Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.05.2001, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 03.05.2001, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 3. maí 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 15 Heimsmeistaramótið í Þýskalandi: T ékkarnir valtir ísknattleikur Ólvmpíu- og heims- meisturunum í ísknattleiksliði Tékka hefur ekki gengið sem skyldi á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi. Tékkarnir eru nú öruggir í aðra um- ferð en þurftu að sætta sig við niður- lægjandi jafntefli, 2-2, við Þjóðverja um daginn. Þjóðverjar hafa ekki ver- ið í toppbaráttunni síðan 1997. Tékk- arnir bættu fyrir það með 3-1 sigri á liði Sviss á þriðjudag, sem var einnig komið í aðra umferð. Með því að jafna í leik við Norð- menn, 4-4, tókst ítölum að komast áfram. Þetta kemur á óvart þar sem ekki var búist við miklu af ítölunum fyrir keppnina og þeir töpuðu fyrsta leik sínum á móti Rússum, 7-0. Bæði Noregur og Ítalía voru á botni D-rið- ils með tvö töp og eitt jafntefli. Eftir jafnteflið voru það mörkin sem giltu, Ítalía hafði skorað 14 sinnum en Nor- egur 13 sinnum. Þá völtuðu Svíar yfir Úkraínu- menn, 5-0, og skildu þá eftir úti í kuldanum. í næstu umferð mætast Tékkar, Þjóðverjar, Svisslendingar, Finnar, Slóvakar, Austurríkismenn, Svíar, Bandaríkjamenn, Úkraínubú- ar, Rússar, Kanadabúar og ítalir. í gærkvöldi mættust annarsvegar Svíþjóð og Bandaríkin, sem rembast við að standa sig vel vegna Ólympíu- leikanna í Salt Lake City, og hinsveg- HINGAÐ OG EKKI LENGRA Rússar möluðu Noreg í Þýskalandi á sunnudaginn, með 4 mörkum gegn engu. ar Kanada og Rússland. Það var í endurnir frá Kanada og Rússlandi fyrsta skipti í fjögur ár sem erkifj- mættust. ■ EN GARDE Albert Mónakóprins hitar upp fyrir skylm- ingamót fræga fólksins sem haldið var í Monte Carlo á sunnudaginn. I MOLAR 7 Sænski knattspyrnumaðurinn Henrik Larsson, sem var valinn leikmaður ársins í úrvalsdeildinni í Skotlandi, er á góðri leið með að vinna Gullna skóinn en honum fylgir titillinn markakóngur Evrópu. Sví- inn er búinn að skora alls 50 mörk fyrir lið sitt Celtic á leiktíðinni, þar af 34 í skosku deild- inni. Larsson, sem er með 51 stig, er þó ekki öruggur um Gullna skóinn því fast á hæla hans kemur Mateja Kezman, leikmaður PSV Eindhoven í hollensku úrvalsdeildinni, með 44 stig. Mörk í skosku deildinni gefa þó ekki jafn mörg stig og mörk í öðrum deildum. Kezman fær t.d. tvö stig fyrir hvert mark á meðan Larsson fær 1,5. Kevin Phillips, leikmaður Sunderland, vann Gulina skóinn í fyrra en hann veita ýmis íþrótta- tímarit í Evrópu. Meira um Celtic. Þrír leikmanna liðsins fengu sér full mikið neðan í því í veislunni á sunnudag- inn þar sem Larsson var valinn leik- maður ársins í Skotlandi. Chris Sutton, Jonathan Gould og Johan Mjállby tóku sig til og léttu á sér í móttöku hótelsins þar sem verð- launaafhendingin fór fram. Þessi framkoma vakti litla kátínu meðal stjórnenda hótelsins. Leikmönnun- um þremur var umsvifalaust vísað út af hótelinu og eiga þeir nú yfir höfði sér allt að sex milljón króna sekt frá forráðamönnum Celtic. DV greindi frá. Engir peningar fyrir Wembley Möguleiki á þjóðarleikvangi í Birmingham. Klúður á við Þúsaldarhvelfinguna, segja íhaldsmenn. knattspyrna Enska knattspyrnusam- bandið fær ekki meira en 300 millj- ónir punda frá ríkinu til að byggja nýjan þjóðarleik- vang í stað Wembley. Ný kostnaðaráætlun hljóðar upp á tæp- lega 200 milljónir punda í viðbót, en ríkisstjórn Tony Blair hefur lýst því yfir að aukinn kostnaður við byggingu vallarins muni ekki koma „Wembley skan- dall," „hrun Wembley" og „á hvergi heima" var á meðal þess sem slegið var upp í ensku blöðunum I gær. frá skattgreiðendum. Mögulegt er því að verkefnið falli um sjálft sig og tekið verði tilboði um þjóðarleik- vang frá Birmingham. Fyrirsagnir ensku blaðanna í gær báru mikilli hneykslun vitni, en blöðin gagnrýndu bæði ríkisstjórn- ina og enska knattspyrnusambandið fyrir að geta ekki séð almenningi fyrir þjóðarleikvangi. Bentu þau á að almenningur vildi hafa þjóðar- leikvang á hinum hefðbundna stað í útjaðri London. „Wembley skan- dall,“ „hrun Wembley" og „á hvergi heima“ var á meðal þess sem slegið var upp í gær. Benda íhaldsmenn á að ríkis- stjórn Tony Blair sé minnug þeirrar almennu hneykslunar sem Þúsald- arhvelfingin (Millenium Dome) hef- ur valdið, en hún fór langt fram úr upphaflegri fjárhagsáætlun. Til að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig treysti stjórnvöld sér ekki til að sinna hlutverki sínu gagnvart unn- endum knattspyrnu. Bent var á að „Millenium Stadi- um“ í Cardiff sem byggður var fyrir heimsmeistarakeppnina í rúgbí árið 1999 og tekur 74.000 manns í sæti hafi aðeins kostað 120 milljónir punda, eða um fjórðung af nýju kostnaðaráætluninni vegna Wembley. Ríkisstjórninni og knatt- spyrnusambandinu hafi því tekist að klúðra málum. Yfirmaður Knattspyrnusam- bandsins, Adam Crozier, sagði að kostnaðurinn væri einfaldlega of mikill fyrir sambandið. Því væri nauðsynlegt að skoða möguleika á að byggja þjóðarleikvang annarsstaðar en í London. Kom fram að næst- stærsta borg Englands, Birmingham, hefur boðist til að sjá um byggingu vallar fyrir meira en helmingi lægri upphæð. Sú gæti því niðurstaðan orð- ið ef fram fer sem horfir. ■ Hörð barátta á toppnum Guðjón og félagar í góðri stöðu fyrir Iokaumferðina. Þurfa sigur á laugardag. knattspyrna. Guðjón Þórðarson og fé- lagar eiga nú einn leik eftir í deildar- keppninni sem getur ráðið úrslitum um það hvort liðið fái sæti í úrslita- keppni fjögurra liða um sæti í fyrstu deild á næsta tímabili. Þeir rauðhvítu leika á laugardag gegn Swindon á Britannia Stadium, en Swindon er eins og stendur í sjötta neðsta sætinu og enn í fallhættu. Ætla má að þeir muni berjast hatrammlega til að falla ekki í neðstu deild. Stoke er nú í 5. sæti í deildinni, en liðin í 3. til 6. sæti leika sín á milli um eitt laust sæti í fyrstu deildinni. Liðin í 6. og 7. sæti, Wigan og Bournemouth gætu mögulega með sigri á laugar- dag skilið Stoke eftir í 7. sæti, en eins og áður sagði þarf íslendingaliðið á sigri að halda á laugardag til að koma í veg fyrir það. Walsall, sem er sæti ofar en Stoke, á leik í kvöld, en frammistaða Walsall gæti haft áhrif á stöðu Stoke í úrslitakeppninni. Tapi Walsall til dæmis bæði í kvöld og á laugardag getur Stoke komist upp í fjórða sæti. Sigur Stoke City á Oldham á úti- velli um síðustu helgi þýðir að liðið er í góðri stöðu fyrir síðustu um- ferðina. Brynjar og Ríkharður skor- uðu mörkin eftir að Stoke hafði lent undir snemma í leiknum, en mark Brynjars var að sögn Guðjóns með þeim glæsilegustu á leiktíðinni í 2. deild. ■ GUÐJÓN UPP? Stoke á nú góða möguleika á að komast upp um deild og launa þar með fjárfestunum stuðninginn. e fenUaUciotlobnfð m öli fimmtudagskvöld! Allt um Fóstbrœður VÍS1Uf.IS Wý geislaplata væntanleg Góða skemmtuni

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.