Fréttablaðið - 03.05.2001, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 03.05.2001, Blaðsíða 19
FIMMTUDACUR 3. maí 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 19 Spurningakeppni milli grunnskóla: Borgó getur betur spurnincakeppni í kjölfar velgengni Borgarholtsskóla í spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur ætlar Borgarholtsskóli að efna til spurn- ingakeppni milli grunnskóla í Graf- arvogi og Mosfellsbæ. Markmið keppninnar er að efla tengsl milli þessara skólastiga, að gefa keppend- um skólans tækifæri til að skipu- leggja spurningakeppni og ekki síst að skemmta sér saman eina kvöld- stund. Nafn keppninnar er „Borgó getur betur“ og fer hún fram í kvöld frá klukkan 20 til 22.30 í Borgarholts- skóla. ■ ÞRÍR FJÓRÐU HLUTAR BJARGRÆÐISKVARTETTSINS Vegna fjölda áskorana ætla þau að flytja víðar dagskrá sína með textum Ómars Ragnarssonar. Sigríður Helgadóttir, Patreksfirðing- urinn Gísli Magnason, Hafnfirðingur- inn Örn Arnarson og Húsvíkingurinn Aðalheiður Þorsteinsdóttir. ■ fyrir sjávarmyndir sínar þar sem hann sýnir störf við fiskveiðar og - vinnslu. Á undanförnum árum hefur Jón í auknum mæli sótt efnivið sinn í íslenskt landslag, ekki síst í uppland Hafnarfjarðar. Sýning- in er opin milli kl. 11 og 17 alla daga nema þriðjudaga og lýkur 14. maí nk. Gunella sýnir olíumálverk í Galleri Fold, Rauðarárstíg. Sýningin nefnist Kellur og er efniviðurinn (slenska bóndakonan úti í náttúrunni við leik og störf. Trúin á álfa og huldufólk kemur þar líka við sögu. Sýningin stendur til 6. maí. I Stöðlakoti við Bókhlöðustíg hefur Kristján Jónsson opnað sfna 6. einka- sýningu. Öll verkin á sýningunni eru unnin á þessu ári og sérstaklega með rými Stöðlakots í huga. Sýningin er opin alla virka daga nema mánudaga kl. 14- 18 og lýkur 13. maí. Tónleikar í Stykkis- hólmskirkju: Flytja lög úr glæsiaríum úr óperum tónleikar Þóra Einarsdóttir, söng- kona og Jónas Ingimundarson, píanó- leikari, halda tónleika í Stykkis- hólmskirkju í kvöld og hefjast þeir kl. 20.30. A efnisskránni eru íslenskir og erlendir söngvar ásamt glæsiarí- um úr óperum eftir þá höfuðsnillinga Mozart, Weber, Verdi og Johan Strauss. Jónas Ingimundarson er óþarfi að kynna, hann hefur margoft komið í Stykkishólm á liðnum árum, ýmis einn eða með söngvurum. Þóra Ein- Jean Posocco sýnir í Sverrissal, Hafn- arborg. Vfírskrift sýningarinnar er Stemming eða „Ambiance". Á sýning- unni eru vatnslitamyndir, flestar unnar á þessu ári. Posocco stundaði nám í Myndlista- og handíðaskóla islands 1985-1989 og er þetta 5. einkasýning hans. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga kl. 11-17 og henni lýkur 14. maí. i Norræna húsinu sýna fimm myndlist- armenn frá Svíþjóð Rose-Marie Huuva , Erik Holmstedt, Eva-Stina Sandling, Lena Ylipáá og Brita Weglin. Norður- botn er á sömu norðlægu breidd- argráðum og ísland og að flatarmáli helmingi stærra þó íbúar séu þar álíka margir og á íslandi. Sýníngin stendur til 13. maí. i Ásmundarsafni við Sigtún í Reykjavík stendur yfir samsýning á verkum Páls Guðmundssonar og Asmundar Jóns- sonar. Safnið er opið 13-16. Sýningin stendur til 6. maf. í Listasafnínu á Akureyri stendur yfir sýning á Ijósmyndum eftir hinn þekkta franska Ijósmyndara Henri Cartier- Bresson, en líklega hefur enginn átt meiri þátt í því að gera Ijósmyndun að viðurkenndri listgrein. Opíð 14-18. Sýn- ingin stendur til 3. júní. sem baðst nýverið afsökunar á því að hafa siglt undir fölsku flaggi með því að kalla sig listamann. Sýningin er opin 10- 17 en til kl. 19 miðvikudaga. Sýningin stendur til 27. maí. Sjö olíumálverk er á sýningu Kristínar Geirsdóttur í Hallgrímskirkju. í verkun- um er lögð áhersla á krossinn, þríhyrn- inginn og litinn en verkin voru gerð sér- staklega fyrir þessa sýningu. Sýningin er opin alla daga frá kl. 9-17. Sýningin stendur til 20. maí. „Heimskautalöndin unaðslegu" er heiti sýningar sem lýsir með myndrænum hætti lífi, starfi og hugsjónum Vestur-ís- lendingsins Vilhjálms Stefánssonar. Sýningin er um leið kynning á umhverfi, menningarheimum og málefnum norð- urslóða, en hún er í Listasafni Reykja- víkur - Hafnarhúsinu og er opin 10-17. Sýningin stendur til 4. júní. „Á meðan eitthvað er að gerast hér, er eitthvað annað að gerast þar" nefnist sýning á vekum Bandaríkjamannsins John Baldessari sem stendur yfir í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi. Hann er eitt af stóru nöfnunum i sam- tímalistasögunni og hefur verið nefndur Ijóðskáld hinnar öfugsnúnu fagurfræði og húmoristi hversdagsleikans. Sýningin er opin 11-18 og fimmtudaga til kl. 19. Sýningin stendur til 17. júní. Myndir 370 barna af mömmum í spari- fötum eru á sýningu í Galleríi Sævars Karls við Bankastræti í Reykjavík. Opið á verslunartíma. Sýningin stendur til 3. maí. I Listasafni Kópavogs - Gerðarsafni stendur yfir sýningin Carnegie Art Award 2000, þar sem sýnd eru verk eft- ir 21 norrænan myndlistarmann, en þar á meðal eru þeir Hreinn Friðfinnsson og Tumi Magnússon. Opið 11-17. Sýn- ingin stendur til 6. maí. „Drasl 2000" nefnir rithöfundurinn Sjón sýningu I Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í sýning- arröðinni „Þetta vil ég sjá". Þar hefur Sjón valið til sýning- ar verk eftir Erró, Magnús Pálsson, Magnús Kjartans- son, Hrein Frið- finnsson, Friðrik Þór Friðriksson og fleiri. Menningarmið- stöðin er opin frá 9 að morgni til 21 að kvöldi. I gallerí@hlemmur.is stendur yfir sýn- ing Erlu Haraldsdóttur og Bo Melin „Here, there and everywhere". Á sýning- unni leika þau Erla og Bo sér að því að breyta Reykjavík í fjölþjóðlega borg með aðstoð stafrænt breyttra Ijós- mynda. Opið 14-18. Sýningin stendur til 6. júní. Á Kjarvalsstöðum stendur yfir sýning norska listmálarans Odds Nerdrums, Norðmaðurinn Gisle Nataas hefur opn- að sýningu á Mokka-kaffi við Skóla- vörðustíg. Sýninguna nefnir listamaðurinn Eitt andartak og þrjár samræður og fjallar hún um hreyfingu og rými. Ljós og skugga. Sambandið á milli mynda og samræðna og þau áhrif sem hlutirnir hafa á rýmið. Sænska listakonan Anna Hailin sýnir málverk og teikningar í Gryfju Lista- safns ASÍ og heitir sýning hennar „Soft Plumbing". Olga Bergmann sýnir í Ás- mundarsal safn verka sem unnin eru með blandaðri tækni. Berglind Björnsdóttir Ijósmyndari hef- ur opnað sýninguna 2001 Space Odyssey í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðu- stíg. Myndirnar eru bæði svart/hvítar og í lit. Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 10-18, laugardaga kl. 11-16 og sunnudaga kl. 13-17. Sýningin stendur til 6. maí. I Listasafni Sigurjón Ólafssonar er sýning á verkum Sigurjóns sem spanna 30 ára tímabil í listsköpun hans. Sýndar eru Ijósmyndir og verk í eigu safnsins, raunsæisverk, andlitsmyndir og abstrakt verk. Fram til 1 júní er safnið opið laug- ardaga og sunnudaga milli kl. 14 og 17. Kaffistofa safnsins er opin á sama tíma. Sýningin stendur til 1. júní. Ásdís Kalmanheldur sýningu í Lista- salnum Man, Skólavörðustíg, á abstrakt-málverkum sem hún hefur gert á sl. tveimur árum. Þetta er hennar 4. einkasýning. Tuesday dföstudegi VEITINGAHUS Seint á föstudagskvöidi, þegar hungrið fór að segja til sín og letin var í hámarki, var ákveðið að arka á Ruby lúesday við Skipholt. Viðtökur voru góðar og brosmildir þjónar pössuðu að vera manni innan handar ef eitthvað vantaði og tónlistin hæfilega há. Erfiðleikarnir urðu strax þegar velja átti rétt á matseðlinum. Ekki vegna þess hve óspennandi hann var, heldur hvað margt var þess vert að bragða á. Fyrir valinu var réttur sem hafði að geyma sýnishorn af ýmsu sem matreitt er. Flest að því var mjög gott nema hvað djúpsteiktur kjúklingur var frekar bragðlaus. Ruby Tuesdav_______________________ Staðsetning: Skipholti 19 Opið: til 2330 Verðlag: Fyrir ofan meðallag Óhætt er að mæla með staðn- um í hádeginu eða þegar skroppið er til að seðja hungur að kveldi. Björgvin Guðmundsson Hentar vel fyrir félaga sem vilja skjótast í mat og spjalla. Aðalfundur Rithöfundasambands íslands: Matthías og Einar Bragi kjörnir heiðursfélagar HEIDURSFÉLACAR Á aðalfundi Rithöf- undasambands íslands, sem haldinn var 26. apríl sl., voru skáldin Matthí- as Johannessen og Einar Bragi kjörn- ir heiðursfélagar Rithöfundasam- bands íslands. A fundinum var rætt um gjaldfellingu bókarinnar og það öngþveiti á bókamarkaði sem frjálst bókaverð hefur haft í för með sér. Voru fundarmenn á einu máli um að rithöfundar þyrftu að beita sér í þessum efnum. Þá var rætt um fram- komu Ríkisútvarpsins gagnvart sjón- varpsþýðendum sem ekki hafa leng- ur samning við stofnunina en honum var sagt upp á síðasta ári. ■ Fyrirlestur um nöfn skipa og báta: Ýmislegt líkt með nafn- gjöf barns og skips fyrirlestur Svavar Sigmundsson nafnfræðingur heldur fyrirlestur í Sjóminjasafni íslands, Vesturgötu 8 í Hafnarfirði, í kvöld kl. 20:30. Fyrir- lesturinn nefnir Svavar „Hvað á skip- ió að heita?“ og er hann í boði Rann- sóknarseturs í sjávarútvegssögu og Sjóminjasafns íslands. Allir eru vel- komnir. í fyrirlestrinum fjallar Svav- ar, sem er forstöðumaður Örnefna- stofnunar íslands, um nöfn á íslensk- um skipum og bátum frá fornu fari til okkar tíma (1996). Ýmislegt er líkt með nafngjöf barns og skips. Hátt í helmingur allra skipa og báta bera líka mannanöfn. . Ætlunin er einnig að bera saman nafngiftavenjur hér á landi og í öðrum löndum. ■ Málstofa í Miðstöð nýbúa: Nauðsyn erlends vinnuafls funpur Síðasta málstofa vetrarins verður haldin í Miðstöð nýbúa v/Skeljanes í kvöld. Umræðan um er- lent starfsfólk á íslandi tekur stund- um þá mynd að verið sé að gera er- lendu fólki greiða með því að ráða það til starfa hér á landi. Minna hef- ur hins vegar borið á umræðu um nauðsyn þess fyrir íslenskt atvinnu- líf að hingað sé ráðið fólk frá öðrum þjóðlöndum. Málstofunni er ætlað að bæta úr skorti á þessari umræðu og er ætlunin að skoða málið út frá sjón- arhorni atvinnurekenda og stéttarfé- laga. Framsögu á málstofunni hefur Árni Jóhannsson frá Samtökum iðn- aðarins. Að lokinni framsögu verða opnar umræður. Allir velkomnir. ■ JÓNAS INGIMUNDARSON Á efnisskrá eru íslensk og erlend sönglög. arsdóttir er í framvarðasveit ís- lenskra söngvara og hefur sungið víða bæði hér heima og erlendis. Þess má geta að hún hefur nýlega verið fastráðin við Óperuna í Wiesbaden í Þýskalandi. ■ Ljósmyndasýning á Mokka-kaffi: Eitt andartak og þrjár sam- ræður uósmyndasýninc Norðmaðurinn Gisle Nataas opnar sýningu á Mokka-kaffi við Skólavörðustíg í dag. Myndirnar standa í rýmislegu samhengi við til- svarandi flöt þar sem samræður milli hans og hennar eiga sér stað. Sam- ræðurnar teygja sig milli þessara myndflata og helgast af ákveðinni togstreitu í tíma og rúmi. Sýningin fjalla um hreyfingu og rými. Ljós og skugga. Sambandið á milli mynda og samræðna og þau áhrif sem hlutirnir hafa á rýmið. ■ GISLE NATAAS SÝNIR Á MOKKA KAFFI. Sýningin byggjast á þremur stórum Ijósmyndum f stærðinni 100x70 sm.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.