Fréttablaðið - 24.04.2001, Page 19
ÞRIÐIUDAGUR 24. apríl 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
19
Vortónleikar Léttsveitar Reykjavíkur:
Suður um höfin
tónleikar Þriðju og síðustu vortón-
leikar Léttsveitar Reykjavíkur sem
bera yfirskriftina „Suður um höfin“
verða kl. 20.00 í kvöld í tónlistarhús-
inu Ými, Skógarhlíð 20.
Tónleikarnir bera yfirskriftina
„Suður um höfin“, enda er efnisskrá-
in suðræn og spænsk í bland við ís-
lensk og ensk lög.
4KLASSÍSKAR koma fram með
kórnum, en þær eru Björk Jónsdóttir,
Signý Sæmundsdóttir, Jóhanna V.
KVENNAKÓRINN
LÉTTSVEIT REYKIAVÍKUR
Ásamt kórnum kemur fram kvenna-
söngkvartettinn 4KLASSÍSKAR.
Þórhallsdóttir og Aðalheiður Þor-
steinsdóttir. 4KLASSÍSKAR verða
með sjálfstæða tónleika í maímánuði.
Auk þess spila með kórnum hljóð-
færaleikararnir Einar Kristján Ein-
arssson, gítar, Kristinn Árnason, gít-
ar og Jón Skuggi, bassi, með píanó-
leikara Léttsveitarinnar í broddi
fylkingar. Á slagverk spilar Stína
bongó, sem er ein Léttsveitarkvenna
og einsöng syngur Ása Bjarnadóttir,
einnig í Léttsveitinni.
Kvennakórinn Léttsveit Reykja-
víkur mun koma í fyrsta skipti fram
á þessum tónleikum í nýjum kjólum,
sem hannaðir eru ef Elínu Eddu
Árnadóttur, myndlistarmanni. ■
-———-— ------------------------------—------------------y ~ ............iiiimiiumiiuiiiiiMiniiitiiiiiiiiiiiwiiiiiiiwMiiimimiwniiiivTiii
! MYNDBAND FYRIR KVÖLDIÐ
’ ...................... ............. ................‘
Tónsnillingur í
The Legend of 1900 er hugljúf
mynd um drenginn 1900 sem
fæddist og ól allan aldur sinn um
borð í farþegaskipi sem sigldi milli
Evrópu og Ameríku. Vélamaður í
skipinu finnur hann í kassa á pí-
anói danssalarins og elur hann upp
í vélarrúmi skipsins. Nafn sitt
hlaut pilturinn af fæðingaári sínu.
í ljós kemur að 1900 er hreinasti
tónlistarvirtúós og verður hann pí-
anóleikari um borð. 1900 þekkir
ekki lífið utan skips en hann þekk-
ir vel það líf sem býr í tónlistinni.
Trompettleikarinn Max verður vin-
ur hans og freistar þess fá hann til
að takast á við hið raunverulega líf
án árangurs. Myndin fjallar um
skipi
hugarheim 1900
vináttu þeirra
Max.
Myndir um
kynlega kvisti
eru fyrir löngu
orðnar sígildar
og eru á góðri leið með að verða
kvikmyndaklisja. Myndin er engu að
síður ágætt framlag í flóru þeirra.
í
THE LEGEND OF 1900 _______________
Itölsk frá 1998
Leikstjórn: Giuseppe Tornatore
Handrit: Giuseppe Tornatore byggt á sög-
unni Novecento eftir Alessandro Baricco
Tónlist: Ennio Morricone
Kvíkmyndataka: Lajos Koltai
Aðalhlutverk Tim Roth og Pritt T. Vince
W:
forlagatrú íslendinga.
hætti lífi, starfi og hugsjónum Vestur-ís-
lendingsins Vilhjálms Stefánssonar.
Sýningin er um leið kynning á umhverfi,
menningarheimum og málefnum norð-
urslóða, en hún er í Listasafni Reykjavík-
ur - Hafnarhúsinu og er opin kl. 10-17.
„Á meðan eitthvað er að gerast hér, er
eitthvað annað að gerast þar" nefnist
sýning á vekum Bandaríkjamannsins
John Baldessari sem stendur yfir í Lista-
safni Reykjavíkur - Hafnarhúsi. Hann er
eitt af stóru nöfnunum í samtímalista-
sögunni og hefur verið nefndur Ijóð-
skáld hinnar öfugsnúnu fagurfræði og
húmoristi hversdagsleikans. Sýningin er
opin kl. 10-17.
„Eruð þið enn reið við mig?" nefnist sýn-
ing á verkum eftir breska listamanninn
John Isaacs í Listasafni Reykjavíkur -
Hafnarhúsi þar sem gefur m.a. að líta
sláandi nákvæma sjálfsmynd lista-
mannsins, sem þar skyggnist undir eigið
yfirborð í orðsins fyllstu merkingu. Við-
brögð áhorfenda við verkum hans ýmist
hlátur eða hrollur, en víst er að lista-
maðurinn ieggur mikið upp úr því að
hreyfa við fólki, á hvorn veginn sem er.
Safnið er opið kl. 10-17.
í Ásmundarsafni við Sigtún í Reykjavík
stendur yfir samsýníng á verkum Páls
Guðmundssonar og Ásmundar Jónsson-
ar. Safnið er opið kl. 10-16.
í Listasafninu á Akureyri stendur yfir sýn-
ing á Ijósmyndum eftir hinn þekkta fran-
ska Ijósmyndara Henri Cartier-Bresson,
en líklega hefur enginn átt meiri þátt í
því að gera Ijósmyndun að viðurkenndri
listgrein. Opið 14-18.
Myndir 370 barna af mömmum i spari-
fötum eru á sýningu í Galleríi Sævars
Karls við Bankastræti í Reykjavík. Opið á
verslunartíma.
í Listasafni Kópavogs - Gerðarsafni
stendur yfir sýningin Carnegie Art Award
2000, þar sem sýnd eru verk eftir 21
norrænan myndlistarmann, en þar á
meðal eru þeir Hreinn Friðfinnsson og
Tumi Magnússon. Opið 11-17.
„Drasl 2000" nefnir
rithöfundurinn Sjón
sýningu í Menningar-
miðstöðinni Gerðu-
bergi i sýníngarröð-
inni „Þetta vil ég sjá".
Þar hefur Sjpn valið
til sýningar verk eftir
Erró, Magnús Páls-
son, Magnús Kjart-
ansson, Hrein Frið-
finnsson, Friðrik Þór Friðriksson og fleiri.
Menningarmiðstöðin er opin frá kl. 9 að
morgni til kl. 21 að kvöldi.
1:10 nefnist sýning á þrívíddarmyndum
eftir Karin Sander. Þetta eru eftirmyndir
af fólki, unnar með nýjustu tölvutækni
og allar í hlutfallinu einn á móti tíu af
réttri líkamsstærð viðkomandi. Sýningin
er í Galieríí Í8, sem nýlega er flutt að
Klapparstíg 33 í Reykjavík.
í gallerí@hlemmur.is stendur yfir sýning
Erlu Haraldsdóttur og Bo Melin „Here,
there and everywhere". Á sýningunni
leika þau Erla og Bo sér að því að brey-
ta Reykjavík í fjölþjóðlega borg með að-
stoð stafrænt breyttra Ijósmynda. Opið
14-18.
VEITINGAHÚS
Indland við
Hverfisgötu
Góður matur í notalegu um-
hverfi en verðlagið heldur í
hærri kantinum.
Austur Indíafélagið við Hverf-
isgötu á sér orðið alllanga sögu
miðað við veitingahús á íslandi.
Staðurinn var lengi eina Indverska
veitingahús borgarinnar og er nán-
ast enn þótt einn indverskur
skyndibitastaður hafi bæst í veit-
ingahúsaflóruna.
Það er alltaf gott að koma á
Austur Indíafélagið. Andrúmsloft-
ið er notalegt og þjónustan alúðleg.
Matseðillinn samanstendur af
hefðbundnum og góðum indversk-
um réttum og svíkur engan. Sér-
staklega verður að hvetja fólk til
að muna eftir hinu dæmigerða ind-
verska meðlæti eins og nanbrauði
Austur Indíafélagið
Verðlag: í efra meðallagi, aðalréttur kostar
um 2000 kr.
Umhverfi: Notalegt ef frá eru taldar leiðin-
legar glerplötur á borðum.
Matur: Stendur alltaf fyrir sínu ef fólk er
fyrir indverskan mat á annað borð.
Hverjir koma: Fólk á öllum aldri sem vill
eiga rólega stund yfir góðum mat.
Kostir: Hér veit maður alltaf
að hverju gengið er.
Gallar: Heldur hátt verðlag miðað við
það sem gengur og gerist á indverskum
veitingastöðum.
og jógúrtsósu sem er hvort tveggja
einstaklega vel gert á Austur Ind-
íafélaginu.
Sýning á Akureyri:
Ljósmyndari
aldarinnar
liósiviyndir Þeir sem eru eða verða
staddir á Akureyri í dag eða næstu
daga gerðu margt vitlausara en að
líta á sýningu á ljósmyndum eftir
sjálfan Henri Cartier-Bresson á
Listasafni Akureyrar.
Þetta er í fyrsta sinn sem hann
heldur einkasýningu á íslandi og
samanstendur sýningin af 83 verkum
sem teknar voru í Parísarborg á ár-
unum 1950-1970.
Margir hika ekki við að fullyrða
að Cartier-Bresson sé merkasti og
fremsti ljósmyndari tuttugustu aldar,
og hann átti tvímælalaust meiri þátt
en aðrir ijósmyndarar í því að gera
ljósmyndun að alvöru listgrein.
Cartier Bresson náði þvi sem
margir hafa sóst eftir en fáum tekist:
að spegla í ljósmyndum sínum fjöl-
breytileika, tilfinningar og mannlega
reynslu samtíma síns. ■
MICHEL GABRIEL
Ungur drengur sprangar kotroskinn um
götur Parisar með tvær vínföskur. Cartier
Bresson festi hann á filmu árið 1952
ÁSTFANGIÐ PAR
Þessa frægu Ijósmynd tók Cartier Besson
af kossaflensi í París árið 1969. Hundurinn
undir borðinu fylgist með af áhuga.
Öldungadeild
Menntaskólans við Hamrahlíð
NYJUNG EFTIR PASKA!
Stvitt tuiigumálanámskeið fyrir eldri borgara
Um er að ræða hnitmiðuð námskeið til að gera fólki kleift að bjarga
sér á tilteknu tungumáli um það nauðsynlegasta sem snýr að
ferðamanninum s.s. ferðlög, kurteisisreglur, veitingahús, búðir og
heilsugæsla. Kennt verður tvisvar í viku, klukkutíma í senn í fimm
vikur. Gert er ráð fyrir að nemendafjöldi á hverju námskeiði verði um
15.
Tungumálin sem unnt er að velja um eru enska, franska, norska,sænska,
spænska og þýska.
Auk þess er boðið upp á eftirtalin námskeið
Hvert námskeiðið er 12 kennslustundir.
Framburðarnámskeið í ensku
Námskeiðið er 12 kennslustundir.
Stutt tölvunámskeið
Kennari: Sigurður Haraldsson MCP, netstjóri MH.
a) Windows & Internetið.
b) Námskeið í Word
c) Námskeið í Excel.
Er þetta ekki eitthvað fyrir þig?
Innritað er í síma 5955200 mánudaginn 21. apríl til miðvikudagsins 23.
apríl n.k. kl. 1000 - 1800.
Gert er ráð fyrir að námskeiðsgjald sé greitt við innritun.
Slóð heimasíðu okkar er; www. mh.is
Rektor