Víkverji - 17.07.1873, Page 3
43
Borinn saman við árið, sem leið, verðr
vertíðaraflinn þetta ár 2 miljónum hærri; en
V3 miljón hærri en að miðlnngi hedr verið
af söltum flski 14 næstliðin ár; af harðflski
stenst aflinn á við meðalár; af gotu er tæp-
um 2000 tunnum meira, alt til tínt, en þn
er gotan 4000 tunnum minni í ár en árið
sem leið. Verðlag á fiski hefir alla verlíðinn
verið venju fremr hátt, einkum á blautum
fiski og gotu; er það að öllum líkindum fyrir
þá sök, að framan af var lítill afli sökum
ógæfta, en þegar gæftir bötnuðu á síðan, voru
fréttir komnar um að aflinn á Sunnmæri og
Norðmæri væri miklu minni en árið áðr um
sama leyti.
Svo langt sem sögur fara af, má ætla á.
að aldrei hafi verið meiri fengr á land komið
í Lófóti en í ár, og er á getanda, að hann
nemi 1,700,000 rd. spesía1, þar sem ekki
aflaðist fyrir meira en 1,260,000 spesía,
1872, og að meðaltali árin 1859—72 nær
1,250,000 spesía.
Árið sem leið voru nákvæmar skýrslur
um vermannafjöldann; en nú vita menn ekk-
ert um hann i ár, en það vita menn, að 16.
febrúarm. voru komnar 3000 báta í bygð-
arlagið, og 26. febrúar kom frétt frá stjórn-
inni um það, að nokkrir uppsátrsmenn ann-
ars staðar væru komnir, en það var ekki fyr
en 4. mars, að almenningr utanhéraðsmanna
var kominn, og fóru þeir, er síðast komu, í
Austr-Lófót.
Sé nú svo ráð fyrir gert, að almenningr
í verstöðinni hafi verið líkr og fyrra ár, en
þá var hann als 16,773 menn, þá verðr á-
góðinn í ár á hverjum hlut töluvert meiri.
í*egar viku eptir þrettánda tók að veiðast
í Hennings-veri og vestrverstöðvunum, en
þar voru fáir einir til róðra, því 25. janúar
voru ekki komnir nema 800 báta, en þeir
fóru allir í verstöðvarnar við Iióp og þar
vestr undan, en í austrverin voru þá engir
vermenn komnir, og 21. febr. segir veiða-
vörðrinn, að lítið sé um vermenn í austrver-
unum. í janúar og febrúar var veðrátta mjög
óhagstæð til aflabragða, sem ráða má af því,
að ekki voru á land komnar um lok febrú-
armánaðar nema 3,500,000 fiska, og fékst
það nálega alt í verunum fyrir vestan Urðir,
og einkum í þeim inum vestustu verunum.
Langa stund var það, að menn voru hræddir
um, að aflinn mundi bregðast, en til allrar
hamingju batnaði veðráttan í marsmánuði, og
jókst þá aflinn einkum inn síðara hlut mars-
mánaðar og inn fyrra hlut aprílm.; varð hann
þá einkar góðr í Austrlófóti og í verunum
kringum Sund og fyrir Straumum, en fyrir
Urðum, Steinum, Stafnsundi og Hennings-
veri hefir aflinn verið tregari. í Eystra Ló-
fóti var, sem fyrr segir, heldr fáliðað af ver-
mönnum, en smámsaman, er fiskrinn gekk
austr á við, yfirgaf almenningrinn verin Stafn-
sund, Steina og önnur fleiri til þess að
komast í austrverin; hafa því töluvert margir
komist í góðfiski það, sem þar heflr verið
síðan 25. mars.
Yfirlit yfir þorskaflann í Vestrál og þar
suðraf 1873, 1872, 1871, 1870,
vogir: vogir: vogir: vogir:
•ialtflskr 1,000,000 1,000,000 750,000 850,000
hanbflskr 360,000 450,000 340,000 500,000
tnminr: tnnnnr: tnnnnr: tunnur:
lýsi 38,000 42,000 31,000 40,000
gota 31,000 44,000 25,000 30,000
— Eptir að auglýst var í l’jóðólfi 14. d.
júní þ. á., að áreiðanlegt meðal fengist við
heyrnardeyfð, og ágœtt meðal við hósta og
aridarteppu, hjá lyfsala nokkrum, er nefnir
sig C. Chop í Hamborg, hafa nokkrir sjúk-
lingar spurt mig um, hvort eigi væri reyn-
andi að útvega sér þessi meðöl, og hefi eg
ráðið þeim frá því, og það af þeirri ástæðu,
að mér er það fullkunnugt, að þess konar
meðalaauglýsingar eru erlendis mjög almenn-
ar, og er eigi annar tilgangrinn en að svíkja
og féfletta almenning, því það er sannreynt,
að þau eru alveg gagnslaus. Eg skal því
hér með vara menn við að gefa þessu.nokk-
urn gaum, og lofa herra Chop að hafa landa
sína, en eigi íslendinga, fyrir féþúfu.
Reykjavík, 15. d. júlí 1873.
J. Jónassen.
1) Hver rd. fcpeáia er 2 nkisdalir, eius og bja oss.
UPPBOÐSAUGLÝSING.
Föstudaginn inn 18. júlí kl. 12l/2, e. m.