Alþýðublaðið - 21.02.1921, Page 1
Alþýdublaðið
öeíið íkt &£. áLlþýðwillokkmum,
1921
Mánudagiaa 21. febrúar.
42. tölubl.
Avarp ti 1 alþýðumanna.
Alþýðuraenn og konur!
Fulltrúaráð Alþýðusambandsins heíir
ákveðið að reist skuli samkomuhús
fyrir verklýðsfélögin á lóð sambands-
ins við Ingólfsstræti og Hverfisgötu í
Reykjavík.
Yður mun það ljóst, hvað afarmikils-
vert það er fyrir samtök alþýðunnar,
að hún hafi ótakmörkuð umráð yfir
samkomuhúsi, en það hefir hún því
aðeins að hún eigi húsið sjálf.
Lóðin er fengin, á góðum stað; hús-
ið vantar.
En það verður að koma.
Enginn getur fullyrt að Alþýðuílokk-
urinn geti í framtíðinni fengið leigð
fundarhús í hinum fáu og smáu sam-
komusölum þessa bæjar.
En komi að því, að verkalýðsíélögin
geti hvergi fengið fundahús t. d. fyrir
þá ástæðu, að þau rúmuðu ekki helm-
ing félagsmanna — og þess er ekki
langt að býða. — Hvað er þá til ráðs?
Hvað verður þá um félagsskap yðar,
verkamenn og konur? Kæmi að því,
þá er félagsskapur yðar dauðadæmdur.
En dauðadómur á samheldni alþýð-
unnar er dauðadómur á hana sjálfa.
Hér eru engin úrrœði fgrir hendi,
önnur en að bgggja samkomuhús.
Ekki lítilfjörlegan smákofa, heldur
stórt og að öllu leyti prýðilegt hús,
sem sé samboðið virðingu fjölmenn-
ustu stéttar þessa lands.
Getum við gert þetta? spyrjið þér.
Já, við getum petta, en við verðum
að vilja það, vilja það öll.
Og við viljum það öll, ef við skiljum
hve stór nauðsyn er að þessu verði
komið í framkvæmd.
En hugsið málið, og þér munuð skilja
og þér munuð vilja og þér munuð geta.
Fulltrúaráðið gefur út skuldabréf til
fjársöfnunar fyrir:
,, A lþýðu húsið “
Bráðabyrgðakvittanir verða einnig
sendar út fyrir smærri upphæðum.
Og þegar upphæð sú er að fullu
greidd, sem skuldabréfið hljóðar á,
verður skuldabréfið afhent. Yextir verða
greiddir 6°/o, eða x/s hærri en spari-
sjóðsinnlánsvextir.
Afborganir engar fyrstu 5 árin, en úr
því greiðist lánið að fullu á 25 árum.
Enginn þarf að láta stórfé, en allir
verða að íeggja sinn skerf. Enginn —
ekki einn einasti — verklýðsfélagsmað-
ur eða kona má skerast úr leik,
Alpgðumenn og konur!
Hefjist handal Verið samtaka. Vinnið
saman fgrir góðan málsiað og þér
sigrið.
Auglýsing.
Fyrir láni til byggingar Alþýðuhússins verða gefin út skuldabréf að upphæð
100 kr. og 50 kr. — Fyrir lánsupphæðum, sem eru minni en nemur verði
skuldabréfs, verða gefin út innlánsskýrteini, að upphæð 25 kr. og 10 kr. —
Lánsfé er veitt jmóttaka á þessum stöðum: Alþýðubrauðgerðinni, Laugaveg 61,
:: :: — Afgreiðslu Alþýðublaðsins — Brauðsölunni á Vesturgötu 29 — :: :*:
j: :: :: :: Skrifstofu samningsvinnu Dagsbrúnar á Hafnarbakkanum. :: :: :: ::