Fréttablaðið - 24.04.2001, Page 8
FRÉTTABLAÐIÐ
24. apríl 2001 ÞRIÐJUPACUR
FRÉTTABLAÐIÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson
Fréttastjóri: Pétur Gunnarsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Pverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjóm@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf.
Dreifing: Póstflutningar ehf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvasðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
| BRÉF Tll BLAÐSINS~[
Ásakanir út og suður
Einn þeirra starfsmanna sem
gagnrýnir „fráfarandi“ stjórn Geð-
hjálpar og núverandi framkvæmda-
stjóra sem harðast, ritaði eftirfar-
andi bréf í janúarlok síðastliðinn, og
er það dæmigert fyrir sveiflukennda
yfirlýsingleði sem einkennt hefur
máflutning deiluaðila, sem virðast
vera margskiftir og margklofnir:
„Undirrituð vill koma á framfæri
óánægju sinni með óviðeigandi
ástand sem ríkir vegna óheilinda for-
stöðumanns stuðningsþjónustu Geð-
hjálpar.
Eins og ástandið er í dag treysti
ég mér illa til að gegna störfum mín-
um. Mér þykir það miður vegna þess
að mér líkar vel við starfið en tel
ástandið á vinnustaðnum óviðunandi
eins og það er í dag. Svo virðist sem
starfsfólkið vinni hvert gegn öðru í
stað þess að standa saman, eins og
nauðsynlegt er á vinnustað sem þess-
um. Ég vil hiklaust halda því fram að
forstöðumaður stuðningsþjónustunn-
ar vinni störf sín af óheilindum og
það skilar sér í lélegum starfsanda og
óánægju starfsfólks.
Ég leyfi mér því hér með að fara
fram á það að framkvæmdastjóri og
stjórn Geöhjálpar taki á þessum mál-
um.“
-Undirskrift sem ekki er birt hér
af tillitssemi við bréfritara.
KJÖRKASSINN
Á að leggja
Þjóðhagsstofnun
niður?
Niðurstöður dagsins
á www.visir.is
Já
Nei
SVONA VAR NIÐURSTAÐAN
Kjörkassinn sem birtist í gær eins og hann
átti að vera.
Leiðrétting
í blaðinu í gær birtist kjörkassinn
þar sem lesendum var boðið að láta
álit sitt á því hvort leggja ætti Þjóð-
hagsstofnun niður. Að sjálfsögðu áttu
svarkostirnir að vera Já eða Nei' en
ekki Já og Kannski. Lesendur eru
beðnir velvirðingar.
8
Grœnmetistalnastríð geisar á Islandi
fStundum er talað um að til séu
þrjár gerðir af lýgi: Lygi, haugalygi
og tölfræði. Við sem munum verð-
bólguárin minnumst endalausra deil-
na um vísitölur verðlagsmála. í þeim
....... völdu hagsmunaað-
ilar sér þær tíma-
„Blessaður setningar til við-
vertu, það er miðunar sem betur
allsstaðar sama hljómuðu. Það var
tilhneigingin". sjaldnast samkomu-
___.... lag um talnagrund-
völl umræðurnar og
það var meira þrætt um hver hefði
rétt fyrir sér en hvað gera ætti.
Hið sama er nú upp á teningnum í
umræðunum um verðlagningu á
grænmeti. Morgunblaðið komst að
þeirri niðursöðu í fréttaskýringu á
skírdag að álagning stórmarkaða
væri á bilinu 60 - 80%. Baugur hélt
því fram að álagning fyrirtækja inn-
an samsteypunnar á þessari vöru
væri 20 - 30 % en samkvæmt upplýs-
ingum I-Iagkaups væri álagning á
grænmeti og ávöxtum að meðaltali 40
- 45%. Sagði ekki Nettó að hún væri
40 - 60& hjá þeim. Hér er úr nokkru
að velja.
Ég spurði Jóhannes Gunnarsson
hjá Neytendasamtökunum hvort
svona talnastríð væri sérkenni
ástandsins á ísland eða hvort þetta
væri svona í öðrum löndum.
„Blessaður vertu, það er allsstað-
ar sama tilhneigingin. Seljendur vita
að kaupendahópar flytja sig til lendi
þeir hæstir að meðaltali í verðkönnun
eða á einstökum vörufiokkum. Þess
vegna er allt reynt til þess að finna
veikleika á gerð kannanna eða opin-
bers eftirlits og beina sjónum fólks
MáLmanna
EINAR KARL HARALDSSON
ræðir um talnastríðið við Jóhannes
G.unnarsson, framkvæmdastjóra
Neytendasamtakanna.
frá útkomunni. Það hafa geisað talna-
stríð af þessu tagi í flestum löndum
þar sem ég þekki til. En kannski eiga
hagsmunaaðilar greiðari aðgang að
fjölmiðlum hér í fámenninu en ann-
ars staðar, og því ber meira á íslenska
karpinu."
Jóhannes greindi frá því að í Belg-
íu hefði nýverið náðst friður um
„módel“ fyrir verðkannanir, og í und-
irbúningi væri hjá Neytendasamtök-
unum að taka upp belgísku fyrir-
myndina.
En vert er að minnast þess að vís-
tölustríði verðbólguáranna lauk ekki
fyrr en lagaramminn breyttist með
inngöngu Islands í Evrópska efna-
hagssvæðið og með því að samtök at-
vinnurekenda og launafólks tóku upp
nýtt vinnulag í upphafi síðasta ára-
tugar. Hugsanlegt er að einhverjir
muni rifja upp grænmetistalnastríðið
með lítilli eftirsjá að áratug liðnum.
En ef svo á að geta orðið þarf sjálf-
sagt að breyta lagarammanum um
búvöruverndina og knýja fram „þjóð-
arsátt" um ný vinnubrögð. ■
ÓVIÐUNANDI ÓFREMDARÁSTAND
Eftir að Sveinn Magnússon birti svarta
skýrslu um Stuðningsþjónustu Geðhjálpar
hefur málið tekið nýja stefnu.
Ástandið innan Geðhjálpar er löngu hætt að vera einkamál félagasamtaka
Félagsmálaráðherra ogfélagsmálastjóri
Reykjavíkur hljóta að grípa í taumana
geðhjálp Geðhjálparmálið snýst um
vanefndir á þjónustusamningum við
Félagsþjónustuna í Reykjavík annars
vegar og félagsmálaráðuneytið og
Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í
Reykjavík hins vegar. Þessar van-
efndir hafa leitt til stórhættulegs
ástands, sem þegar má tengja amk
einu dauðsfalli.
Um málið hefur verið fjallað í
fjölmiðlum út frá persónulegum ill-
deilum, fundaátökum og starfs-
mannadeilum en hagsmunir þeirra
35 einstaklinga sem áttu að vera í
EKKI STAÐIÐ VIÐ ÞJÓNUSTUSAMNINGA
• Samningarnir gera ráð fyrir að
ríki og borg greiöi fyrir 15,79 stöðu-
gildi en þjónustan sem veitt hefur
verið nemur ekki nema sem svarar
11,95 stöðugildum. Samstarfshópur
um þjónustumat hefur metið um-
önnunarþörf 35 skjólstæðinga Geð-
hjálpar og segir að hún kalli í raun
á nær 21 stöðugildi. Alltof fátt fólk
hefur því sinnt um sjúklingana.
• Misbrestur hefur verið á því að
lyfjagjöf íbúa væri framfylgt og
dæmi um að ónotuð lyf safnist upp
hjá íbúum yfir lengri tíma, sem er
stórhættulegt bæði þeim og öðrum.
• Ljóst er að eftirlit með fram-
kvæmd þjónustunnar hefur verið
takmarkað af hálfu Félagsþjónust-
unnar í Rey.kjavík og Svæðisskrif-
stofu fyrir málefni fatlaðra í
Reykjavík. Jafnframt hefur óvissu
gætt um hver eigi að gera hvað í
þessum efnum.
• Fyrir utan óboðlegt húsnæði á
a.m.k. tveimur stöðum er augljóst á
skýrsiu vinnuhóps um þjónustusa-
samningana við opinbera aðila, að
Stuðningsþjónusta Geðhjálpar hef-
ur ekki staðið við þá í nokkrum
meginatriðum:
• Vinnuhópurinn segir í raun að
Geðhjálp hafi engu raðið um stjórn
Stuðningsþjónustu Geðhjálpar, og
áréttar að það sé hlutverk samtak-
anna sem eigenda að ákveða stjórn-
arfyrirkomulag þeirrar þjónustu-
starfsemi sem samtökin hafa með
höndum. Þarna sér í áralanga átaka-
sögu sem kunnugir segja að hafi
staðið allt frá stofnun Stuðnings-
þjónustunnar 1994.
LÁRA
BJÖRNSDÓTTIR
Hann hlýtur að láta
málið til sín taka.
umönnun Stuðn-
ingsþjónustu
Geðhjálpar hafa
fallið í skugga af
vopnaviðskipt-
unum.
Vinnuhópur
Geðhjálpar, sem
skilaði áliti dag-
inn fyrir aðal-
fundinn fræga,
virðist vera skip-
aður yfirveguðu
fólki sem kemur
víða að úr með-
ferðargeiranum. Álitið tekur af allan
vafa um að sjúklingarnir 35 sem eru
í umönnun Geðhjálpar hafa ekki
fengið umsamda þjónustu, hvað þá
heldur þá þjónustu sem sérstök
þarfagreining kallar á.
Þegar stöðugildi sern greitt er fyr-
ir eru ekki mönnuð, húsnæði er óboð-
legt, eftirlit með lyfjainntöku virðíst
ekki vera fyrir hendi, fagleg stjórn
og framkvæmd ábótavant, er lítt
skiljanlegt. hversvegna félagsmála-
stjórinn í Reykjavík og félagsmála-
ráðherra eru ekki fyrir löngu búin að
grípa inn í málið. Vinnuhópurinn seg-
ir að eftirlitið hafi verið takmarkað
og óvissa um
fyrirkomulag
þess og fram-
kvæmd. Ástand-
ið í Geðhjálp er
ekki lengur
einkamál sam-
takanna og þeg-
ar þjónustu-
samningar hafa
verið.þverbrotn-
ir hljóta opinber-
ir aðilar, sem
hafa „boðið út“
þjónustuna að
geta skorist í leikinn. Nú hlýtur að
verða spurt: Hvað gerir félagsmála-
stjórinn, hvað gerir ráðherrann?
Það er svo önnur hlið á þessu máli
að mjög hefur tíðkast í seinni tíð að
gerðir séu þjónustusamningar við
mannúðar- og líknarsamtök eða
sjálfseignarstofnanir um yfirtöku á
einstökum þáttum í félagsþjónustu.
Nú hlýtur að vakna sú spurning
hvernig þeir séu almennt ræktir og
hvort opinberir aðilar varpi sínum
vanda yfir á vanburðug félagasam-
tök án þess að skeyta um hvort þeir
sem þjónustuna eiga að njóta fái um-
samda umönnun.
Opið í Auskirveri
frá 8:00 á morgnana
til 2:00 eftir miðnætti
eftiriviæliT
Stóð eins og stafur á bók
„„Við (þ.e. Davíð og Ingibjörg)
höfum alltaf getað talað saman. Það
er það góða við hann.“
Síðar í þessum mánuði fagnar
Davíð Oddsson þeim einstæða áfanga
að hafa setið í áratug í stóli forsætis-
ráðherra í þremur ríkisstjórnum.
Ingibjörg segir að lykillinn að styrkri
stjórn Davíðs felist í leiðtogahæfi-
leikum hans, hann kunni þá list að
vera skemmtilegur þegar við á og
hann sýni fyllstu heilindi í blíðu og
stríðu. „Það kann ég hvað mest að
meta í fari hans. Þegar hann sagði
eitthvað við mig, þá stóð það eins og
stafur á bók. Mér fannst gott að
vinna undir forsæti Davíðs Oddsson-
ar. Ég veit að hann skrifar uppá að
samstarfið var báðum til sóma.““
Morgunblaðið 22. apríl 2001.