Alþýðublaðið - 12.02.1921, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 12.02.1921, Qupperneq 1
Alþýðublaðið öefið út s&i AlþýðoflokkHum. 1921 Laugardaginn 12. februar. 35. tölub!. £yjjaeinkasalan. Þórbergur Þórðarson fiytur fyrirlestur um Yoga-Iífsspeki og les upp kafla úr Karma-Yogac eftir Swami Vivekánanda, í Iðnaðarmannahúsinu, sunnudaginn 13. febrúar, kl. 5 síðdegis. Innngangseyrir 1 króna, Húsið opnað kl. 4V2. Sú vara, sem sízt af öliu má vera svikin, eru læknislyfin. Sú vara, sem sízt á að vera gróðalind einstakra manna, eru íyfin. Svo sem kunnugt er, er ekki frjáls verzlun með lyf hér á landi, og á heldur ekki að vera. En galiinn er, að það er ekki þjóðin sjálf sem sér um þessa verzlun, heldur hafa einstakir menn einka- sölu á henni, til ágóða fyrir sig sjálfa. Nú er það að sönnu svo, að landsstjórnin hefir vald til þess að ákveða verð lyfjabúðanna á með- ulum, og gerir það, eftir tillögum landlæknis. Skyldi því margur ætla að engin hætta væri á því, að lyfin séu seld of dýrt. En mál- ið er flóknara en í fyrstu virðist. Við hvað á að miða verð lyfjanna? Sé það miðað við það, að stærstu Iyfsalarnir hafi rétt sæmilegar tekj- ur, verða tekjur lyfsalanna út um land, sem hafa tiltölulega litla um- setningu, langt fyrir neðan það, að þeir geti lifað af því. Nú er ekki átitið að fært sé að hafa ann- að verð á lyfjum á smærri stöð- unum en hér í Reykjavík, og nið- urstaðan er sú, að verðið sem kið opinbera setur á lyfin, er miðað við það, að minstu lyýsalarnir geti haft viðunandi tekjur. En af- Jeiðing af því verður aítur að stœrstu lyfsalarnir fá óhcefilega miklar tekjur af lyfjaeinkasölu sinni. Til þess að komast hjá þessu er ekki nema ein leið: að landið hafi sjálft einkasölu á öllum lyfj- um, í stað þess að láta einstaka menn hafa einkasöluna, eins og nú er. Vinst það nú með lyfjaeinka- sölufrumvarpi stjórnarinnar? mun margur spyrja. Nei, það gerir það ekki. Eftir frumvarpi stjórnarinnar á hinn óhæfilega hái gróði lyfsalanna að haldast, eftir sem áður. Af bon- um á ekki að skerðast einn eyrir, því lyfjabúðirnar eiga samkvæmt því eftir sem áður að vera ein- stakramanna eign, og einstakir menn eftir sem áður að græða því meira, því verra sem er heil- brigðisástand aimennings, og allra mest þegar drepsótt geisar, Ifkt og inflúenzan hér um árið. Frumvarp stjómarinnar fer ein- göngu fram á, að landið taki heildsóluna á lyfjum £ sínar eigin hendur, án þess að skerða á nokk- urn hátt tekjur lyfsalanna. Jón Þorláksson kallaði þetta, á fundi fyrir kosningar, að „að skjóta inn nýjum millilið" og sagði að það yrði til þess, að gera meðulin dýrari, eða til þess, »að leggja sérstakan aukaskatt á sjúklinga* eins og hann komst að orði í ræðu, sem prentuð er f Morgun- blaðinu. Flokksbróðir Jóns Þorlákssonar, Guðm. Björnsson landlæknir Iýtur aftur á móti öðruvísi á þetta at riði. Hann segir f athugasemd- um þeim við frumyarpið, sem getið var um í blaðinu f gær, að þessi heildsala landsins á Iyfjum geti óefað orðið til hagnaðar fyrir rfkissjóð, án þess að hcekka þyrfti útsöluverð á lyfjum. Ástæðurnar fyrir því, telur hann einkum þær, að hægt sé að kornast að betri innkaupskjörum, þegar verzlað er f einu lagi með ölí lyt, sem Iandið þarf, svo og það, að landið geti sjálft haft efnavinnustofu, til þess að láta búa til margar samsetn- ingar, sem nú eru keyptar til- búnar frá útlöndum. Áðaitilgang- ur frumvarpsins, að því er til heilbrigðisstjórnarinnar kernur, virðist þó vera sá, að tryggja iandið að nægum og ósviknum lyfum. Að svo stöddu skal ekkert full- ' yrl um það, hvor þessara tveggja „gömlu og góðuc Heimastjórnar- mamta, sem hér standa á önd- verðum meið, hefir réttar fyrir sér. Þar sem hér er um iyf að ræða, en ekkt sement, mundi mörgutn að órannsökuðu máli hætta tii að leggja meira upp úr orðum landlæknis. Og eftir þeim rökum, sem fram eru komin í málinu, enn þá sem kornið er (en það kunna að koma fram fieiri seinna), þá munu fiestir hailast á skoðun landlæknis í-þessu atriði; rökin virðast . sem sé ölí vera þeim megin. Frá sjónarmiði Alþýðuflokksins eru helztu galíarnir á þessu frura- varpi þessir: Lyfjabúðirnar verða eftir seirt áður £ höndum einstakra manua, og gróðinn af þeim, sera af þeim ástæðum, sem greindar eru að fratnan, er óhæfilega mik- ill, heldur eftir sem áður að renna tii einstakra manna. Það sem aftur á móti vinst með svona iagaðri landsheildsölu á iyfj- um er þetta: Með því fæst trygg- ing fyrir þvf, að þessi vara — Iyfin — sem sfzt af öllum þeim varningi sem flyzt til landsins má vera svikin, verði Jafnan fyrsta fíokks vara. Að þvf er virðist get- ur iandssjóður einttig á þennan hátt tekið gróða, sem að öðrum kosti alls etgi kemur inn í Iandið. En þetta atriði, að landssjóður getur grætt á lyfjum, í þvf liggur sú hætta í framtíðinni, að aura- sjúk og skammsýn landsstjórn fari að ekra á sjúklingum. En er þá ekki hægt að breyta frumvarpinu þannig, að það komi

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.