Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Blaðsíða 28
28
öll hafa verið máluð innan og með rnyndnm. En 1830 1jet sjera
Stefán Þorsteinsson endurnýja súð hennar og þilverk, sem þá var
rajög farið að fúna. Var þilverkið, sem jeg man eftir, að mestufrá
þeirri viðgerð, og líka rimagrindurnar í milligerðinni milli kórs og
kirkju. Framþil hafði þá verið sett nýtt, en þó sama Imrð og dyra-
umbúningur. og stóð það fram á mina daga. En 1857 ljet sjera
Skúli Gíslason smíða nýtt framþi! á kirkjuna með nýrri hurð; en
hin gamla var mjókkuð og höfð fyrir þinghússhurð meðan hún ent-
ist. Hvað um hringinn varð, vissi jeg ekki.
Eftirmynd eða sýnishorn af útbrotabyggingarlaginu hefi jeg
nú látið smíða handa forngripasafninu, og er nú nr. 4101 meðal
gripa safnsins. Það gjörði að mestu Guðmundur bóndi á Baugs.stöð-
um, bróðir minn, efr.ir minni fyrirsögn, er jeg lagaði eftir Stóra-
Núpskirkju, þeirri er nú var lýst. Sú var í fyrstu ætlan mín, að
sýna einungis grindina sjalfa og króhbetrkjaskotin, sem einkum ein-
kenna »útbrotabggginguna«. En við nánari umhugsun sá jeg, að
þörf var d að sýna sem flest af því, sem gjörði slikar kirkjur frá-
brugðnar kirkjum nú, svo sem kbrdyraumbúning, klukknarambhöld
og dyraumbúning þar undir kyrkjudyr með hurð, kórgluggaramma og
þilglugga að framan. En til þess þurfti að setja þilborða-sýnishorn
eitt hvorunt megin kirkjudyra, (og er milliþil sýnt um leið). En þver-
stykkin, sem eiu innanundir framþilsgluggunum, eru að eins til
stvrktar, en ekki af því að svo væri í kirkjunni sjálfri. Sama er
að segja um þverslána undir kórgluggarömmunum. Hún er sett
til að halda þeim föstum, en var ekki í kirkjunni sjálf'ri. Þess ber
að geta, að kórgluggaratnmarnir urðu í stærra lagi. Litla gluggann
sem var á framþilinu uppundan kirkjudyrum, gat jeg ekki látið
sjást, því þá hefði orðið að byrgja ofmjög fyrir sýni gegnum
framgaflittn. Þakglugganum hjá prjedikunarstólnum varð líka
að sleppa, þvf óhægt var að koma honurn fvrir. En þrátt
fyrir þessa galla vona jeg að sýnishornið gefi nokkurnveginn rjetta
hugmynd um það, sem það á að sýna. Hvorki er sýnt altari, prje-
diktinarstóll nje stólar, ekki heldur þilverk eða súð, -— nema eitt
borð hvorum megin til styrktar, — því ekkert af þessu var ein-
kennilegt fyrir það byggingarlag, sem verið er að sýna.
Ekki hefir mjer heldur þótt þörf á, að lýsa hjer ítariega út-
skurði eða málverkum í kirkjunni, þar eð allt slíkt, sem nokkuð
kvað að, er vel geymt, sumt er i kirkjunni enn, en sumt, og raun-
ar flest er komið á forngripasafnið.
Brynjblfur Jónsson.