Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.04.2001, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 24.04.2001, Qupperneq 6
FRETTABLAÐIÐ 24. apríl 2001 ÞRIÐJUOACUR 1~ÁTVINNULEYSI | 2300 þiggja ekki bætur vinnumarkaður Nokkur munur birtist í mælingum á atvinnuleysi hjá Hag- stofurmi annars vegar og Vinnumála- stofnuninni hins vegar. Um mánaða- mótin mars-apríl var atvinnuleysi 2,1% samkvæmt vinnumarkaðskönn- un Hagstofunnar en 1,5% af vinnu- afli var skráð atvinnnulaust hjá Vinnumálastofnuninni. Mismuninn má skýra með ólíkum aðferðum við mæiingu. Vinnumálastofnunin mælir þá sem skráðir eru atvinnulausir en Hagstofan bæði þá sem eru skráðir og ekki skráðir. Þegar tölurnar eru bornar saman kemur í Ijós að 2300 eru atvinnulausir en ekki á skrá hjá Vinnumálastofnun og þiggja því ekki atvinnuleysisbætur á meðan. CAMBY í LEIK MEÐ KNICKS Árásarmaðurinn vildi fá að tala við körfu- boltastjörnuna. NBA-stjarna í vanda Fjölskylda Camby laus úr gísíingu connecticut. ap Móðir og tvær systur hins þekkta NBA-leikmanns Marcus Camby sem leikur með New York Nicks voru teknar í gíslingu á heimili sínu í gærmorgun. Lögregla telur að ástæðan kunni að vera skyldleiki þeirra við körfuboltastjörnuna. Mað- ur réðst inn á heimili mæðgnanna vopnaður hnífi snemma í gærmorgun en sleppti gíslunum og gaf sig fram við lögreglu eftir nokkrar klukku- stundir. Önnur systranna hlaut smá- vægileg meiðsl. Lögreglan fékk tilkynningu frá nágranna um að hávaði bærist frá húsinu, en sá sem fyrstur var á stað- inn sá mann halda hnífi að hálsi Mon- icu Camby, systur körfuboltaleik- mannsins. Lögregluþjónninn bað þegar um aðstoð og var húsið fljót- lega umkringt. Árásarmaóurinn krafðist þess að fá að tala við íþrótta- hetjuna en varð ekki að ósk sinni. Skömmu síðar gafst maðurinn upp. ÍLÖCREGLUFRÉTTÍrI Bifreið var stolið af bílastæði í Mosfellsbæ aðfaranótt föstu- dags. Bifreiðin, sem er Isuzu Trooper-jeppabifreið, hefur ekki fundist. — Stolið var myndvarpa úr skólahús- næði í austurborginni. Ástæða er til að hvetja borgara til varfærni áður en slík tæki eru keypt á al- mennum markaði, utan sölubúða, þar sem talsvert hefur verið um þjófnaði á slíkum tækjum undanfar- ið. —♦— Skemmdir voru unnar á bílum á bílasölu við Laugaveg aðfaranótt laugardags. Sést hafði til tveggja pilta við verkið en þeir náðu að kom- ast undan áður en lögreglan kom. —♦— Til átaka kom milli manna á bíla- stæði í Breiðholti aðfaranótt sunnudags. Við átökin urðu auk lík- amsmeiðsla skemmdir á ökutæki. -♦ Eldur var lagður að sæti úr öku- tæki sem komið hafði verið fyrir í aflögðum spennuskúr við Einars- nes. Talverður reykur var en ekki miklar eldskemmdir. 6 Lína.Net fer á hlutabréfamarkað í sumar Óljóst hve stóran hlut Orkuveitan ætlar að selja gagnaelutningar Helgi Hjörvar for- seti borgarstjórnar segir að borgin verði ekki meirihlutaeigandi í Línu.Net þegar fyrirtækið verður skráð á Verðbréfaþingi. Búist er við að það geti orðið í sumar. Orkuveita Reykjavíkur á um 60% hlut í Línu. Net en hluthafar eru alls um 300. Hins vegar hefur ekki verið tekin ákvörðun um hversu stóran hlut ætl- unin er að selja af eignarhluta Orku- veitu Reykjavíkur. Almenn ánægja virðist vera með- al stjórnarmanna Línu. Nets um ár- angurinn í rekstri fyrirtækisins á sl. ári en fyrirtækið var stofnað sumar- ið 1999. í ársreikningum félagsins sem lagðir verða fram á aðalfundi þess í dag kemur fram að tap á reglu- legri starfsemi þess nam um 36 millj- ónum króna. Tap eftir óreglulega liði nam hinsvegar 471 milljón. Athygli vekur að samanlögð afskrifuð við- skiptavild nemur um 435 millljónum króna. Þar nam nemur hlutur vegna Tetra kerfi Irju um 35-40%. Aðspurð- ir hvort þessi mikla afskrift beri vott um að gerð hafi verið mistök í fjár- festingum félagsins var vísað á bug af stjórnarmönnum með þeirri full- yrðingu að afskriftir sem þessar væru eðlilegar. ÁNÆGJA HJÁ LÍNU.NET Alfreð Þorsteinsson telur ekkert óeðlilegt við það að fyrirtækið hafi afskrifað við- skiptavild fyrir 435 milljónir króna á síðasta ári. I samband við Netið á dreifikerfi rafmagns Nýjung í gagnaflutningi hjá Línu.Net: Hægt verður að tengjast netinu í gegnum rafmagnsinnstungu. Stofnkostnaður neytenda um 20 þúsund krónur að viðbættu mánaðargjaldi netið í sumar verður settur upp bún- aður til gagnaflutnings í 70 spenni- stöðvum á höfuðborgarsvæðinu sem Lína. Net hefur fest kaup á frá sviss- neska fyrirtækinu Ascom. Með til- komu þessa búnaðar getur fólk tengst Netinu í gegnum hvaða raf- magnsinnstungu sem er á heimilum sínum. Til að byrja með er gert ráð fyrir að í sumar geti um það bil 20% heimila í borginni haft möguleika á að nýta sér rafdreifikerfið til að fara á Netið. Eini búnaðurinn sem fólk þarf að kaupa er nokkursskonar millistykki sem fest er við rafmagns- kló tölvunnar. Áætlað er að þessi búnaður muni kosta um 20 þúsund krónur og mánaðargjald fyrir raflín- una er áætlað að verði um fjögur þús- und krónur. Á blaðamannafundi hjá Línu.Net í gær kom fram að kostnaður vegna þessa sé um 60 milljónir króna. Þar kom einnig fram að Lína.Net er eitt af mörgum fyrirtækjum í Evrópu sem hefur gert samning við Ascom um notkun og frekari þróun þessara tækni. Eiríkur Bragason fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins segir að ætlað mánaðargjald fyrir aðgang að 4,5 Mbps tengingu sé svipaður og íbúar Essen í Þýskalandi greiða fyrir slíka þjónustu. Hann segir að þetta sé í fyrsta skipti sem íslenskum neytendum er boðið uppá aðgengi að Netinu í gegn- um rafdreifikerfi í stað símkerfis. Þá gefur raflína Línu. Nets notendum sínum kost á sítengingu við netið án innhringingar. Fyrir vikið munu sím- gjöld vegna notkunar á netinu heyra sögunni til. Þess utan býður nýja kerfið uppá mun harðvirkari gagn- flutninga en þekkst hafa fram til þessa. Framkvæmdastjórinn bendir einnig á aö það sem gerir þessa teng- ingu í gegnum rafdreifikerfið sér- lega fýsilega kost sé m.a. sú stað- reynd að fyrirliggjandi kerfi Orku- veitunnar er aðgengilegt öllum íbú- um á höfuðborgarsvæðinu. Einnig skiptir máli að ekki verður þörf á nýjum innanhúslögnum til að geta nýtt sér þessa nýju tækni. -grh@ frettabladid.is NETIÐ í rafmagnsinnstungunni Sérstakar innanhúslagnir vegna nettengingar á heimilum heyra sögunni til með nýjum búnaði sem Lína.Net hefur fest kaup á. Skattbyrði fyrirtækja Prósentan lægri en skatt arnir hærri rIkisfjArmál Samtök atvinnulífsins hafa tekið saman tölur um hækkun tekjuskatts lögaðila á raunvirði á síð- asta áratug. Fram kemur að skattbyrði hafi hækkað en ekki lækkað á þessu tíma- bili þrátt fyrir lækkun hlutfalls tekjuskatts úr 50% í 30%. Samtök atvinnulífsins segja að það gefi takmarkaðar upplýsingar að horfa á skattprósentuna því skattstofninn hefur verið breikkaður. Einnig er lækkun pró- sentunnar komin til vegna minni verð- bólgu en lögaðilar greiða tekjuskatt eftir á og því hefði það í raun falið í sér skatthækkun að lækka ekki skatthlutfallið með minnkandi verðbólgu. Það hefur verið stefna ríkisstjórn- arinnar að lækka skattbyrði á ís- lenskum fyrirtækjum og nokkur skref verið tekin í þá átt. Auk þess að lækka sjálft tekju- skattshlutfallið um 20% hafa ýmis gjöld verið lögð af eins og aðstöðugjöld og tví- sköttun arðs vegna eignar í öðrum félög- um. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði á Viðskipta- þingi Verslunarráðs Islands í febrúar s.l. að það væri heilla- vænlegt að breyta skattkerfi fyrirtækja enn frekar svo að fýsilegt yrði fyrir er- lend fyrirtæki að hefja starfsemi sína hér á landi. Hann sagði þennan kost koma til góðrar skoðunar og DAVÍÐ ODDSSON FORSÆTISRÁÐHERRA Þrátt fyrir þá stefnu ríkisstjórnarinnar að lækka skattbyrði fyrirtækja segja Samtök atvinnulífsins byrðina hafa hækkað því þótt tekjuskattsprósentan hafi lækkað hafi skattstofninn verið breikkaður. „myndarlegar skattalækkanir", sem fólk hefði trú á að yrðu til frambúðar, myndu verða fyrirtækjum og ríkis- sjóði til meiri ávinnings til lengri tíma litið. í vefriti fjármálaráðuneytisins frá 5. apríl s.l. kemur fram að skatt- byrði fyrirtækja miðað við önnur OECD ríki er fremur hagstæð. Sú staða breytist hins vegar þegar haft er í huga að samsetning atvinnulífs- ins hér á landi er nokkuð frábrugðin öðrum OECD ríkjum. Hlutur ríkisins t.d. á fjármálamörkuðum, í orkumál- um og fjarskiptum vegur þungt og þessi fyrirtæki greiða ekki skatt heldur arð í ríkissjóð. IlögreglufréttirI Brotist var inn í geymslu í fjölbýl- ishúsi í austurborginni og stolið blöndunartækjum, sturtubotni og veggflísum. —+— Piltur á 15. ári gerði tilraun til að stela fartölvu úr stofnun í mið- bænum. Pilturinn hljóp á brott úr húsinu með tölvuna en missti hana síðan á hlaupunum og skemmdist tölvan. Pilturinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöð. —«— Bifreið var stolið af bílastæði í Mosfellsbæ aðfaranótt föstu- dags. Bifreiðin, sem er Isuzu Trooper-jeppabifreið, hefur ekki fundist. Stolið var myndvarpa úr skólahús- næði í austurborginni. Ástæða er til að hvetja borgara til varfærni áður en slík tæki eru keypt á al- mennum markaði, utan sölubúða, þar sem talsvert hefur verið um þjófnaði á slíkum tækjum undanfar- ið. Skemmdir voru unnar á bílum á bílasölu við Laugaveg aðfaranótt laugardags. Sést hafði til tveggja pilta við verkið en þeir náðu að kom- ast undan áður en lögreglan kom. —♦— Brotist var inn á heimili í austur- borginni aðfaranótt laugardags og þaðan stolið sjónvarpi. Auk þess að lækka sjálft tekjuskattshlut- fallið um 20% hafa ýmis gjöld verið lögð af eins og aðstöðu- gjöld og tvísköttun arðs vegna eignar í öðrum félögum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.