Fréttablaðið - 24.04.2001, Page 14

Fréttablaðið - 24.04.2001, Page 14
FRÉTTABLAÐIÐ 24. apríl 2001 ÞRIÐJUPAGUR HVERNIC FER U21-landsleikur íslands og Möltu? LOGI ÓLAFS- SON, ÞJÁLFARI FH „island vinnur þetta létt með þremur mörkum gegn einu. Jó- hannes Karl Guð- jónsson verður á skotskónum, skorar tvö mörk. Honum fylgir fast á hæla Veigar Páll Gunnarsson með eitt mark." PÉTUR PÉTURS- SON, ÞJÁLFARI KR „Ég vona bara að ísland vinni. Það dugar mér." | MOLAR ir Frank Williams, stjóri BMW Williams liðsins, deplar ekki auga þrátt fyrir að þriggja ára sigurganga hafi verið rofin með sigri á Imola um síðustu helgi. „Keppnistímabilið er nýhafið og of snemmt að spá fyrir um framhaldið," segir Sir Frank og ber höfuðið hátt. Brasilíska toppfyrirsætan Kandja gæti hafa kostað David Coult- hard fyrsta sæt- ið í San Marino Grand Prix á dögunum, að sögn ítalskra slúðurfrétta- blaða. Módelið Kandja, sem eyddi nóttinni fyrir kappaksturinn með David, segir kappann gera meira en að gnísta tönnum, hann sé hugmyndaríkur og blíður elskhugi og hafi fært henni morgunmat áður en hann fór út á braut. Eiginkona Mika Hakkinen heim- sótti manninn sinn í vinnuna á Imola á Ítalíu. Þetta var fyrsta heim- sókn frúarinnar síðan hún eignaðist soninn Hugo og í tilefni af því var gefinn út sérstakur aðgöngupassi með mynd af drengnum. Undir myndina var áletrað: Varanlegur Formula i-aðgangur, Hugo Hakkinen, framtíðarheimsmeistari. Lothar Matthaeus, sem hefur spil- að flesta leiki með þýska lands- liðinu, ails 150, verður heiðraður í vikunni. Hann fær titilinn heiðurs- fyrirliði landsliðsins, titill sem ein- ungis þremur leikmönnum hefur áður hlotnast. Þeir eru Fritz Walter, Uwe Seeler og Franz Beckenbauer. Athöfnin fer fram síðar í vikunni. Brasiliski knattspyrnumaðurinn William Pereira Farias fagnaði gríðarlega þegar hann skoraði mark með liði sínu Ponta Pora gegn Andradina. William, sem fletti sig klæðum af einskærri gleði og stóð á nærbuxunum einum saman, var snarlega handtekinn fyrir ósæmi- lega hegðun og gert að greiða félag- inu sekt. Trúlega getur hann önglað saman fyrir sektinni ef hann þiggur tilboð sem hann fékk í tilefni af at- vikinu, að sitja fyrir nakinn í tíma- riti fyrir samkynhneigða. Forseti Rússlands, Vladimir Putin sýnir hér á myndinni júdónem- anda hvernig á að ná góðu ippon. Forsetinn leggur mikið upp úr hreyfingu og fer í sund á hverjum degi. Hæfileikar hans hann er með svart Tennisleikarinn Steffi Graf hefur ákveðið að svara ekki gæiunafninu Steffi í framtíðinni. „Ég heiti Stefanie og og finnst það fallegt," segir stjarn- an og hefur til að undirstrika alvöru málsins breytt nafni markaðsfyrir- tækis síns úr Steffi Graf Sport.... í Stefanie Graf Marketing. liggja þó í júdó en belti í íþróttinni. 14 U21 landsliðið mætir Möltu í dag: Sex mörk gegn engu? knattspyrna Fremstu knattspyrnu- menn íslendinga fjölmenntu til Möltu á sunnudaginn þar sem fram fara tveir landsleikir í vik- unni. Unglingalandsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri mæta Möltubúum í Gozo kl. 14 að ís- lenskum tíma í dag í Evrópu- keppni. Liðin eru saman á botni riðilsins með eitt stig. Þá mætir A- landsliðið Möltubúum á morgun. Unglingalandsliðin tvö mætt- ust síðast á Sauðárkróki 13. ágúst 1996 þar sem íslendingar burst- uðu Möltubúa með sex mörkum gegn engu. Það er vonandi að strákunum takist eins vel upp í kvöld. ■ Á SAUÐARKRÓKI 1996 Þá unnu strákarnir Möltubúa með sex mörkum gegn engu Atvinnumenn á Ítalíu: Sterarnir vinsælir serie a Hollendingurinn Edgar Davids, leikmaður Juventus, hefur bæst í hóp þeirra leikmanna í ítölsku deildinni sem liggja undir grun um misnotkun nandrolone, sem eru anabólískir ster- ar. Þó liggja ekki öruggar niðurstöður fyrir því. Davids þjáist af gláku og er mögulegt að lyfin sem hann tekur við sjúkdómnum hafi ruglað lyfjaprófið. Portúgalinn Fernando Couto, leik- maður Lazio, á yfir höfði sér tveggja ára leikbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi í febrúar síðastliðnum. Læknir Lazio harðneitar því að þetta geti staðist. Sjö leikmenn í ítölsku deildinni hafa fallið á lyfjaprófi á þessarri leiktíð, þar á meðal Sal- vatore Monaco, leikmaður Perugia, sem var settur í 16 mánaða leikbann í febrúar. ■ ÉG ER MEÐ'ANN Markvörður Atalanta, Ivan Pellizzoli, bjargar boltanum frá Zisis Vrizas, miðjumanni Perugia í l’tölsku Serie A á sunnudaginn. Leikurinn endaði með jafntefli, 2-2. Svifflugur fá uppreisn æru Voru íjögur og hálft ár í gegnum skriffinnskukerfið svifflug „Þú þarft að vera mjög fær flugmaður til að ná góðum tökum á sviffluginu,“ segir Kristján Svein- björnsson, formaður Svifflugfélags íslands. 17. apríl síðastliðin fékk fé- lagið inngöngu í íþróttahreyfinguna. Það tók fjögur og hálft ár að fá viðurkenningu fyrir svifflugi sem íþróttagrein. Félagið sendi fyrst inn ósk um inngöngu til íþróttabandalags Reykjavíkur í apríl 1996. Það að fé- lagið skyldi kenna sig við ísland stóð í íþróttahreyfingunni og var mikil tregða á að samþykkja það. En félag- ið er gamalt og gróið, eldra en ÍBR, og því voru menn ekki tilbúnir til að breyta nafninu. „Inngangan þýðir að við höfum sterkari stöðu gagnvart Reykjavík- urborg. Þá eygjum við möguleika á að fá aðstöðu á Reykjavíkurflugvelli, þar sem við gætum meðal annars geymt flugurnar á veturna. Hingað til höfum við alltaf verió settir aftast í forgangsröðina," segir Kristján. Tvö önnur Svifflugfélög eru starf- andi á landinu, á Akureyri og á Suð- urlandi. Svifflugfélag íslands er stofnað 1936 og eru meðlimir þess 100, þar af 60 virkir. Sólóréttindi í svifflugi fást eftir 35-40 flug með kennara í tveggja sæta kennslusvifflugu. Sviffluguvertíðin er að hefjast þessa dagana en fyrst þurfa meðlim- ir félagsins að rýma aðstöðuna á Sandskeiði en helsta tekjulind félags- ins er að geyma hjólhýsi og tjald- vagna í flugskýlunum þar. ■ FÁUM KANNSKI INNI Á REYKJAVÍKURFLUGVELLI Krístján Sveinbjörnsson, formaður Svifflugfélags íslands, er hæstánægður með aðildina að ÍSÍ. Fóturinn fastur niðri Ralf Schumacher tekinn á 170 km/klst hraða formúlai Allt bendir til þess að Ralf Schumacher þurfi að fá far á braut- ina um næstu helgi. Hann var tekinn af lögreglunni í Austurríki rétt hjá heimili sínu um síðustu helgi þar sem hann ók á 170 km/klst hraða þar sem 100 km/klst er hámarkið. Ekki léttist brúnin á lögreglu- þjónunum þegar Ralf litli var ekki með ökuskírteinið sitt á sér. Hann þurfti að reiða fram 67 þúsund krón- ur á staðnum auk þess að missa öku- leyfið í tvær vikur. Allt þetta gerðist einungis viku eftir að hann vann sína fyrstu Fl-keppni, í Imola á pálmasunnudag. Þetta breytir þó litlu um keppn- ina um næstu helgi sem fer fram í Katalóníu á Spáni. Þar keppa öku- mennirnir á þeirri braut sem þeir þekkja einna best þar sem hún er mikið notuð til æfinga og prófana utan keppnistímabilsins. Brautin er jafnframt ein sú erfiðasta, með löng- um beygjum sem sveigjast með jöfnum radíus. Hvössustu hornin eru jafnframt undir níutíu gráðum. Því er álagið á ökumennina mikið allan kappaksturinn. ■ FÆ ÉG SÉNS? Viku eftir fyrsta Fl-sigur sinn missti Ralf Schumacher ökuskírteinið 1 INNLENT Daði Eyjólfsson sigraði Hilmar Þór í úrslitaleik Islandsmóts 1. flokks í snóker. Jóhannes R. Jó- hannesson sigraði í stigamótum meistaraflokks með 2310 stig og hefur því tryggt sér þátttökurétt á EM og HM í snóker. RÚV greindi frá. Fjórar stúlkur, fæddar 1989, slógu elsta metið í íslands- metaskránni í sundi, sett 1989. Stúlkurnar syntu 4x100 metra á 5:22,68 á langsundsmóti SH í Sund- höllinni á sunnudaginn. Gamla metið var 5:27,83. RÚV greindi frá. Vernharð Þorleifsson vann til silfurverðlauna í sínum þyngd- arflokki á opna breska meist- aramótinu í júdó á sunnu- dag. Vernharð komst í undan- úrslit í morgun og sigraði þar franskan júdómann. Hann glímdi síðan til úrslita við silfurverð- launahafann frá síðustu ólympíu- leikum, Nicolas Gill frá Kanada - hafði yfirhöndina allt þar til hálf önnur mínúta var til loka glímunn- ar, en þá náði Gill að kasta Vern- harð og sigra. RÚV greindi frá.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.