líu, heyrði hann þá vein mikið, og ímyndaði sjer að ræningjar hefðu ráðizt á mann, og hann gefið þetta hljóð frá sjer. Hann hleypti þvf af byssu til þess að hræða ræningjana. Þegar hann kom út úr skóginum sá hann hvar maður var bundinn við trje. «Jeg varð feginn að þjer komuð»,sagði aumingja maðurinn. «Ræningjar rjeðust hjer á mig, en þeir urðu hræddir og hlupu burt er þeir heyrðu skotið». «Gátuð þjer ekki komizt burtu», mælti komumaður. «Nei, þeir bundu mig svo fast». «Og ræntu þeir öllu frá yður». «Nei, þeir tóku einungis úrið mitt, þeir höfðu ekki tíma til að leita að peningum mínum, sem eru í vinstra stígvjelinu minu». «Það var gott», sagði komu- maður, «eigið þjer mikið þar?». «Rúm 1000 (pund), guði sje lof», sagði mann-auminginn. «Eruð þjer viss um að ræningjarnir sjeu farnir?». «Já það er jeg viss um». Komumaður leit í kring um sig og skimaði i allar áttir. «Það er gott að þeir eru farnir, svo tek jeg við þar sem þeir hættu». Og svo gjörði hann, og tók pen- ingana. — Drengur einn að nafni Sveinn, var ákærður fyrir morð, og presturinn, sem átti að búa hann undir dauðan hvatti hann til að iðrast, þá skyldi hann áður en dagurinn væri úti sitja til borðs með Abraham, ísak og Jakob. En Sveinn svaraði: «Viljirðu í dag ganga í minn stað, þá skal jeg unna þjer máltíðarinnar». AUGLÝSINGAR. — Yegna þess að jeg undirskrifaður er lítið þekktur, bæði hjer í Reykjavík, og eins i nærsveitunum, J)á leyfi jeg mjer hjer mcð að gefa almenningi til kynna, að jeg hef sett mig niður sem söðlasmiður hjer í Reykjavík, sömu- leiðis hef jeg erlendis lært yfirklæðningserviði (Tapetser- arbeide), er jeg J»vi fás til að taka að mjer pað erviði, sem þessar iðnaðargreinir í sjer innibinda. Reykjavík, 8. júni 1874. Bergur Porleifsson. ■— par eð nokkrir yngri menn hjer í bænum hafa beðið mig að halda áfram á yfirstandandi sumri að kenna 0 II II fc pá mun jeg eptir bón peirra gjöra það á sunnudögum og laugardagskvöldum, með því peir greiði 1 rdl. um leið og Jjeir rita nafn sitt á lista hjá mjer. Reykjavík, 9. júní 1874. Benidikt Pálsson. — Trjepontafannst undir Öskjuhlíðog ergeymd hjáút- gefanda „Tímans“. Eigandi vitji og greiði auglýsingargjald. Útgefendur: Nokkrir Reykvfkingar. Ábyrgðarmaður: Páll Eyjúlfsson. Prentaðar í prentsmiðju íslands. Einar pórbarson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/96

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.