Tíminn - 21.12.1874, Blaðsíða 1

Tíminn - 21.12.1874, Blaðsíða 1
Verð blnðsins (22 arltir) árg. 4 )i. Fyrri hJutinn greiðist fyrir lok marzm., en siðari hlutinn fyrir vtgöngu júlí- mánaðar 1874 til ábyrgðar- mannsins. ITÍMIWWo „Tímans í straumi stöndum, sterklega sem oss ber“. Avglýsingnr verða teknar i bl., fyrir 3 /3 smáleturslinan, en 2 /3 stcerraletursl. Parfleg- ar ritgj. til nlmenmngsheillá verða borgnðar eptir Sam- komulagi við ábyrgðarm. 3. ár. 7leykjavík, 2/. desembr. 1874. 23.-24. blað. — Póstskipið DIANA kom hingað 23. f. mán. og komn með því: Pjetur stúdent Guðjohnsen, jómfrú Ragnheiður Sivertsen frá Iímh. Oddur V. Gíslason kand. frá Skollandi, Sigfús Magnússon frá Grenjaðarstað, frá Ameríku. Með því barst lít- ið af frjettum. Ástandið á Spáni var líkt og hef- ur verið, en sagt er að Karlungum muni veila miður en áður. — Embœttisveiting. Gunnlaugi Blöndal, var 16. október veitt Barðastrandarsýsla, settum sýslu- manni þar. — Nafnbót. Doktors nafnbót er veitt Jóni Finsen, fyrrum lækni á Akureyri, fyrir bók þá er hann hefur ritað um ýms veikindi á íslandi. — Póstskipið fór aptur til Iímh. 80. f. mán., með því tóku sjer 16 manns far: Browning Eng- lendingur, er var hjer til að læra íslenzku. D. Maack frú, ásamt barni sínu. Eyjólfur Jóhannes- son frá Svefneyjum. Eyjólfur Þorkelsson gull- smiður. Eyþór Felixson verzlunarmaður. Jón Stefánsson verzlunarfulltrúi í Rvík. Johnsen kaup- maður, sonur Johnsens heitins Flensborgareiganda í Hafnarfirði. Ekkja Levinsens með syni sínum til Englands. M. Smith konsúll og Jens sonur hans. Sveinn Sveinsson búfræðingur. Stefán Daníelsson hreppstjóri frá Grundarfirði og Baldt byggingameistari, og jungfrú Hólmfríður Þ. Hjálm- arsen. Verzlunarmaður M. Jóhannesson. — Árferðið hefur verið síðan «Tíminn» kom út síðast hjer á suðurlandi svo: 22. f. m. gjörði hag- stæða hláku yfir allt, og tók upp allan snjó, svo öríst varð að fullu, mun þessi bati hafa komið víðsvegar um land, og hjelzt þýðan og stöðugt góðviðri til þess 1. þ. m., þá skipti um til norð- anáttar, hreinviðris og frosta, er varð hæst 10° 5. þ. m. og hjelst það til 14.; 15. gjörði bleytu- ■ hrið, svo illt varð lil jarðar lil hins 17. að snjó- inn tók upp með hægri hláku. Líkt var að frjetta úr öðrum fjórðungum landsins, með póstunum er hjer komu: austanpóstur 20. f. m., norðanpóstur 24. og vestanpóstur 25. s. m. — Fiskiafli. I’á gæftir hafa leyft, hefur fiski- aflinn verið nægur fyrir af þorski og isu, og það lengst inn á Hvalfirði og Kollafirði; dagana 15.— 21. f. m. aflaðist ágæta vel. LÆRISVEINAR REYKJAVÍKURSKÓLA. í byrjun skóla-ársins 1874 — 75 voru skóla- piltar 65 að tölu, og var þeim skipað þannig við niðurröðunina 2. dag desembermánaðar 1874. 4. bekkur: 1. Magnús Andrjesson, Magnússonar, dáins hreppstjóra í Langholti í Árnessýslu. 2. Friðrik Petersen, sonur Jóhannesar Peter- sens, skólakennara á Færeyjum. 3. Einar Jónsson, forsteinssonar, dáins bónda á Stórasteinsvaði í Norðurmúlasýslu. 4. Grímur Jónas Jónsson, Hjörtssonar, prests á Gilsbakka i Mýrasýslu. 5. Guðlaugur Guðmundsson, Ólafssonar, dáins bónda í Ásgarði í Árnessýsln. 6. Skapti Jónsson, Þorvarðssonar, dáins prófasts í Reykholti í Borgarfjarðarsýslu. 7. Helgi Guðmundsson, Þórðarsonar, tómtbús- manns í Reykjavík. 8. Jón Jensson, Sigurðssonar, dáins skólastjóra í Reykjavík. 9. Gestur Pálsson, Ingimundarsonar, bónda í Mýratungu ( Barðastrandarsýslu. 10. Davíð Schewing, Thorsteinsen, sonur |>or- steins, dáins verzlunarfulltrúa í Æðey í ísa- fjarðarsýslu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/96

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.