Fréttablaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 18
FRETTABLAÐIÐ 24. apríl 2001 ÞRIÐJUPAGUR HVERIll IVIÆUR ÞÚ MEÐ? Björg Eva Erlendsdóttir Upplýsingafulltrúi Ég mæli með því að allt gangfært fólk fari i Þjóð- lendugöngur í Gnúpverjahreppi í Árnessýslu í sum- ar. I Þjóðlendu- göngum má fræð- ast um lífið á mörkum hálendis °g byggðar bæði fyrr og nú. Þar má líka kynnast hinni stórfurðulegu deilu ríkisins við bændur um eignarétt á jörðum og afréttum. Raðherrar, þingmenn, sveitarstjórnarmenn, kröfunefnd og þjóðlendunefnd, sláist í för með fuglum, sauð- kindum og sveitamönnum um þrætulöndin í ágúst! Hægt er að skrá sig í Þjóðlendugöngur hjá Ferðafélagi íslands. Bókakaffi á Súfistanum: Píslarsaga séra Jóns Magnússonar bókmenntir Píslarsaga Jóns Magnús- sonar er komin út í nýrri útgáfu. í til- efni af því verður sérstök dagskrá í kvöld á Súfistanum, bókakaffi í verslun Máls og menningar, Lauga- vegi 18. Þar mun rit- stjóri bókarinnar, Matthías Viðar Sæ- mundsson, kynna hana. Einnig fjallar Guðrún Ingólfs- dóttir bókmennta- fræðingur um Písl- arsöguna í samhengi íslenskra bók- mennta og Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld flytur kynngimagnaðan tón- seið-.-— Steinunn Ólafsdóttir og Benedikt Erlingsson leikarar lesa úr Píslarsög- unni og Hrafn Gunniaugsson kvik- myndaleikstjóri ætlar enn fremur að ræða um hvernig hann sótti innblást- ur í verk Jóns þumals. Sýnd verða myndskeið úr kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Myrkrahöfðinginn. Dagskráin hefst klukkan 20 og er aögangur ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. ■ Tónlistarskóli Kópavogs Píanótónleik- ar í Salnum TóNtisi Unnur Fadila Vilhelmsdóttir píanóleikari verður meó tónleika í. Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, í kvöld kl. 20.00. Unnur Fadila ætlar að flytja þar verk eftir þrjá af höfuð- snillingum vestrænnar tóniistar, þá Sergei Prokofieff, Frederik Chopin og Ludwig van Beethoven. Tónleik- arnir eru liður í tónleikaröð kennara Tónlistarskóla Kópavogs. ■ 18 Fljúgandi furðuhlutur Fræðsla um mat og vín namskeið Einn besti vínþjónn í heimi, Juha Lihtonen frá Finnlandi, verður með námskeið um samsetningu víns og matar fyrir fagfólk og almenning í dag og á morgun. Þetta er eitt viða- mesta námskeið sinnar tegundar sem haldið hefur verið hér á íandi. Finninn Juha Lihtonen er einn besti vínþjónn í heiminum og fram- úrskarandi matreiðslumeistari að auki! Hann hefur starfað á veitinga- stöðum í Frakklandi, Spáni, Ítalíu og víðar og keppt á öllum stóru mótun- um í víngeiranum. Hann rekur sitt eigið ráðgjafarfyrirtæki og veitinga- skóla. ■ ÞRIÐJUDACURINN 24. APRÍL TÓNLIST____________________________ 20.00 Tónleikar verða í Salnum, Tónlist- arhúsi Kópavogs, kl. 20:00 í kvöld í tónleikaröð kennara Tónlistar- skóla Kópavogs. Unnur Fadila Vilhelmsdóttir píanóleikari flytur verk eftir Prokofieff, Chopin og Beethoven. 20.00 Þriðju og síðustu vortónleikar Léttsveitar Reykjavíkur sem bera yfirskriftina „Suður um höfin" verða í kvöld i tónlistarhúsinu Ými, Skógarhlíð 20. 20.30 Borgarkórinn og Landsbanka- kórinn halda sam- eiginlega tónleika í Vídalínskirkju í Garðabæ. Stjórnend- ur kóranna eru Sig- valdi Snær Kalda- lóns og Jónína G. Kristjánsdóttir, en á efnisskránni eru ma- drígalar, þjóðlög og íslensk sönglög. BÆKUR______________________________ 9.00 Svonefnd Bókahringrás Máls og menningar hefst í dag í bókabúð- um Máls og menningar við Laugaveg og Síðumúla, en þar verður tekið á móti notuðum bókum og þær síðan seldar í kilóavís til styrktar góðu málefni. 20.00 Píslarsaga Jóns Magnússonar verður kynnt í sérstakri dagskrá á Súfistanum, bókakaffi i verslun Máls og menningar, Laugavegi 18. Þar verða Matthías Viðar Sæ- mundsson bókmenntafræðingur, Hrafn Gunnlaugsson kvikmynda- gerðarmaður, Guðrún Ingólfs- dóttir bókmenntafræðingur, Hilmar Örn Hilmarsson tónlistar- maður og leikararnir Steinunn Ólafsdóttir og Benedikt Erlings- son. FUNDIR_____________________________ 8.30 Vorráðstefna Jarðfræðafélags fs- lands verður haldin á Hótel Loft- leiðum. Ráðstefnan verður sett 08:30 og stendur til 17:30. Um 27 erindi verða flutt á ráðstefn- unni og efni hennar er fjölbreytt því þar kynna jarðvísindamenn landsins þær rannsóknir sem ver- ið er að vinna að á hverjum tíma. Frekari upplýsingar gefur formað- ur Jarðfræðafélags íslands, Helgi Torfason. 12.20 Benedikt Waage, efnafræðiskor mmum/numsiDe ' KVIKMYND Niðurlœging keisarans Nýi stíllinn keisarans“ er ágætis afþreying eins og við mátti bú- ast frá Disney-fyrirtækinu, fyndin og fjörug, en býsna langt frá því að vera sú brakandi snilld sem stöku sinnum kemur úr þeim her- búðum. íslenska talsetningin bregst þó ekki frekar en fyrri dag- inn. Hrokafulli keisarinn Kúskó lendir í ömurlegum hrakningum eftir að metnaðargjarni ráðgjafinn hans gerði sér lítið fyrir og breytti honum í lamadýr. Niðurlægingin kennir honum smám saman að verða mannlegur, og nýtur hann þar aðstoðar hjartahreins bónda sem keisarinn var annars nærri búinn að fara heldur illa meó. Allt fer vel að lokum eins og vera ber, Nvi stíllinn keisarans______________ Nýjasta teiknimyndin frá Disney: Sýnd í: Sambíóunum, Regnboganum Leikstjóri: Mark Dindal Framleiðandi: Walt Disney Productions keisarinn verður að betri manni og illmennin fá makleg málagjöld. Disney gengur hér lengra en fyrr í að troða nútímanum upp á gamalt ævintýri, og svo sem engin ástæða til að láta það fara í taug- arnar á sér. Húmorinn er fínn, en myndin nær því samt varla að verða sér- lega eftirminnileg. Giörningar í Nýlistasaminu: Gerla situr og saumar mynplist Myndlistarkonan Gerla verður með tvo gjörninga í Nýlista- safninu við Vatnsstíg í dag, eins og raunar á hverjum degi meðan gjörn- ingavika safnsins stendur yfir. Annar gjörningurinn hefst kl. 16.00 og stendur í tvo tíma. „Þar er ég að myndgera það hugarástand sem bið er,“ segir Gerla. „Ég útiloka mig frá því sem er að gerast í safninu og sit bara og sauma flatsaum í tvo tíma. Maður er nánast mitt á milli þess að vera lifandi og að vera skúlptúr á meðan ég er að gera þetta.“ „Svo er ég með annað verk kl. 18.15 á hverjum degi,“ segir Gerla. Þar er hún að velta fyrir sér foriaga- trú íslendinga og merkingu orðsins afmæli, sem er töluvert öðru vísi hugsað en sambærileg orð í öðrum tungumálum. „Ég þekki ekki neitt annað tungumál þar sem vísað er í annað en fæðingardaginn. „Afmæli" vísar hins vegar í það að okkur er öll- um afmörkuð stund og tími.“ Gerla vitnar m.a. í texta úr Predikaranum í því samhengi. Auk Gerlu verður Svanhildur Hauksdóttir með gjörning í Nýlistasafninu kl. 16.30 í dag, en hann felst í því aö hún burðast með grjót á milli hæða í safninu. ■ GERLA FREMUR GJÖRNING Myndlistarkonan veltir fyrir sér merkingu orðsins afmæli og hvernig það ti Háskóla íslands flytur M.S. fyrir- lestur á málstofu efnafræðiskor- ar er hann nefnir: „Þriggja ljósein- da gleypni sameinda, Ijósefna- fræði ósoneyðandi efna". Fyrirlest- urinn verður haldinn í stofu 157, VRII, Hjarðarhaga 4-6. 16.15 Dóra S. Bjarnason dósent við Kennaraháskóla íslands heldur fyrirlestur á vegum Rannsóknar- stofnunar KHÍ. Fyrirlesturinn verð- ur haldinn í stofu M 201 í aðal- byggingu Kennaraháskóla (slands við Stakkahlíð og með fjarfunda- Kvikmyndahátíðin Sögur á tjaldi: Tvær sjálfstæðar konur kvikmynpir Tvær kvikmyndir verða sýndar í Háskólabíói í dag á kvik- myndahátíð Filmundar á bókavik- unni. Ungfrúin góða og húsið (1999), sem Guðný Halldórsdóttir gerði eftir smásögu föður síns Halldórs Laxness verður sýnd kl. 18.00. í aðahlutverk- um eru Tinna Gunnlaugsdóttir, Ragn- hildur Gísiadóttir og Egill Ólafsson. Skilaboð til Söndru (1983), sem Krist- ín Pálsdóttir gerði eftir skáldsögu Jökuls Jakobssonar verður svo sýnd kl. 22.00. í aðalhlutverkum eru Bessi Bjarnason og Ásdís Thoroddsen. Kvikmyndahátíinð stendur fram í næstu viku. UNGFRÚIN GÓÐA OG HÚSIÐ Tinna Gunnlaugsdóttir herðir að Ragnheiði Gísladóttur. Reykjavík. Karsten Iversen hjá Línuhönnun, Gísli Guðmundsson hjá Rb og Ólafur Wallevik hjá Rb ræða málin. MYNDLIST___________________________ Á Kjan/alsstöðum stendur yfir sýning norska listmálarans Odds Nerdrums, sem baðst nýverið afsökunar á því að hafa siglt undir fölsku flaggi með því að kalla sig listamann. Sýningin er opin kl. 10-17. „Heimskautalöndin unaðslegu" er heiti sýningar sem lýsir með myndrænum búnaði í Mennta- skólanum á fsafirði. Fjallað verður um spurninguna hvort samband sé á milli þess að fötluð ung- menni telja sig verða fullorðin og uppeld- ishátta í foreldrahúsi. Fyrirlesturinn er öll- um opinn. 16.15 Steinsteypufélagið stendur fyrir opnum fundi um áhrif sements á steinsteypu á Grand Hóteli

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.