Tíminn - 19.09.1874, Qupperneq 8
gjört fyrir alda og óborna, — eins og gjört er
í nefndu ágripi, t. a. m. Á. Helgasonar, B. Thór-
arensen, Jónasar Hallgrímssonar og Tómasar Sæ-
mundssonar, sem dánir eru á þessu tímabili; þá
Bjarna Thorsteinsen og Jóns Sigurðssonar, nsem
hvert mannsbarn á íslandi hefur lært að þekkja«,
er annars hefði átt að sleppa eptir setningu höf.
Hvernig «Svíar, Norðmenn og Danir» rita bækur
sínar, er laust við þetta mál, því hverki Ari fróði,
Haukur Erlendsson, Snorri Sturluson og Sturlu
Pórðarson, höfðu þá sjer til fyrirmyndar.
Alþýðumaður.
(Aðsentj. LAUGAHUSIÐ við Laugarness-laug-
arna'r er nú með öllu eyðilagt fyrir löngu síðan,
er var hið bezta ognauðsynlegastaskýli fyrir þvotta-
konur úr Reykjavík, og ættu bæjarbúar að reisa
það upp aptur, þvi allir vita, hvílíkur sparnaður
það er árlega fyrir þá, bæði nteð eldivið og sápu,
að leita þangað með allan þvott þeirra, og að
öðru leyti, hvílíkt skaðræði það getur orðið á
heilsu kvenna, að standa þar skýlislaust i mis-
jöfnu veðri, og það á vetrum, því heita má að
allan árshringinn yfir sjeu sífeldar laugal’erðir
þangað með þvotta úr bænum, að fráskildum 2
eða 3 mánuðum, er þó gætu átt sjer stað þá eins
og hinn árstímann, ef skýli væri byggt. Þar vjer
vitum, að allir hústeður bæjarins sjái hvílík nauð-
syn er á slfku húsi, shorum vjer á pá, einn sem
alla, að skjóta saman fje til þess, að sem fyrst
verði byggt rammgjört hús við laugarnar í þess-
nm tilgangi, og að vegurinn verði enda jafnframt
því lagaður þangað, sem er opt næsta torveldur
vfirferðar. Vjer vonum að allir húsfeður sem
þurfa að láta brúka laugarnar, og má ske fieiri,
láti fljótt af hendi rakna samskot til slíks.
Nokkrir húsráðendur í líeylcjavik.
— 3. þ. mán. er sagt, að skip frá Englandi
hafi komið til Akureyrar eptir Amerikuförum sem
biðu þar, og á Sauðárkrók, er G. Lambertsen
hafði útvegað, hann hafði verið með og fylgt þeini
þaðan aptur.
2
ÁSKORUN. (aðsend).
í vetur er leið stofnaði iðnaðarmannafjelagið
hjer í Reykjavík »s u n n u d a g a s k ó 1 a« til
menntunar ö 11 u m er þess þurftu við. Þá skor-
um vjer nú á það, að halda áfram slíkum skóla í
vetur er kemur, en brúka samt ekki aðra dagatil
kennslunnar (a: sunnudaga), svo allir geti orðið
nokknrnvegiun samferða í lærdóminum; þar vjer
álítum slíkt óheppilega og ekki grundaða tilhögun.
215.
Vísa fundin á Austurvelli, eptir kapphlaup.
Veglyndur, vinsamlegur
»VÍKVERJI« sigldi ,,rúut“. —
Allrar veraldar vegur
víkur að sama púukt.
AUGLÝSINGAR
— Þjóðbátíðarkvæði Reykjavíkur 2. ágúst, eptir
skáldin M. Jochumsson og Steingr. Thorsteinson,
fást hjá Páli Eyjúlfssyni gullsmið í Revkjavík
fyrir 8 sk., innhept.
— par e8 nauSsynlegustu bækur prentsmiðjunnar hafa
veriS sjer í lagi sendartil muna til faktors B. Steincke á
Akureyri, á ísafjörS til læknis porvaldar Jónssonar, í
Stykkishólm til sjera E. Kúld, aö Hallormsstað til sjera
Sigurðar Gunnarssonar, og til bókbindara Guðmundar
Pjeturssonar á Hofi í Eangárvallasýslu; þá vil jeg hjer
með benda öllum þeim, sem kynnu að þurfa þessara bóka
með, og sem eiga hægra með að ná til þessara manna, en
hingað tii Beykjavíkur, að halda sig til þeirra.
Keykjavík, 18. september 1874.
Einar Pórðarson.
— PRESTVÍGÐIR voru þessir af biskupi lands-
ins, sunnudaginn 30. þ. m. Björn Þorláksson, til
Hjaltastaða og Eyða i Múlasýslu. Oddgeir Þórð-
arson Gudmundsen til Sólheimaþinga í Mýrdal.
Ólafur Bjarnarson til Ríps í Hegranesi. Jón Hall-
dórsson, fyrir aðstoðarprest til föður sins, sira
Halldórs prófasts á Ilofi í Vopnafirði. Steingrímur
Jónsson til Garpsdals í Barðastrandarsýslu og
Stephán Sigfússon til Skinnastaða í Axarfirði.
Útgefendur: Nokkrir Reykvíkingar.
Ábyrgðarmaður: Páll Eyjúlfsson.
Prentabnr í prentsmibjn íslands. Einar þórbarson.