Tíminn - 19.09.1874, Blaðsíða 4

Tíminn - 19.09.1874, Blaðsíða 4
68 margir úr Reykjavík, alls mun það hafa verið um 500 manns. Kl. 4 e. m. hófst samkoman, og lýsti því þá yfir Kr. Zimsen, að nú væri byrjoð þjóðhátíðHafnflrðinga og Álptnesinga, og fór síðan fögrum orðum um, að biðjamenn að skemmta sjer sem bezt væru föng á. Þar á eptir var sungið kvæði af nokkrum skólapiltum, er þar voru, ttndir forustu kand. chir. & med. Einars Gnðjohnsens. Siðan hjelt Dr. Grímur Thomsen langa ræðu og snjalla fyrir minni konungs vors, og minntist hann þar meðal annars, hve ljúfmannlega og mildilega konungur vor heföi komið hjer fram í öllu við- móti. Þar næst var sungið kvæðið «Eldgamla ísa- fold",og að því búnu mælti prófastur herra l’ór- arinn Böðvarsson kröptnlega og skörulega fyrir minni íslands, og sungið þar eptir: «Ó, fögur er vor fósturjörð». Að því sungnti mælti Einar yfir- prentari Þórðarson fyrir minni bænda skörulega og einarðlega, kvað hann meðal annars furðu gegna, hvað bænda vorra gætti, jar hjer væri engin menntunarstofnun til í landinu til að mennta þá, en aptur á móti sýslumenn og prestar sem menntunarinnar nytu, hefðu gjört og gjörðu sjer lítið far um að leiðbeina bænd- um vorum; en hann óskaði og vonaði, að bændurnir bráðum mundu hefjast til meiri verk- legrar menntunar og þeirra enn betur gætaeins og í fornöld, þar sem þeir þá hefðu verið kjarkurinn og mergurinn í allri landstjórn vorri. Þar eptir byrjaði danzinn, er hjelt allt af áfram með góðri reglu, og söng á milli. Eptir nokkra stund mælti Einar yfirprentari nokkur fögur orð lil forslöðu- manns hátíðarinnar, og til Hafnfirðinga og Álpt- nesinga yfir hófuð, fyrir hvað honum sem öðrum mætti þykja mikiisvert, hve vel og þó frjálslega samkoman fram færi, og kvað hann mikinn mun á vera þjóðhálíðarhaldi Reykvíkinga á Öskjuhlíð, eins og allir þar saman komnir Reykjavíkurbúar yrðu að játa með sjer. Þar á eptir mælti ritstjóri Þjóðólfs herra M. Jochumsson nokkur brýnandi og hvetjandi orð til allra þar viðstaddra, út af hinni stórmannlegu gjöf prófasts herra Þ. Böðvarssonar, nefnilega Hvaleyrarjörð til alþýðuskóla, og til þess að nota oss þessa heiðarlegu gjöf ættum vjer allir, bæði sem heyrðum orð hans og hinir, að leggja fram sinn skerf, eptir efnum 4, 8,12, 16 sk. hver, því það væri þó þar með ekkert of heimtáð, þar vjer hefðnm mikla og alvarlega hvöt til slíks á því háleita tímabili, er vjer nú stæðum á, þar eð það væri hin fyrstá hvöt fyrir oss alla, að alþýða vor fengi meiri verklega menntun. Eplir það voru ekki fleiri ræður haldnar, en surigin voru mörg íslenzk kvæði, sem vel áttu við, og danzinn hjelt áfram, og þar skorti ekki að fá keyptan mat eður nokkra hressingu hjá herra Iír. Zimsen, og þeim sem hann aðstoðuðu, og hjelt samkvæmið áfram með góðri reglu og glaðværð lil kl. 4 um morguninn. íslands þústind ára hátíð. Háskólinn í Lundi hefur í tilefni af 1000 ára hátíðinni sent stiptisbókasafninu í Rvik gjöf, sem er 100 fræðirit i 250 bindum, og 70 smáritlingar ýmislegs innihalds. Hin helztu af ritum þessum eru: æfisaga nafnkunnra sænskra manna í 23 deildum. Saga Svíþjóðar undir Gústaf Adolf öðr- um. Rit þeirra Kellgrens, Staguels og Tegners, og árrit háskólans í Lundi o. s. frv. Bækurnar, er voru innbundnar í laglegt band, voru sendar tneð leyfi hinnar dönsku stjórnar með »Jylland«, og fylgdi þeim prentað gjafarbrjef sem einkum er það tekið fram í, að með gjöftnni haQ menn eink- um reynt að sýna hina bóklegu starfsemi háskólans. — Frá Þrándheimi var send til 1000 ár hátíð- arinnar hamingju-ósk er endar með þessum orð- um: . . . »Sá guð, sem blessar þjóðirnar, farsæli Islendinga, auðgi sögti þeirra eins og á hinni liðnu 1000 ára öld, og hetri æ meir og meir framtíð þeirra». Hún er öll riluð fögrum stöfum, og papp- írinn mjög fagur. — Hamingjuósk frá Útþrændum hljóðar þannig: «Til forseta alþingis íslendinga hra Jóns Sigurðs- sonar Rvík. Tak hjer með á móli hinni bróður- legustu heilsun og hamingjtiósk með lOOOasta árið, og flyt hana vor vegna allri hinni ágætu ís- lenzku þjóð, en hennar frægð nær allt til hinna aumustu kofa í Norvegi. Heiður og heppni sje yfir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/96

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.