Fréttablaðið - 24.04.2001, Side 4
FRÉTTABLAÐIÐ
24. aprfl ÞRIÐiUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
SJÓMÖNNUM FÆKKAR Sjómenn
eru nú í verkfalli en þeim hefur
fækkað jafnt og þétt
undanfarin áratug
eða um það bil um
þriðjung milli ár-
anna 1990 og 1999.
Sjómenn á fisk-
veiðiskipum árin g
1990, 1995 og 1999 S
6.551
5.061
4.408
1990 1995 1999
Samræmd próf
í grunnskóium
Flestir
skráðir í ís-
lenskuprófið
sKðLAMÁL Samræmdu prófin í 10.
bekk standa sem hæst. í gær var
prófað í íslensku en í dag er prófað í
ensku á morgun er dönskupróf og á
fimmtudaginn er prófað í stærð-
fræði.
í ár eiga nemendur í fyrsta sinn
val um hvort þeir taka prófin og geta
þeir valið að taka ekkert, eitt, tvö,
þrjú eða öll prófin. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Námsmatsstofnun
höfðu flestir 10. bekkingar ákveðið
að þreyta próf í íslensku sem prófað
var í í gær en fæstir ætluðu í próf í
dönsku eða öðru norrænu máli en þau
próf eru haldin á morgun.
Heldur færri nemendur eru í 10.
bekkjar árgangnum í ár en í fyrra. ■
Atvinnuleyf-
um útlend-
inga fækkar
vinnumarkaður Umsóknum um at-
vinnuleyfi fyrir útlendinga fækkaði á
milli febrúar og mars í ár um 9% en
fjölgaði um 20% milli sömu mánuða í
fyrra. Þetta er það eina í nýút-
kominni skýrslu Vinnumálastofnun-
ar sem gefur vísbendingu um að eft-
irspurn eftir vinnuafli sé að minnka.
Atvinnuleysi mældist 1,5% 1 mars
sem er það sama og mældist í febrú-
ar. Skráðum atvinnuleysisdögum
fjölgaði um 2.000 milli þessara mán-
aða en atvinnulausum hefur fækkað í
heild um 15.2% frá febrúar í fyrra.
í skýrslunni kemur fram að yfir-
standandi sjómannaverkfall hefur
talsverð áhrif á atvinnuástand og lík-
legt að atvinnuleysi aukist í apríl ef
verkfallið stendur enn. Spáð er að
það verður á bilinu 1,5% til 1,9%. Við
venjulegar aðstæður minnkar at-
vinnuleysi á milli þessara mánuða. ■
Útgefin atvinnuleyfi útlendinga
Febrúar Mars °/obreyting
2000 182 219 20,3%
2001 311 284 -9%
4
Einkavæðing Áslandsskóla:
Aformum Samfylkingar mætt
með skaðabótum
crunnskóli Búst er við að það ráðist
um aðra helgi hvort samningar
takast á milli Hafnarfjarðarbæjar
við íslensku menntasamtökin um
kennslu og rekstur grunnskólans í
Áslandi til þriggja ára. Samfylkingin
í Hafnarfirði hefur hinsvegar lýst
því yfir að það verði þeirra fyrsta
verk að rifta samningi um einkavæð-
ingu Áslandsskóla ef fylkingin nær
meirihluta í bæjarstjórninni eftir
kosningarnar næsta vor. Böðvar
Jónsson talsmaður samtakanna segir
að ef samkomulag tekst og því síðan
rift næsta vor muni þeir krefjast
skaðabóta frá bænum. Hann gerir
sér þó vonir um að ekki komi til rift-
unar heldur verði samningurinn lát-
inn gilda út samningstímann ef Sam-
fylkingin nær meirihluta í bæjar-
stjórninni.
Böðvar segir að þegar sé farið að
huga að kennararáðningum og m.a.
með því að hafa samband við ein-
staka kennara. Hann segir að það sé
hinsvegar erfitt að fastsetja eitthvað
í þeim efnum á meðan samningur er
NÝTT HVERFI
(slensku menntasamtökin eru vongóð um að samningar takist á milli þeirra og Hafnar-
fjarðarbæjar um Áslandsskóla.
ekki í höfn. Hins vegar séu menn takast. í það minnsta á meðan annað
vongóðir um að samningar muni hefur ekki komið í ljós. ■
^xmmestœt^vm^Mœsmisíams&BíSíSíssmGmtei
Geðhjálp er í gíslingu
- framkvæmdastjórinn kennir starfsmönnum um og þeir framkvæmdastjóranum
ceðhiálp Hatrömm átök fara fram
innan Geðhjálpar og bera talsmenn
fylkinga innan félagsins hvora aðra
þungum sökum. Sveinn Magnússon
framkvæmdstjóri Geðhjálpar segir
að í raun sé staðan sú að stuðnings-
þjónusta Geðhjálpar sé í gíslingu
starfsmanna - ekki allra - en flestra.
Starfsmennn stuðningsþjónustunnar
nota sama orðalag um Svein, Sigur-
stein Másson varaformann og aðra
sem fylkja sér í þann hóp.
í fréttatilkynningu sem send er út
í nafni hóps starfsmanna og félags-
manna Geðhjálpar segir meðal ann-
ars: „...lýsum fullri ábyrgð á hendur
þeim sem taka sér vald til að halda
félaginu Geðhjálp í þeirri gíslingu
sem það er í nú. Til skoðunar er,
hvort ástæða sé til að óska opinberr-
ar rannsóknar á störfum fráfarandi
stjórnar."
Þeir sem skipa hina fylkinguna
hafa uppi margar athugasemdir í
Fréttablaðinu í gær um slaka
frammistöðu starfsfólks stuðnings-
þjónustunnar. í blaðinu var einnig
vitnað í niðurstöður starfshóps sem
nefndi fjölda athugasemda um stuðn-
ingsþjónustuna. Þar sagði til dæmis
að ekki væri nógu gott að yfirstjórn
stuðningsþjónustunnar skuli ekki
vera í höndum faglærðs starfsfólks,
að ekki sé veitt sú þjónusta sem
greitt er fyrir auk annarra alvarlegra
athugasemda.
„Þessi skýrsla er naflaskoðun.
Sveinn Magnússon hefur starfað sem
framkvæmdastjóri í tæplega níu
mánuði og væntanlega ber hann
ábyrgðina ásamt stjórninni. Hann er
að beina spjótunum að sjálfum sér.
Það er búið að reka þrjá lykilstarfs-
menn; Ingólf Ingólfsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóra, Karl Valdimars-
son, sem var forstöðumaður stuðn-
ingsþjónustunnar og Kristjöna Krist-
jánsdóttur bókara. Við teljum að
framkvæmdastjóri, sem hefur starf-
að í níu mánuði, og veit að ekki er allt
eins og það á helst að vera ætti að
gera eitthvað í málunum. Þess vegna
tel ég að gagnrýni Sveins Magnús-
sonar hitti hann fyrir sjálfan," sagði
Sigurður Á. Gunnarsson starfandi
forstöðumaður stuðningsþjónustu
Geðhjálpar. ■
SIGURÐUR ÁRNI GUNNARSSON
Hann gegnir starfi forstöðumanns stuðningsþjónustu Geðhjálpar eftir að forstöðumanni var sagt upp störfum.
Hann styður Kristófer Þorleifsson til formennsku.
Opið í Austurveri
frá 8:00 á morgnana
fil 2:00 eftir miðnætti
Lyf&heilsa
Framsóknarflokkurinn:
Vill hækkaog
lækka raforkuverð
raforka Á sama tíma og framsóknar-
menn í borgarstjórn Reykjavíkur
hafa stuðlað að því lækka raforku-
verð til borgarbúa stefnir ráðherra
þeirra í iðnaðarráðuneytinu að því að
hækka það með frumvarpi til nýrra
raforkulaga. Alfreð Þorsteinsson
stjórnarformaður Orkuveitu Reykja-
víkur segir að það sé hætta á því að
nýlegar lækkanir á raforkuverði til
borgarbúa verði að engu ef frum-
varpið verður samþykkt óbreytt.
Hann vonast þó tii að mestu angúar
frumvarpsins verði sniðnir af því í
meðförum alþingis. Raforkuverð til
borgarbúa lækkaði t.d. um 10% þann
1. mars sl.
Stjórnarformaður Orkuveitunnar
gagnrýnir einnig að lítið samráð
skuli hafa verið haft við hagsmuna-
aðila í orkugeiranum við gerð frum-
varpsins. Hann telur einnig að
óbreytt frumvarp muni skekkja
verulega samkeppnisstöðu á raforku-
markaðnum vegna stærðar Lands-
virkjunar. Þá sé líklegt að Lands-
virkjun muni stýra því nýja fyrir-
tæki sem áformað er að stofna um
raforkuflutninga. ■
INNLENT
Ríkissáttasemjari hefur boðað
fund í deilu sjómanna og útvegs-
manna klukkan 14:00 á morgun, en
fimm dagar eru liðnir frá síðasta
fundi. Samkvæmt upplýsingum frá
embætti Ríkissáttasemjara þá ákvað
Þórir Einarsson ríkissáttasemjari að
boða fund til þess að kanna hvort af-
staða deiluaðila hafi breyst.
O' lafur Steinarsson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri hjá
Icedan. Hann tekur við af Þorsteini
Benediktssyni, einum stofnenda fyr-
irtækisins, en hann lætur nú af
störfum af heilsufarsástæðum. Ólaf-
ur er iðnrekstrarfræðingur frá
Tækniskóla íslands en kemur nú frá
Samskipum. Icedan ehf var stofnað
árið 1992 og hefur frá byrjun m.a.
einbeitt sér að inn- og útflutningi á
veiðarfærum og öðrum búnaði til
þjónustu við sjávarútveginn.