Alþýðublaðið - 12.02.1921, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 12.02.1921, Blaðsíða 4
4 ALÞYÐUBL AÐIÐ ■^ljóqaranGlinn, Árshátið V. K. F. Framsókn, sem frestað var fyrir jólin, verð- ur nú fimtud. 17. þ, m. í Iðnó, kl. 9 e. m. Pær, sem eiga eftir að sækja aðgöngumiða, geta vitjað þeirra til frú Jónínu Jósefsdóttur, Yitastíg 16, og frú Karólínu Siemsen, Vesturg. 29, í síðasta lagi á mánud. N e f n d i n. Amensk /andnemasaga. (Framb.) „Óttastu mig ekki, Edith," muldraði hann, „enn þá er eg ekki óvinur þinn. Þú þekkir mig, eg skal ekkert mein gera þér." „Já,“ andvarpaði Edith, „eg þekki þig. Þú ert Richard Brax- ley, sá, sem leggur munaðarleys- ingjana í einelti, og hendin sem heldur mér fastri, er roðin blóði bróður míns. Ertu ekki ánægður enn þá?“ „Já, eg er Richard Braxley," svaraði maðurinn brosandi, „en þó ekki óvinur þinn, heldur vinur. Kanske óheflaður, eigingjarn vin- ur, en engu að síður tryggur og óbreytanlegur. En þú ert mátt- farinn, sestu niður og hlustaðu á mig * Edith hreyfði sig ekki og svar- aði: „Eg vil ekki hlusta á þigl Þú ert fantur, morðingi, og eg fyrirlít þig af öllu hjarta!" „Eg hefi engan myrtl" sagði Braxley rólegur. „Bróðir þinn er á lífi og vel geymdur". „Þú lýguri* hrópaði Edith. „Eg hefi með eigin augum séð hann falla til jarðar blóði drifinnl" „Blóðið streymdi úr sárum ann- ara," svaraði Braxley, „það var farið með hann lifandi og þvi nær ósærðan. Hann er að vísu fangi, eins og þú; en enn þá er líf hans ekki í hættu; lausn hans er undir þér komin." „Undir mér komin?" spurði Edith, „og hvað get eg gert til þess, að leysa hann?" „Eg ætla einmitt að segja þér það, og hvers vegna eg er hér," svaraði Braxley. „Þú hefir engan nema mig, sem getur og vill hjálpa þér. Eða býstu kanske við hjálp drukkinna rauðskinna? Líttu í kringum þig. Þarna yfir höfði þfnu hanga lokkarnir af myrtum konum og börnum, og tru þú mér, það er ekki til einn einasti af þessum þotpurum, sem ekki vildu heldur hafa hár þitt hangandi við belti sitt, heldur en að sjá það á höfði þér." Braxley hélt áfram að útskýra það, í hve mikilli hættu Edith væri stödd, og lauk máli sfnu með því, að hún skyldi frjáls jafnskjótt og hún lofaði honum eiginorði. A þennan hátt ætlaði málfærslu- maðurinn að sölsa undir sig eignir hennar, og hann var vfs um það, að Edith mundi í neyð sinni grípa i hálmstráið. En honum skjátlaðist. „Aldrei!" hrópaði Edith ein beitt. „Þá vil eg heldur þola kvala- fullan dauða, en ganga að eiga svikara." „Fyrst þér er lífið svona lítils virði," mælli Braxley, að þvf er virtist, rólegur, „þá gleymdu að minsta kosti ekki bróður þín um. Lif hans og frelsi er á valdi þfnu. Þú þarft að eins að segja eitt orð. Segðu, að þú viijir verða konan mín, &g bróðir þinn er frjáls." „Nú,“ hrópaði Edith, og huldi ardlitið í höndum sér; „egmundi smána bróður minn, ef eg keypti honum líf og frelsi, með því að ganga að eiga þorpara. Aldrei! Aldreil" „Gott eg vel,“ mæltí Braxley, „drepstu þá smánardauða, eða vertu ambátt rauðskinna!" „Drottinn minn!" hrópaði Edith og fómaði höndum, „er þá ekk- ert undanfæri?" Verkstæði óskasf leigt, nú þegar, ekki minna en 4X5 álnir. Afgr. vísar á. Til sölu: Nýtt rúmstæði, lítill ofn, mótorbátsakkerskeðja og nýr mótorbátsklyfir. Uppl. á Bergþórugötu 10. Alfibl. kostar I kr, á mánuil. er blað jafnaðarmanna, gefinn út á Akureyri. Kemur út vikulega í nokkru stærra broti en „Vfsir". Ritstjóri er Halldór Friðjónsson. Verkamaðurinn er bezt ritaður allra norðlenzkra blaða, eg er ágætt fréttablað. Allir Norðlendingar, yfðsvegar um landið, kaupa hann. Verkamenn kaupið ykkar blöð! Gerist áskrifendur frá nýjári á jffgreiðsln yfiþýðuhi. Tllkyrming frá verzluninni „Von", til minna mörgu og góðu viðskiptavina, sei eg fyrst um sinn: Steinolíu, Sólarljós, 77 pr. líter, ekta steinbítsrikling, rauðan og fallegan, hertan f hjöllum á vesturlandi, hinar velþektu góðu kartöfiur, einnig ekta Saltkjöt, allar fásnlegar kornvörur, þurann Saltfisk, Sauðatóig, hinir ljúffengu niðursoðnu ávextir, gerpúiver, si- trónolíu og Vanille. — Komið og gerið hin hagfeldu viðskipti yðar « matvöruverzluninni „Von". Sími 448. Viasamlegast Gttunai Sigupðssoffl. Rifcstjóri og ábyrgðarmaður : ólafur Friðriksson. Frentsmiðjan Gutenberg.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.