Víkverji

Tölublað

Víkverji - 03.07.1873, Blaðsíða 3

Víkverji - 03.07.1873, Blaðsíða 3
23 leika til með mínum orðum, að binda stjórn konungsim andspænis öðrum samkomum al- þingis, en þeirri, sem nú er að líða undir lok». Reykjavík 27. júní 1873. IHImar Finsen. Vér höfum meðtekið bréf frá herra H. Kr. Friðrikssyni dagsett 20. f. m. og segir það svo: «í 2.~3. tölublaði Víkverja, 19. dag þ. m. stendr grein ein með fyrirsögn «Reylt- víkingafundr*. Grein þessi á að vera skýrsla um fund þann, er eg boðaði til og haldinn var hér í Reykjavík 13. dag þ. m. Eg ætla mér eigi að fara út í neinar útásetningar við skýrslu þessa yfir höfuð; en eg verð að beiðast lagfæringará því, sem rangt er hermt eptir mér, og mér þykir lagfæringarvert. 1. Þar sem sagt er i grein þessari, að Jón Pétrsson yfirdómari hafi lagt fyrir mig þá spurningu, hvort þýðing þeirra og vald, er kjörnir yrðu á Þingvallafundinn, ætti að vera meira en alþingismanna, þá er sagt að eg hafi svarað að þýðing þeirra ælti að vera «meiri». þetta er eigi rétt, en egsagði: að nokkru leyti meiri»\ enda gefr hverjum einum að skilja, að Þingvalla- fundrinn getur eigi bundið hendrnar á al- þingi, og að það því hefði verið lílið vit i því, ef eg hefði sagt skilyrðislaust, að vald þingvallafundarins ætti að vera meira en al- þingis. 2. Þá stendr þar enn, að eg hafi sagt, að eg hefði verið með að boða Þingvallafundinn, en eg hafi eigi álitið mig skyldugan til, eða eigi viljað segja, hvort aðrir hefðu boðað fundinn með mjer; þetta er heldr eigi rétt; þvi að eg sagði, að eg hefði stefnt til fundarins, en teldi mig eigi skyldan til að segja, hvaðan eg hefði fengið hvöt til þess, eða hvaðan það væri runnið. 3. Enn fremr er sagt, að 23 ára gamall ung- lingr hafi spurt, hvort hann mætti greiða atkvæði þar á fundinum; og hafi eg þá sagst eigi vilja vera svo «6frjálslyndr», að neita honum um atkvæðisrjett. Þetta er ranghermt. Þessi «23 áragamli unglingr» spurði alls eigi, hvort hann hefði þar at- kvæðisrjett, heldr, hvort hann mœtti tala fáein orð, og kvaðst eg eigi vilja neila honum um það; en skaut því siðar bein- línis til fundarins, hvort hann og 3 eða 4 prestaskólastúdentar skyldu hafa þar atkvæð- isrétt. II. Kr. Friðriksson». Vér sjáum eigi betr en að sú skýrsla, er herra H. Kr. með bréfl sínu heflr viljað lagfæra, sé eptir hans eigin frásögn í ðllu verulegu rétt. Þær lagfæringar, sem hann til færir, eru svo óverulegar að vér vonum að hvermaðr geti séð, að áfellisdómr- sá, er herra H. Iír. leyfir sér að kveða upp um grein vora, sé með öllu ástæðulaus. Greinin hefir, fyr en hún var prentuð, verið borin undir 3 menn er staddir voru við fund- inn, og hafa þeir allir sagt, að þeir hafi skilið herraH. Kr. eins og skýrt er frá í greininni og honum hlýtr því að hafa orðið mismæli, ef hann þegar á fundinum hefir viljað segja, það er hann nú segir. {liug'VallafiiiHlr sá, er ritað hefir verið um í blöðunum að undanförnu, var settr fimtudaginn 26. f. mán. um dagmál, sunnan til á Þingvöllum rétthjá Öxará, þar sem hún rennr úr Almannagjá ofan á völlinn. Þar höfðu Reykvíkingar nokkrir, er, eins og vór gátum í 2—3 tölubl. voru, höfðu safnað gjöf- um til Þingvallaskýlis, reist allmikið fundar- tjald. Höfðu þeir hlaðið sessubekk af grjóli með ölium tjaldveggjum; fyrir framan bekk- inn voru löng borð handa fundarmöunum, í miðju tjaldinu var minna ferstrend borð, er ætlað var skrifurum fundarins. Alt var bú- ið til á haganlegasta hátt og furðanlega vel, þegar tillit er tekið til, að þeir menn, er böfðu gengið fyrir samskotum og verki, höfðu haft mjög stuttan tíma til undirbúnings. Á hárri slöng, er stóð upp af miðju tjaldinu, blakti blátt merki, og var á því dreginn hvitr valr. Eins var mynd af fálka dregin upp á hvítu merki yfir öndvegissætinu í tjaldinu. (Valr var eins og kunnugt er merki Lopts ríka Guttormssonar; nú er það merki niðja Finns biskups Jónssonar, er telja sig í ættviðLopt).

x

Víkverji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkverji
https://timarit.is/publication/99

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.