Alþýðublaðið - 30.04.1960, Page 3
Krefjast verndar
og löndunarbanns
Iandi. Mikil æsing er í mönn-
um í Grimsby og Hull og er
óttazt að til tíðinda dragi, er
sjö íslenzkir togarar koma þang
að með afla í næstu viku.
Talsmaður brezka utanríkis-
Framhald á 10. síðu.
wwwwwwwMwmwwww
Raunar er forsíðumyndin
ekki af stórfljóti. Það er
ekkert Skeiðarárhlaup á
ferðinni, og allra sízt í
Nóatúni, þar sem forsíðu-
myndin var tekin síðast-
liðinn föstudag. Hitt er
annað mál, að töluverður
lækur rann eftir götunni,
eins og víðar hér í hænum
þennan dag, og þegar Ijós-
myndari Alþýðublaðsins,
hafði framið seið og gald-
ur yfir sprænunni í
myrkrakompu sinni, var
hún orðin að skaðræðis-
fljóti.
GRIMSBY, 29. apríl, (NTB—
REUTER). 14 brezkir togarar
eru nú á leið frá Grimshy á ís-
landsmið eftir að enginn árang-
ur varð á Landhelgisráðstefn-
unni í Genf. Undanfarna daga
hafa mörg skeyti borizt til
Grimshy frá togaraskipstjórum,
sem krefjast þess, að þeim verði
áfrant veitt herskipavernd við
fsland og að landanir erlendra
°g þá fyrst og fremst íslenzkra
1 togara yerði bannaðar í Bret-
MJÖG harður árekstur
varð í gærmorgun um kl.
8.40 á gatnamótum Álf-
heima og Suðurlandsbraut
ar.
Tildrög voru þau, að bif
reiðinni R—487 var ekið
eftir Álfheimum og inn á
Suðurlandsbraut. Lenti
hún fyrir vörubifreiðinni
R—7296 og varð árekstur-
inn mjög harður.
Þegar lögreglan kom á
staðinn, lá bifreiðin R—
487 fyrir utan veginn á
hvolfi, stórskemmd.
Kranabifreið var fengin
til að fara burtu með bif-
reiðina.
MmMHHMmmWMHWMM
Gréta Björns-
son opnar mál-
verkasýningu
í DAG kl. 5 opnar Gréta
Björnsson ntálverkasýningu í
Listamannaskálanum. Á sýn-
ingunni eru um 70 myndir. —
Einnig er á sýningunni 1 teppi
prjónað úr lopa, 1 brekán úr
Álafossbandi og einn gólfdreg-
iH.
Á .sýningunni eru 35 olíu-
myndir, en hinar eru flestar
vatnslitamyndir. Á sýningunni
eru 10 myndir, sem frúin mál-
aði í Palestínu, en þar var hún
fyrir nokkrum árum. Margar
af myndunum eru frá Snæfells-
nesi og einnig eru nokkrar
myndir af blómauppstillingum.
Sýningin mun standa yfir til
8. maí, og verður hún opin dag-
lega frá 1—5, en á sunnudög-
um verður hún opin frá kl. 10
—10.
EKKERT samkomulag
verður um hátíðahöldin 1.
maí að þessu sinni. Sam-
'komulag náðist ekki um
sameiginlegt ávarp. Vildu
kommúnistar setja inn í
ávarpið áróður fyrir sín-
um sérsjónarmiðum í
landhelgismálunum svo
og áróður gegn efnahags
ráðstöfunum ríkisstjórn
arinnar, en á slíkt gátu
andstæðingar kommún
ista ekki fallist.
Endanlega slitnaði upp úr á
fundi 1. maí-nefndar verkalýðs-
félaganna í Reykjavík í fvrra-
kvöld. Héldu kommúnistar þar
til streitu sérsjónarmiðum sín-
um í landhelgismálinu og f lokks
pólitískum áróðri um efnahags-
málin og rufu þannig með póli-
tískum áróðri hina faglegu ein-
ingu, er nauðsynleg var til þess
að samkomulag væri um 1. maí.
HEIMTA ÚRSÖGN
ÍJR NATO.
I ávarpi því, er kommúnistar
hafa samið, heimta þeir m.a. úr-
sögn úr Atlantshafsbandalag-
Kommúnistar
vildu gera
daginn
pólitiskan
inu og halda frammi öðrum á-
róðri gegn samstarfi okkar
hinar vestrænu þjóðir. Einnig
taka þeir undir áróður A-Evr-
ópuríkjanna fyrir 12 mílna
hernaðarlandhelgi. Þá taka þeir
ennnfremur upp óbreyttan á-
róður Þjóðviljans og Alþýðu-
bandalagsins gegn efnahags-
ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar,
svo sem að ríkisstjórnin sé að
leiða atvinnuleysi yfir þjóðina.
ANNAÐ ÁVARP.
Fulltrúi þeirra verkalýðsfé-
laga, er ekki vilja hafa slíkan
flokkspólitískan áróður í ávarpi
sínu fyrsta maí, hafa samið ann
að ávarp, sem er laust við póli-
tískan áróður. Verður það á-
varp birt í Alþýðublaðinu á
morgun. En með því, að kom-
múnistar höfðu meirihluta á 1.
maí-nefnd munu þeir einir
standa að útifundi á Lækjar-
torgi og kröfugöngu 1. maí. —
Andstæðingar kommúnista x
verkalýðsfélögunum munu eng-
an þátt taka í því, að gera 1.
maí að flokkspólitískum degi.
^ n M D í Keflavík
Umboðsm. HAB í Keflavík er:
Friðrik Sigfússon, Vesturgötu 21
Sími: 1365.
:Alþýðublaðið — 30. apríl 1960 *
’ -