Víkverji - 28.03.1874, Síða 4
63
varð veðráttan mildari, nokltrir góðviðrisdagar og
ldotar komu, ogjörðkom upp til góðs léttisástöku
stað; en inn 22. gjörði sunnan ofviðrisblota, og síð-
an kom fannfergja in mesta af útsuðri í tvo sólar-
hringa að kalla, svo heita mátti ókleyft að komast
milli bæa. Inn 26. brá til landsunnan hlýviðris, í
dag or útsynningr. Loptþyngd inn 27. 261 11 + 10;
meðalloptþyngd um mán. 27!1 9. Meðaltalhita og
kulda 4° K. Heyþröng er orðin talsverð, og verðr
að neyð, komi ekki bati bráðum, enda vænta menn
hans nú staðfastlega, einkum, þó ekki verði fyr en
með jafndægra-straumunum. Inn 9. febr. vottaði
fyrir linmerki, þá sást hér sól í „úlfakreppu“ um
hádegisbil. Sú varð rannin 1822 og 1866, það veit
eg upp á víst. Samanbr. „Atli“ blaðsíðu 153 neðst
Kh. 1834*.
Heilsufar fólks hefir verið með besta móti um
þessar sveitir. Fénaðarhöld hafa og svo verið góð;
að eins á stöku bæ hefir borið á lungnasótt og
bráðapest, það nokkru nemr. — Undir jökli ersagðr
fiskr fyrir, þegar gefr. Að sögn var fólk þarkomið
í mestu bjargarþröng, þegar útróðrarmenn komu,og
fór að fiskast. Við Clausens og Rickters verslanir
í Stykkishólmi fást enn nú helstu nauðsynjar. Nú
mun fastráðið að verslun Halafélagsins byri í Stykk-
iskólmi á komanda vori.
— AÐ AUSTAN. Reyðai-firði 25. jan. 1874. Hér
hefir verið mjög vond tíð að heita má síðan í sept-
ember f. á. og það svo, að menn muna varla aðra
eins síðan helmingavetr og livíti vetr voru, og var
þessi tíð einnig hér boðuð í haust of óvanalega
mörgum snjótitlingum. Jieir sem komu yfir fjöll segja
hafþök hér út af fjörðum af kafís; 12. og 13. þ. m.
voru hér fjarskaleg veðr, mátti lieita „orkan“ á norð-
ah, 15° R. frost og snjókoma áköf svo ekki sást
milli húsa. I>á fuku á Berufjarðarströnd 2 ldrkjur
Derunes- og Berufjarðarkirkja, þær voru reyndar
orðnar fomfálegar, enda munuþær vera í molum,
önnur klukkan fanst upp í fjalli, hin er ófundin
enn; á Seyðisfirði skemdist mikið hærsta hús ins
norska fiskifélags; í Alptafirði fentifé að mun eptir
því sem sagt er, og þogar seinast fréttist var á ein-
um bæ búið að grafa úr fönn um 20 fjár dautt. A
bráðapestinni hefir borið, en það er samt ekki rajög
mikið enn. Heimakoma hefir stungið sér niðr
nokkuð víða í haust annars hefir heilsufar verið
heldr gott.
í dag kom bóndiúr MjóafirÖi, hanu sagðiþrjáís-
birni komna á land þar. Um morguninn, þegar komið
var á fætr, lá einn í hjalli Hjálmars hreppstjóra á
Brekku, og tók sér dúr eptir að hafa fengið sér
góða snæðingu af skötu og öðru sælgæti, annar sást
á leiðinni upp í hérað. Ganga hér nú miklar kerl-
1) Skær og fagr hringr kiingum sólina um mið-
degi í björtu veðri, og standi úlfar skærir sem ljós
í þeim hringi, sólin líka skær innan í hringnum,
þýðir ætíð veðráttu góða eg mjúka.
ingasögur um þessa bimi, og ekki hefir heyrst, að
neinn þeirra sé unnin enn.
— Fljótsdalshéraði 6. janúar 1874. Hausttíðin var
mjög óstilt og notaðist eigi afli í fjörðum, þó hann
væri til. 10. okt. gerði foraðsveðr mikið af hafaustri
með stórrigningu á láglendi en snjókyngjum á fjöllum
niðr að byggðum og ofan í byggðir sem hærst lágu,
svo fé fennti þar einkum á Jökuldal og alstaðar á
Qöllum uppi meira og minna af því, sem óheimt var.
Eptir það voru jafnan frost. Onýttist mörg haust-
verk og varð eigi gert að húsum. 1. nóvember gerði
annað foraðsveðr og varð mjög víða jarðlaust eða
jarðlítið. Seint í nóvember gerði staðviðri og smá-
þýður, sem bættu haga þar sem áðr var eigi nema
svellstorka. Síðan hafa ýmist verið biljir, en litlar
snjókomur, ýmist frost ýmist þýðustundir, og optar
verið hagar; í bestu sveitum og víðar nærri sjó,
þar sem rignt hefir af í krapaveðrum. í sum-
um sveitum má kalla að fé hafi staðið að síð-
an fyrir vetr, t. a. m. á Efra Jökuldal. 17. des-
ember var þýðu rosi, en hljóp í vestansvip um
nóttina með frosti og svo miklu aflveðri að hér
koma sjaldan slík — þá tók upp skip og braut,
sumstaðar þar sem slíkt hefir eigi fyrr orðið um
fjölda ára. |>á tók nýtt þak af Liverpoolsbúð við
Soiðisfjörð, hjall og timbrhús lítið þar í sveit.
Haustverzlun var hér allgóð og fé í háu verði:
kjöt 8—10 mörk, mör 18 sk., g<rrur 7—10 mörk,
rúgr 10 rdl. eða 11, kaffi 48 sk. Ull hyít (óþvegin
haustidl) 36- 14 sk. Menn urðu að láta æði margt
fé í kaupstað, því eigi komu Englendingar að kaupa
fé á fæti, en búnaðr er hér eigi kominn svo langt,
að ullin ein af fénu og tólgr á haustum hrökkvi
til nauðsynja-kaupa. Erfitt hefir og verið að fá
silfr, og mun svo lengst verða nema við getum selt
kvikfénað okkar á fæti við silfri. En þá ættum við
að flytja hann sjálfir til útlanda. Um innlenda
verzlunartilraun okkar hér í Gránufélagi verðr enn
lítið sagt; hún er enn í bamdómi, getr blessast vel,
ef við förum hægt og hyggilega að ráði okkar.
Yeikindi eru hér engin almenn — helst
er hér að breiðast út bólgusóttin illa sunnlenska,
hún gerir marga verklausa og lengi vesala, drep.r
held eg suma einkum ef hún færist að inum yeg--
legri líffærum. Víðast leggsthún hér helst að hálsi
og höfði og handleggjum.
— LEIÐRÉTTING. í 55.—56. tölubl. Víkverja
hér á undan, þar sem getið er meðalverðs í verð-
lagsskrám vestramtsms 1874—75, þarf að leiðrétta
þannig: Aptan yið ísafjarðarsýslu bætist: og ísa-
fjarðarkaupstað. í staöinn fyrir Mýra og Hnappa-
dalss. á að lesa: MyVa, Snœfellsnes og llnappa-
dals og Dala-sgslur.
lítgefendr; nokkrir menn í lleykjavík.
Ábyrgðarmaðr: Páll Melsteð.
Prentaðr í preutsmiðju Llands. Einar þórðarson.