Fréttablaðið - 03.05.2001, Síða 18
HVERJU MÆLIR ÞÚ MEÐ?
Kristján Kristjánsson
tónlistarmaður
Ég mæli með því að fólk veiði sér til matar
til sjávar og sveita. Næli sér í þorsk, ýsu,
svartfugl, silung, lax, rjúpu, gæs og borði ís-
lenskan harðfisk og lambakjöt og drekki ís-
lenskt vatn. Einnig mæli ég með nýbúum og
sibúum, að litadýrðin sé sem allra mest.
Dagur stærðfræðinnar:
Kynning
á stærð-
fræðiefni
kynning Námsgagnastofnun og Skóla-
vörubúðin bjóða stærðfræðikennur-
um, foreldrum og öðru áhugafólki
um stærðfræði til kynningar á stærð-
fræðiefni og stærðfræðigögnum í
Skólavörubúðinni, Smiðjuvegi 5,
Kópavogi, í dag.
Sérstakur gestur á degi stærð-
fræðinnar er Helene Vernis frá
Learning Resources í Bretlandi en
það fyrirtæki stendur framarlega í
framleiðslu kennslugagna í stærð-
fræði. Hún mun m.a. veita áhuga-
sömum aðilum upplýsingar um stöðu
stærðfræðinnar í Bretlandi og í Evr-
ópu ásamt því að kynna nýjungar í
stærðfræðigögnum fyrir leik- og
grunnskóla. ■
Gervigreind og framtíð
ómannaðra geimferða:
Er líf á Mars
og tunglinu
Evrópu?
fundur Dr. Ari Kristinn Jónsson
heldur fyrirlestur fyrir almenning
kl. 17.15 í dag í Háskólanum í
Reykjavík um gervigreind og hvern-
ig hún kemur við sögu við undirbún-
ing ómannaðra geimferða um sól-
kerfið. Ari vinnur hjá NASA (Geim-
ferðastofnun Bandaríkjanna) og er
sérfræðingur í gervigreind. I þessu
erindi verður gefið yfirlit yfir þá
gervigreindartækni sem verið er að
þróa í Ames rannsóknarstöð NASA
og hvernig sú tækni hefur verið og
verður notuð í geimferðum. Umræð-
an mun m.a. snúast um framtíðar-
ferðir út í geiminn - m.a. ferðir til að
kanna hugsanlegt líf á Mars og á
tunglinu Evrópu.
Frá 1997 hefur Ari unnið sem vfs-
indamaður hjá RIACS, NASA Ames
Research Center. ■
Flugleiðahlaupið í dag:
Hlaupið í
kringum
Reykjavíkur-
flugvöll
heilsurækt Flugleiðahlaupið verður
haldið í dag og hefst það kl. 19. Að
venju verður hlaupið í kringum
Reykjavíkurflugvöll og er vega-
lengdin 7 km. Boðið verður upp á sex
manna sveitakeppni.
Hægt er að skrá sig til keppni frá
kl. 17 í dag á Hótel Loftleiðum.
Skráningargjaldið er 700 kr. fyrir
fullorðna en 400 kr.fyrir börn. Veitt
verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin
í öllum flokkum. Þá verða ferðavinn-
ingar og kvöldveróir í boði. Þátttaka í
hlaupinu gefur punkta í Vildarklúbbi
Flugleiða. ■
18
FRÉTTABLAÐIÐ
3. maí 2001 FIMMTUDACUR
World Press Photo 2001:
Þekktasta fréttaljósmynda-
keppni sem haldin er
uósmyndir Ljósmyndasýningin World
Press Photo hefur verið opnuð í
Kringlunni og stendur hún til 14. maí.
Keppnin hefur verið haldin árlega
síðan 1955 og að henni stendur sjóður
sem hefur aðsetur í Hollandi. Þessi
samkeppni er langstærsta og þekkt-
asta fréttaljósmyndakeppni sem
haldin. Að þessu sinni bárust í keppn-
ina 42.321 myndir frá 3.938 ljósmynd-
urum sem koma frá 122 löndum.
Sýningunni er skipt í flokka og
veitt verðlaun fyrir þrjár bestu
myndirnar í hverjum flokki, bæði
fyrir myndaraðir og einstakar mynd-
ir. Sýningin er flokkuð í fréttaskot,
fólk í fréttum, vísindi og tækni, dag-
legt líf, íþróttir, listir, náttúra og um-
hverfi, almennar fréttir og að lokum
er einni mynd veitt verðlaun sem val-
in er af sérstakri dómnefnd, einungis
skipuð börnum. Alls eru þetta 207
myndir og eru allar verðlaunamynd-
irnar á sýningunni í Kringlunni. Við
hverja mynd er ítarlegur texti um
myndefnið á íslensku.
Samhliða sýningu World Press
Photo verður ljósmyndasýning Morg-
unblaðsins sem ber heitið: Andlit
manns og lands. Á sýningunni er úr-
val ljósmynda fréttaritara og ljós-
myndara Morgunblaðsins ■
FRÉTTALJÓSMYND ÁRSINS
Myndina tók ameríski Ijósmyndarinn Lara Jo Regan. Myndin er tekin í Texas af ínnfluttri
mexíkanskri móður og börnum hennar að búa til pinatas til að framfleyta fjölskyldunni.
FIMMTUDACURINN
3. MAÍ
FUNDiR________________________________
08.30 Ráðstefna um fjarvinnu verður
haldin í dag í lðnó. Síminn og
Callup standa að ráðstefnunni
en ríflega 50 starfsmenn hafa í
tilraunaskyni unnið störf sín í fjar-
vinnu hjá Símanum um nokkurt
skeið. Kynnt verður niðurstaða
rannsóknar á því hver áhrif fjar-
vinnu hafa verið fyrir starfsmenn
og fyrirtækið. Erindi flytja: Sigrún
Gunnarsdóttir Hrafnhildur
Stefansdóttir, Tómas Bjarnason,
Ásdís Jónsdóttir og Eyþór Eð-
varðsson. Heiðrún Jónsdóttir,
forstöðumaður upplýsinga- og
kynningarmála hjá Símanum er
ráðstefnustjóri.
12.30 í dag verður auka fræðslufundur
að Keldum Þar mun dr. Norman
Stern, USDA-Agricultural Rese-
arch Service, Athens, Georgia,
USA, tala um „Campylobacter in
poultry: what are we learning".
Fyrirlesturinn fer fram á ensku og
er haldinn á bókasafni Keldna.
16.15 Hallgrímur Arnarson flytur fyrir-
lestur í dag er nefnist: Saman-
burður á erfðaefni visnu-mæði
veira úr hjörð sem smitaðist í
löngu sambýli við sýkt fé. Mál-
stofan fer fram í sal Krabba-
meinsfélags íslands, efstu hæð.
20.00 <Aðalfundur Sósíalistaféiagsins
verður haldinn í kvöld í MÍR-
salnum, Vatnsstíg 10. Á dagskrá
eru venjuleg aðalfundarstörf.
Einnig verður rædd aldamótaá-
lyktun Sósíalistafélagsins. Allir vel-
komnir. Kaffi og meðlæti á
boðstólum.
20.00 Síðasta málstofa vetrarins verður
haldin í Miðstöð nýbúa
v/Skeijanes í kvöld. Rætt verður
um nauðsyn erlends vinnuafls
fyrir íslenskt atvinnulíf. Framsögu
á málstofunni hefur Árni Jó-
hannsson frá Samtökum iðnað-
arins.
TÓNLIST_________________________
Þau Þóra Einarsdóttir, söngkona og
Jónas lngimundarson, halda tónleika í
Stykkishólmskirkju í kvöld kl. 20.30. Á
efnisskránni eru íslenskir og erlendir
söngvar ásamt glæsiaríum úr óperum
eftir Mozart, Weber, Verdi og Strauss.
Kvartett Davíðs Þórs Jónssonar spilar
á jazzklúbbnum Múlanum, Húsi mál-
arans, i kvöld. Píanistinn Davíð Þór flyt-
ur hér frumsamda tónlist frá útskriftar-
tónleikum sinum o.fl. Með honum leika
þeir Jóel Pálsson á tenór sax, Valdi
Kolli á bassa og Helgi Svavar á tromm-
ur.
Bj argræðiskvartettinn
á Norðurlandi:
Spilað á
asnakjálka
og mjólk-
urglös
tónleikar Bjargræðiskvartettinn er á
tónleikaferð um Norðurland með sína
geysivinsælu dagskrá með textum
Ómars Ragnarssonar við lög eftir
ýmsa höfunda. Lögin eru flest vel
þekkt en Bjargræðiskvartettinn hefur
útsett þau á sinn eigin hátt og gefið
þeim nýjan hljóm.
Þau sungu á Sæluviku á Sauðár-
króki í gærkvöldi og það var allt upp-
selt, en í kvöld verða þau í Deiglunni á
Akureyri og svo á Gamla bauk á Húsa-
vík á morgun, föstudag.
„Þetta er mikið gleðiprógramm,“
segir Anna Sigríður Helgadóttir söng-
kona. „Það er allt frá Lok lok og læs og
yfir í Brú yfir boðaföllin sem er næst-
um því trúarlegur texti. Margir hafa
ekki áttað sig á því að Ómar hefur ekki
bara samið barnalög eða eitthvað glens
og grín heldur hefur hann samið fullt
af lögum sem hann flutti ekki sjálfur,
eins og t.d. Þú ein og Heimkoma sem
Hljómar fluttu,“ segir hún.
„Hann kom og hitti okkur nokkrum
sinnum þegar við vorum að æfa þetta
prógram, sagði okkur frá tilurð lag-
anna og kom með ýmsar hugmyndir að
efni. Hann meira að segja slökkti á far-
símanum. Þá sagði hann okkur t.d. að
hann hefði samið meira en 2.000 texta."
„Svo spilum við á alls konar hljóð-
færi,“ bætir Anna Sigríður við. „Við
spilum t.d. á mjólkurglös með smjör-
hnífum og asnakjálka fyrir utan hai’m-
oniku, píanó og gítar auóvitað og allt
mögulegt annað."
Bjargræðiskvartettinn hefur sömu
kynjaskipan og ABBA forðum, eða
tvennt af hvoru kyni, allir syngja og
allir spila á allskonar hljóðfæri. Kvar-
tettinn skipa: Reykvíkingurinn Anna
Croove Improve klúbbakvöld fara fram
hvert fimmtudagskvöld á Rex og þar
má heyra nokkra fremstu plötusnúða
þjóðarinnar spinna grúvaða hús og
fönk músík. Stundum er boðið upp á
lifandi spilamennsku samhliða
plötusnúningnum. Groove Improve
hefst klukkan 22. Enginn aðgangseyrir.
Pétur Kristjáns og Gargið munu rokka
feitt feitt á Kaffi Reykjavík. Leikin verð-
ur lög í anda Tempó.
Bubbi Morthens heldur tónleika i
kvöld í Ólafshúsi, Sauðórkróki. Miða-
verð 1 .OOO kr.
Bjargræðiskvartettinn heldur tónleika
á Norðurlandi. i kvöld heldur kvartettinn
tónleika í Deiglunni, Akureyrí, eftir leik
KA og Hauka og á föstudagskvöldinu á
Gamla Bauk, Húsavík. Kvartettinn ætl-
ar að flytja sína vinsælustu dagskrá
með textum Ómars Ragnarssonar við
lög hinna ýmsu höfunda.
LEIKLIST___________________________
20.00 i Þjóðleikhúsinu er sýning á
Syngjandi í rigning-
unni eftir Comden,
Creen, Brown og
Fred. Á sýningunni
er dansað, steppað
og sungið af hjart-
ans lyst. Við erum
stödd í Hollywood
; þegar fyrsta tal-
i myndin lítur dagsins
Ijós. Þöglu myndirn-
augabragði og gömlu
fá skyndilega málið.
20.00 Áhugamannaleikhúsið Hugleikur
sýnir í Tjarnarbíói verkið Víst var
Ingjaldur á rauðum skóm eftir
þær Hjördísi Hjartardóttur og
Sigrúnu Óskarsdóttur. Leikstjóri
er Sigríður Valbergsdóttir.
20.00 Píkusögur eftir Eve Ensler eru
sýndar í kvöld í Borgarleikhús-
inu. Leikarar eru Halldóra Ceir-
harðsdóttir, Sóley Elíasdóttir og
Jóhanna Vigdís Arnardóttir.
20.00 Nemendaleikhúsið og Hafnar-
fjarðarleikhúsið sýna í kvöld
Platanof eftir Tsjekhov. Miðinn
kostar 700 kr.
21.00 Eva - bersögul! sjálfsvarnarleik-
ur verður sýndur í kvöld í Kaffi-
leikhúsinu.
MYNPHST______________________
Jón Gunnarsson, listmálari, hefur opnað
sýningu á olíu- og vatnslitamyndum í
Hafnarborg í Hafnarfirði. Jón er þekktur
ar hverfa á
sljörnurnar
SÓLEY ELÍASDÓTTIR FER MEÐ EITT AÐAHLUTVERKANNA
Pikusögurnar voru fyrst settar á svið árið 1996, og hlaut sú uppfærsla hin
eftirsóttur Obie-verðlaun ári seinna.
Sýning á Píkusögum í kvöld:
Konur ræða um sína
leyndustu parta
leikýning Borgarleikhúsiö sýnir í
kvöld leikritið Píkusögur eöa „The
Vagina Monologues" eftir bandaríska
leikskáldið Eve Ensler. Verkið er
byggt á viðtölum leikskáldsins við
konur, gamlar konur og ungar, um
þeirra leyndustu parta, píkuna. Við-
fangsefnið er óvenjulegt, en höfund-
ur setur hugsanir viðmælenda sinna
fram á einstakan hátt og lýsir með
þessu safni eintala lífi og lífsviðhorf-
um ólíkra kvenna. Sum þessara ein-
tala eru nokkurn veginn orðrétt við-
töl, önnur eru skálduð upp úr ótal við-
tölum. Verkið hefur verið sýnt um öll
Bandaríkin, í London, Berlín, Aþenu,
Jerúsalem og víðar. Auk hefðbund-
inna leiksýninga, hefur texti leikrits-
ins verið lesinn á góðgerðar-samkom-
um sem kallaðar hafa verið V-Day
(1998 í New York, 1999 í London og
nú 2001 um allan heim), og hafa þá
stórstjörnur lesið upp úr verkinu
ásamt höfundinum; Glenn Close,
Cate Blanchett, Winona Ryder, Susan
Sarandon, Whoopi Goldberg, Marisa
Tomei, Rosie Perez, Lily Tomlin, Kate
Winslett, Melanie Griffith og Calista
Flockhart hafa tekið þátt í þessum
viðburðum, en ágóðinn hefur runnið
til samtaka sem berjast gegn ofbeldi
gegn konum. ■